Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 47
U M R Æ Ð U R
O G
F R É T T I R
H J Ú K R U N
Fjölskylduhjúkrun í fremstu röð
Lorraine Wright hélt
fyrirlestur á ráðstefnu um
hjúkrun.
Níunda alþjóðlega fjölskylduhjúkrunarráðstefnan „Frá innsæi til inngripa:
Fjölskylduhjúkrun í fremstu röð" var haldin á Hilton Nordica hótelinu
dagana 2.-5. júní síðastliðinn. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni var dr.
Lorraine Wright sem getið hefur sér alþjóðlega viðurkenningu fyrir störf
sín, rannsóknir og fyrirlestra á sviði fjölskylduhjúkrunar, með sérstakri
áherslu á aðstandendur sjúklinga og áhrif alvarlegra veikinda á fjölskyldur
sjúklinganna.
Ráðstefnan var haldin á vegum hjúkrunar-
fræðideildar Háskóla íslands, heilbrigðissviðs
Háskólans á Akureyri, Landspítala, Heilsugæsl-
urtnar á höfuðborgarsvæðinu og Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Ráðstefnan hefur verið
haldin undanfarna tvo áratugi í Norður- og
Suður-Ameríku og í Asíu en var nú í fyrsta sinn
í Evrópu.
Lorraine Wright var upphafsmaður þessara
ráðstefna og segir að hugmyndin hafi kviknað
þar sem henni hafi fundist skorta vettvang fyrir
hjúkrunarfræðinga sem vildu sérhæfa sig og deila
reynslu sinni og þekkingu á fjölskylduhjúkrun.
„Fyrsta ráðstefnan var haldin í Tælandi og síðan
í Japan og það er ekki skrýtið því þar er áherslan
á fjölskylduna gríðarlega sterk og allir vilja geta
séð fyrir foreldrum sínum þegar þeir eldast," segir
Lorraine Wright í samtali við Læknablaðið.
Hún segir augu sín hafa opnast þegar hún
fékk leiðbeiningu frá ítölskum geðlækni, dr. M.
Palinzoli, sem hafði sérhæft sig í fjölskyldumeðferð
sjúklinga. „Hún sagði við mig: „Veikindi snúast
alltaf um tengsl sjúklings við aðra. Ef þú vilt fá
upplýsingar um fjölskyldu sjúklings skaltu spyrja
hann um áhrif veikindanna á tengsl hans við sína
nánustu. Það er reyndar augljóst þegar maður
veltir því augnablik fyrir sér að veikindi hafa áhrif
á öll tengsl og samskipti sjúkingsins við þá sem að
honum standa. Veikindin hafa áhrif á hjónaband,
tengsl við börn, foreldra, vinnu og alla þætti
Hávar
Sigurjónsson
LÆKNAblaðið 2009/95 527