Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 65

Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 65
G03AA10 R 0 Húöaöar töflur: Hver tafla inniheldur: 75 pg gestóden og 20 pg etinýlestradiól. Ábendingar: Getnaöarvarnarlyf tll inntöku. Skammtar og lyfjagjöf: Hvernig skal taka Harmonet:Töflumar verður að taka í réttri röð úr pakkningunni, á sama tíma dagsins með vökva eftir þörfum. Taka skal eina töflu á dag samfleytt i 21 dag. Byrja skal á næsta töfluspjaldi eftir 7 daga hlé. Yfirleitt byrja blæðingar á 2-3 degi eftir að siðasta tafla var tekin og þær geta enn staðiö yfir þegar byrjað er á næsta töfluspjaldi. Frábendingar: Ekki ætti að nota samsettar getnaðarvarnartöflur i eftirfarandi tilfellum: Segamyndun í djúpbláæðum eða saga um slikt. Æðabólgur i fótum. Segarek eða saga um slikt. Slæmir æðahnútar. Heilaæða- eða kransæðasjúkdómar.Segamyndandi lokusjúkdómar (thrombogenic valvulopathies). Segamyndandi hjartsláttartruflanir (thrombogenic rhythm disorders). Arfgeng eða áunnin segamyndunarhneigð. Höfuðverkur með staðbundnum taugaeinkennum, eins og fyrirboða.Sykursýki með einkennum frá æðakerfi. Háþrýstingur sem ekki hefur náðst stjórn á. Brjóstakrabbamein eða grunur um brjóstakrabbamein eða önnur estrógenháð æxli.ÖII æxli III- og góðkynja sem hormónar geta haft áhrif á. Lifrarkirtilæxli, lifrarkrabbamein eða virkir lifrarsjúkdómar, svo lengi sem lifrarstarfsemin hefurekki komist aftur í eðlilegt horf. Blæðing frá leggöngum af ógreindum orsökum.Porfýrla. Rauðir úlfar (SLE, Systemic lupus erythematosus). Þungun eða grunur um þungun.Ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum HARIVIONET. Sérstök varnaðarorö og varúðarreglur viö notkun: Varnaöarorð: Reykingar auka hættu á alvarlegum aukaverkunum samsettra getnaðarvarnartaflna frá hjarta og æðakerfi. Þessi áhætta eykst meö aldrinum og því hve mikiö er reykt (í faraldsfræöilegum rannsóknum var marktæk meiri hætta þegar reyktar voru 15 eða fleiri sigarettur á dag). Þetta á sérstaklega við um konur eldri en 35 ára. Konum sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur skal eindregið ráðlagt frá þvi að reykja. 1). Segamyndun og segarek í bláæöum eða slagæðum:Notkun samsettra getnaðarvarnartaflna er tengd aukinni hættu á segamyndun í bláæðum og slagæöum og aukinni hættu á segareki. Fyrir sérhverja estrógen/prógestín blöndu ætti ávísaður skammtur að vera sá sem inniheldur minnsta mögulega magn af estrógeni og prógestini sem hefur ásættanlega virkni og er nægjanlegur þörfum sérhvers sjúklings. Nýir notendur samsettra getnaðarvarnartaflna eiga að byrja á töflum sem innihalda minna en 50 mikrógrömm af estrógeni. 'Segamyndun og segarek í bláæðum: Notkun á samsettum getnaðarvarnartöflum eykur hættu á segamyndun i bláæðum og segareki. Notkun á hvers kyns samsettum getnaðarvarnartöflum felur i sér aukna hættu á segamyndun í bláæðum og segareki, samanborið við þá sem nota þær ekki. Hættan er mest fyrsta árið sem kona tekur samsettar getnaðarvarnartöflur. Þessi aukna hætta á segamyndun í bláæðum og segareki er minni en hjá konum á meðgöngu, en hættan hjá ófrískum konum er talin vera um 60 tilfelli á hvert 100.000 kvenna-ár. I 1-2 % tilfella veldur segamyndun I bláæðum dauða. í mörgum faraldsfræöilegum rannsóknum hefur komiö fram að konur sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur með etinýlestradióli, yfirleitt i 30 mlkrógramma skammti og progestín svo sem gestóden, eru i aukinni áhættu á segamyndum í bláæöum og segareki samanborið við þær sem hafa notað samsettar getnaöarvarnartöflur sem innihalda minna en 50 mlkrógrömm af etínýlestradióli og prógestínið levonorgestrel. Niðurstöður úr nokkrum viðbótarrannsóknum hafa ekki sýnt þessa auknu áhættu. Þegar samsettar getnaðarvarnartðflur sem innihalda 30 mikrógrömm af etinýlestradíóli i samsetningu með desogestreli eða gestódeni eru bornar saman við þær sem innihalda minna en 50 míkrógrömm af etínýlestradióli og levonorgestrel, hefur samanlögð hlutfallsleg áhætta á segamyndun I bláæðum og segareki verið metin á bilinu 1,5 til 2,0. Tíðni segamyndunar i bláæðum og segareks hjá konum sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur sem innihalda levonorgestrel og minna en 50 mlkrógrömm af etínýlestradióli, er u.þ.b. 20 tilfelli á hver 100.000 kvenár notkunar. Fyrir samsettar getnaðarvarnartöflur sem innihalda 30 mikrógrömm af etinýlestradióli ásamt desogestreli eða gestódeni er tíðnin u.þ.b. 30-40 tilfélli á hver 100.000 kvenár notkunar, þ.e. 10-20 tilfellum fieiri á hver 100.000 kvenár notkunar. Hjá konum sem hafa tilhneigingu til segamyndunar í bláæöum og segareks er hættan á slíku enn meiri. Dæmi þar sem meiri tilhneiging er til segamyndunar í bláæðum og segareks eru: offita, skurðaðgerð eða áverki með aukna hættu á segareki, nýleg fæðing eða fósturlát á öðrum þriðjungi meðgðngu, langvarandi hreyfingaleysi, hár aldur. Ef mögulegt er skal hætta notkun á samsettum getnaöarvarnartöflum: - tjórum vikum fyrir og tveimur vikum eftir aðgerðir þar sem aukin hætta er á segareki - við langvarandi hreyfingaleysi. ‘Segamyndun og segarek I slagæöum: Notkun á samsettum getnaðarvarnartöflum eykur hættuna á segamyndun i slagæðum og hættuna á segareki. Atvik sem skráð hafa veriö eru meöal annars hjartadrep og heilablóöfal! (blóðþurrö og heilablæðing, skammvinnt blóðþurröarkast). Hættan á segamyndun í slagæðum og segareki er enn meiri hjá konum sem hafa undirliggjandi áhættuþætti. Gæta skal varúðar þegar konum I áhættuhópi fyrir segamyndun í slagæðum og segareki er ávisað samsettum getnaðarvarnartöflum. Dæmi um áhættuþætti fyrir segamyndun i slagæðum og segareki eru: - reykingar, - háþrýstingur, - óhófleg blóðfituhækkun, - offita og aukinn aldur. Konur með migreni (einkum mígreni með flogboða) sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur kunna að vera I meiri hættu á að fá heilablóðfall. 2). Augnskemmdir: Skráð hafa verið tilfelli af segamyndun I sjónuæöum, sem leitt geta til sjónmissis að hluta eða að fullu, samfara notkun samsettra getnaðarvarnartaflna. Ef það eru einhver merki eða einkenni um breytingar á sjón svo sem sjóntruflanir, byrjun á útstæðum augum, tvísýni, doppubjúgur, eða skemmdir á sjónuæðum þá skal hætta inntöku taflnanna og strax meta orsökina. 3). Blóðþrýstingur: Skráöar hafa verið hækkanir á blóðþrýstingi hjá konum sem taka inn samsettar getnaöarvarnartöflur. Mælt er með að konur sem hafa háþrýsting, sögu um háþrýsting eða sjúkdóma tengdum háþrýstingi noti aðrar getnaöarvarnir. Ef samsettar getnaðarvarnartöflur eru notaðar i slikum tilvikum þá er ráðlagt aö mæla blóðþrýstinginn reglulega og ef marktæk aukning verður á blóðþrýstingi þá ber að hætta töku taflnanna (sjá 4.3 Frábendingar). Hjá flestum konum fer blóðþrýstingur aftur i eðlilegt horf þegar hætt er að taka samsettar getnaðarvarnartöflur og það er ekki munur á tiðni háþrýstings hjá þeim sem hafa notað og þeim sem hafa aldrei notað samsettar getnaðarvarnartöflur. Konur með háþrýsting sem ekki hefur náðst stjórn á, eiga ekki að nota samsettar getnaðarvarnartöflur. 4). Krabbamein i æxlunarfærum: Rannsóknir hafa gefið til kynna að tengsl geti veriö milli notkunar samsettra getnaðarvarnartaflna og aukinnar hættu á leghálskrabbameini eða æxlisvexti í leghálsþekju (intraepithelial) hjá nokkrum samfélagshópum kvenna. Samt sem áður er enn ágreiningur um aö hve miklu leyti þessar niðurstöður séu afleiðingar mismunandi kynlifshegðunar og annarra þátta. i þeim tilfellum þar sem óeðlilegar blæðingar frá kynfærum hafa ekki verið sjúkdómsgreindar er ráðlagt að framkvæmd sé fullnægjandi sjúkdómsgreining. Safngreining á 54 faraldsfræðilegum rannsóknum sýndi að það er dálitil aukning á hlutfallslegri hættu (RR=1.24) á að brjóstakrabbamein greinist hjá konum sem nota samsettar getnaöarvarnartöflur borið saman við þær sem aldrei nota þær. Þessi aukna hætta minnkar stig af stigi á tiu árum frá þvi að notkun samsettra getnaðarvarnataflna er hætt. Þessar rannsóknir sýndu ekki fram á orsakatengsl. Sú aukna hætta á greiningu brjóstakrabbameins sem sást kann að stafa af þvi að greining brjóstakrabbameins verður fyrr hjá þeim sem n°ta samsettar getnaðanrarnartöflur (vegna reglulegra eftirlits) eða vegna liffræðilegrar verkunar taflnanna eða af báðum þessu þáttum. Þar sem brjóstakrabbamein er sjaldgæft hjá konum undir fertugu, þá er aukning á fjölda greindra tilfella brjóstakrabbameins litil hjá þeim sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur að staðaldri samanborið við hættuna á að fá brjóstakrabbamein einhvern tíma á ævinni. Brjóstakrabbamein sem greindust hjá þeim sem einhvern tímann notuðu samsettar getnaðarvarnartöflur, virtust ekki vera eins langt gengin kliniskt samanborið við brjóstakrabbamein þeirra sem aldrei notuðu samsettar getnaöarvarnartöflur. 5). Æxli i lifur/lifrasjúkdómar: i mjög fáum tilfellum hefur verið greint frá lifrarkirtilæxlum, og enn sjaldnar illkynja lifrakrabbameinum i tengslum við notkun samsettra getnaðarvarnartaflna. Svo virðist sem áhættan aukist við notkun á samsettum getnaðarvarnartöflum. Rof á þessum lifrarkirlilæxlum geta leitt til dauða vegna lífshættulegra kviðarholsblæðinga. Konur með sögu um tengsl milli notkunar á samsettum getnaðarvarnartöflum og gallteppu og konur með gallteppu á meðgöngu eru líklegri til að mynda æxli við notkun á samsettum getnaðarvarnatöflum. Ef þessar konur fá samsettar getnaðarvarnatöflur skulu þær vera undir reglulegu eftirliti og ef einkenni koma aftur fram skulu þær hætta notkun taflnanna. 6). Mígreni/Höfuðverkur: Hætta skal notkun samsettra getnaðarvarnartaflna ef fram kemur mígreni, ef migreni versnar eða ef fram kemur itrekaður, eða viðvarandi eða alvarlegur höfuðverkur. Kanna verður hver er ástæða höfuðverkjanna. Konur með migreni (einkum mígreni með flogboða) sem nota samsettar getnaðan/arnartöflur kunna að vera I meiri hættuá aðfá heilablóðfall. Varúðarráðstafanlrfyrir notkun: 1).Læknisskoðun: Áður en meðferö með samsettri getnaðarvarnartöflu er hafin á að skoða vandlega sjúkrasðgu og fjölskyldusögu viðkomandi og kanna líkamsástand hans og m.a. mæla blóðþrýsting. Slíka læknisskoðun á að endurtaka reglulega meðan á meðferð með samsettri getnaðarvarnartöflu stendur. 2). Áhrif á kolvetni og llplða: Skráð hefur verið skert sykurþol hjá þeim sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur. Fylgjast þarf vandlega með þeim konum sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur og hafa skert sykurþol eða eru sykursjúkar. Lágt hlutfall kvenna sem taka getnaöarvarnartöflur munu einnig fá breytingar á fitugildum. Hjá konum með blóðfituhækkun sem ekki hefur náðst stjórn á skal íhuga getnaðarvðrn án hormóna.Viðvarandi blóðþriglýseriðhækkun getur orðið hjá litlum hluta þeirra sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur. Hækkun þríglýseríða I plasma getur leitt til brisbólgu og annarra fylgikvilla. Fylgjast skal náið með konum sem hafið hafa meðferð við hækkaðri blóðfitu ef þær kjósa að nota samsettar getnaðarvarnartðflur. 3).BIæðingar frá kynfærum: Hjá sumum konum verða ekki blæðingar á töflulausa timabilinu. Ef samsettu getnaðarvamartöflurnar hafa ekki verið teknar samkvæmt leiöbeiningum áður en fyrstu tíöablæðingar féllu niöur eöa ef tvennar blæðingar I röö falla niður, þá ber að stöðva inntöku taflnanna og nota aörar getnaðarvarnir sem ekki innihalda hormóna þar til að þungun hefur verið útilokuð. Komið geta fram milliblæðingar og blettablæðingar hjá sjúklingum sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur einkum á fyrstu þremur mánuðum meðferðarinnar. Tegund prógestíns og skammtur þess kann að skipta máli. Ef þessar blæðingar eru viðvarandi eða koma ítrekað fram skal ihuga hvort ástæðan sé af öðrum toga en af hormónum og framkvæma viðeigandi sjúkdómsgreiningu, til að útiloka þungun, sýkingu, illkynja sjúkdóma eða aðrar ástæður. Ef útilokað hefur verið að blæðingin stafi af sjúkdómum þá gæti áframhaldandi meðferð með samsettum getnaðarvarnartöflum eða skipti milli tegunda leyst vandamálið . Sumar konur fá tíöateppu (líklega án eggloss) eftir að töku lyfsins er hætt eða fátíöir (oligomenorrhea) einkum ef saga er um slíkt. 4). Þunglyndi: Fylgjast þarf náið með konum sem hafa sögu um þunglyndi og nota samsettar getnaðarvarnartöflur. Ef þunglyndi á alvarlegu stigi kemur aftur fram þá á að stöðva meöferðina. Sjúklingar sem verða verulega þunglyndir meðan á meðferð með samsettum getnaðarvarnartöflum stendur ættu að hætta að taka töflurnar og nota aðrar gerðlr getnaðarvarna til að reyna að komast að því hvort einkennin stafa af lyfjatökunni. 5). Annað: Gera ætti sjúklingum grein fyrir þvi að þetta lyf veitir hvorki vörn gegn HIV sýkingum (alnæmi) né öðrum kynsjúkdómum. Niðurgangur og/eða uppköst geta leitt til minnkaðs frásogs hormóna sem ieiðir til lægri þéttni I blóðvökva. (sjá kafla 4.2). Sjúklingar með galaktósaóþol, laktasaþurrð eða glúkósa galaktósa vanfrásog, sem eru sjaldgæfir arfgengir kvillar, skulu ekki taka lyfið. Einnig sjúklingar með frúktósaóþol, glúkósa-galaktósa vanfrásog eða súkrósa-Isómaltasaþurrð, sem eru sjaldgæfir arfgengir kvillar, skulu ekki taka lyfiö. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir. Milliverkanir etínýlestradióls og annarra efna getur bæði leitt til aukinnar eða minnkaðrar þéttni á etinýlestradióli I blóövökva. Minnkuð þéttni etinýlestradióls i blóövökva getur orsakað aukna tíðni milliblæðinga og óreglulegra blæðinga og hugsanlega dregið úr verkun samsettra getnaðarvarnartaflna. Við samtimis notkun lyfja sem innihalda etinýlestradíól og efna sem geta leitt til minnkaðrar þéttni etinýlestradióls i blóðvökva er mælt með að nota getnaðarvarnir sem ekki innihalda hormóna (s.s. verjur og sæðisdrepandi krem) samtimis hefðbundinni inntöku HARMONET, til að fyrirbyggja þungun. Samsettar getnaðarvarnartöflur ættu ekki að vera fyrsta getnaðarvörnin ef um langvarandi notkun slíkra efna er að ræða. Eftir að notkun efna sem leitt geta til minnkaðrar þéttni etinýlestradióls I blóðvökva hefur verið hætt er mælt með að nota aðrar getnaðarvarnir sem ekki innihalda hormóna i að minnsta kosti 7 daga. Ráðlegt er að nota slikar hormónalausar getnaðarvarnir lengur ef efnið örvar lifrarensim sem leiðir til minnkaðrar þéttni etinýlestradíóls i blóðvðkva. Það getur stundum tekið nokkrar vikur þar til að slík örvun lifrarensíma hættir en slíkt er háð skammti, lengd notkunar og hraða brotthvarfs lifrarenslmörvandi efnisins. Dæmi um efni sem geta minnkað þéttni etinýlestradlóls i blóðvðkva: Sérhvert efni sem minnkarviðverutímann i meltingarvegi. Efni sem örva lifrarensim s.s. rifampicín, rifabútín, barbitúrsýrur, primadón, fenýlbútazón, fenýtóín, dexametasón, gríseófúlvln, tópíramat, sumir próteasahemlar, módafíníl. Hypericum perforatum ( St. Johns Wort ) og Rítónavír (líklega með örvun lifrarensíma). Ákveðin sýklalyf (t.d. ampícillín og önnur penicillín, tetracýklln) með því aö draga úr lifrar-þarma hringrás estrógens Dæmi um efni sem geta aukið þéttni etinýlestradíóls i blóðvökva: Atorvastatin. Samkeppnisblokkar fyrir súlfateringu á veggi meltingarvegs s.s. askorbínsýra (C-vítamín) og paracetamól. Efni sem draga úrvirkni cýtakróm P450 3A4 isóensima s.s. indínavir, flúkónazól og tróleandómýcín. Samtímis gjðf tróleandómýcíns og samsettra getnaðarvarnartaflna getur aukið hættuna á gallteppu i lifur. Etínýlestradíól getur truflað umbrot annarra lyfja með því að blokka umbrotsensím i lifur eða með þvi að hvetja samtengingu lyfja i lifur einkum glúkúróniðeringar. Því kann þéttnin i blóðvökva og vetjum ýmist að aukast (t.d. cýklóspórín, theófýllín, barksterar) eða aö minnka (t.d. lamótrigín). Skráð hefur verið aukin hætta á mjólkurflæöi hjá sjúklingum sem meöhöndlaðir eru meö flúnarizín og fá getnaðarvarnarlyf til inntöku. Skoða ætti upplýsingar þeirra lyfja sem viðkomandi notar samtimis samsettu getnaðarvarnatöflunum til að greina likur á milliverkunum Hjá sjúklingum sem taka inn samsettar getnaðarvarnartöfiur og Jóhannesarjurt (hypericum perforatum) hafa verið skráðar milliblæðingar. Jóhannesarjurt kann aö ön/a lifrarensím sem fræöilega geta leitt til minni verkunar samsettra getnaðarvarnartaflna. Mælt er með aö nota einnig getnaöarvarnir án hormóna ef Jóhannesarjurt er notaður samtimis samsettum getnaðarvarnartöflum. Aukaverkanir: Varðandi Alvarlegar aukaverkanir hjá þeim sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur, Sjá kafla 4.4.. Notkun samsettra getnaðarvarnartaflana hefur veriö tengd: ’Aukinni hættu á segamyndun og segareki í slagæðum og bláæðum, þar með talið kransæðastíflu, heilablóðfall, skammvinnu blóðþurröarkasti, blóðtaþpamyndun og lungnasegareki. 'Aukinn hættu á æxlismyndun í leghálsþekju og leghálskrabbameini. 'Aúkinni hættu á að greinast með brjóstakrabbamein. 'Aukin hætta á góðkynja lifraræxlum (t.d. staðbundin hnútaæxli (focal nodular hyperplasia), lifrarkirtilæxli). Aðrar mögulegar aukaverkanir hjá þeim sem nota samsettar getnaðarvarnartöflur Algengar (>1/100):Miðtaugakerfi: Skapbreytingar þar með talið þunglyndi, breytingar á kynhvöt, höfuðverkur þar með talið migreni, taugaveiklun, sundl. Þvag- og kynfæri:blæðingartruflanir, bletta-/milliblæðing. Tiðaþrautir, úthverfing á legháls og breyting á seytingu úr legi, tíðateppa.Brjóst: Verkir, eymsli, stækkun og seyting úr brjóstum.Meltingarvegur: Ogleöi, uppköst, kviðverkir. Húö: Gelgjuþrymlar. Sýkingar: Leggangaþroti þar með talin sveppasýking.Almennar aukaverkanir: Vökvasöfnun/bjúgur. Rannsöknir: Þyngdarbreytingar (aukin eða minnkuð). Sjaldgæfar: Meltingarvegur: Krampar i kviðarholi, þaninn kviður.Húð: Utbrot, meðgöngufreknur (chloasma) sem geta verið viðvarandi, ðeðlilegur °g mikill hárvöxtur, hárlos. Innkirtlar: Breyting á matarlyst (aukin eða minnkuð). Rannsóknir: Hækkaður blóðþrýstingur, breytingar á blóðfitugildum þar með talið blóðþriglýseriðhækitun. Mjög sjaldgæfar: Hjarta- og æðakerfi:Aukning á æöahnútum.lnnkirtlar: Skert sykurþol, versnandi porfýría. Meltingarvegur: Brisbólga, lifrarkirtilsæxli, staðbundið krabbamein I lifrarfrumum, gula af vðldum gallteppu, sjúkdómar í gallblöðru þar með taldir gallsteinar, blóðþurrðar ristilbóga (ischemic colitis). Ónæmiskerfi: Bráðaofnæmi/ofnæmislost þar með talin mjög sjaldgæf tilfelli og alvarlegra verkanna með öndunarfæra og blóörásar einkennum, versnandi rauðir úlfar.MiðtaugakerfLVersnandi rykkjabrettur (chorea). Þvag- og kynfæri: Blóðlýsuþvageitrunarheilkenni. Augu: Óþol fyrir augnlinsum, sjóntaugarþroti, segamyndun i sjónuæðum.Rannsóknir: Lækkuð gildi fólats i blóðvökva. Sjóntaugarþroti getur leitt til sjónmissis að hluta eða að fullu. Samsettar getnaðarvarnartöflur geta valdið versnandi gallblöörusjúkdómum sem fyrir eru og hraðaö þróun þessara sjúkdóma hjá konum sem áður voru einkennalausar. Meöferö samsettra getnaðarvarnataflna getur lækkaö gildi fólats I blóövökva. Ofskömmtun: Einkenni ofskömmtunar getnaðarvarnartaflna hjá fullorðnum og börnum geta verið, ógleði, uppköst, eymsli i brjóstum, sundl, kviöverkur, svefnhöfgi/þreyta, konur geta fengið blæðingar. Ekkert sértækt mótefni er til og ef frekari meðferð við ofskömmtun er nauösynleg, skal hún beinast að einkennum. Markaösleyfishafi: Wyeth Medica Ireland. < Umboðsaðili á Islandi: lcepharma hf Lynghálsi 13 110 Rvk. Lyfið er lyfseðilsskylt. Greiðslufyrirkomulag: 0 Styttur sérlyfjaskrártexti dags. 16. desember 2008. Sjá allan textann á www.lyfjastofnun.is. Pakkningar og verð apríl 2009: 3x21stk, þynnupakkaö: 3.360kr. icepharma Wyeth T% CWMCrWtfc LÆKNAblaöið 2009/95 545
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.