Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 42
U M R Æ Ð U R H E I L B R I G O G Ð I S F R É T T I R RÁÐHERRA stöðugt er hægt að finna leiðir til að fara betur með fjármuni og það á við heilbrigðiskerfið. Það sem fyrir mér er alvarlegast er sú staðreynd að góðærisfrjálshyggjan skilaði okkur heilbrigðis- kerfi með nærri þrjá milljarða í skuld. Ég held að þessi fjárhagsstaða sé til marks um óvandaðar áætlanir, eða óábyrga fjármálastjórn frjálshyggjunnar, fremur en að menn hafi verið að undirbúa jarðveginn fyrir einkavæðingu. Ég vil beina sjónum mínum að þeim kostnaðar- þáttum sem skerða þjónustuna sem minnst. Þar nefni ég lyfjakostnað en með breyttu skipulagi og góðri samvinnu við lækna sem geta eflt með sér kostnaðarvitund er eflaust hægt að ná þeim kostnaði umtalsvert niður. Læknar þurfa að vera sífellt meðvitaðir um að þeir eru ekki bara að taka læknisfræðilegar ákvarðanir gagnvart sjúklingi sínum heldur líka efnahagslegar, bæði fyrir hann og samfélagið í heild sinni. Ef brota- lamir eru til staðar í verðskráningu lyfja, sem ég hef heyrt af er einfalt mál að lagfæra þær og gott samstarf milli allra aðila er forsendan fyrir því að hægt að sé að halda kostnaði í skefjum. Ég hef verið að kalla eftir slíku samstarfi og fengið afar góð viðbrögð frá læknum. Ég veit líka að við ættum að fara í verulegar skipulagsbreytingar, og endurskilgreiningar á stofnunum og þjónustu, en þetta verður ekki gert með boðvaldi að ofan. Raunveruleg hagræðing verður aldrei nema fólkið sé þátttakandi í breytingum." Læknar hafa bent á að nú sé svo komið að ekki verði skorið meira niður án þess að það bitni á þjónustu við sjúklinga. „Því miður er þetta rétt. Það er ekki hægt að skera niður um sjö milljarða án þess að það bitni á þjónustunni. Stjómendur og starfsfólk heilbrigðisstofnana í landinu eru í rauninni að vinna kraftaverk á hverjum degi með þeim takmörkuðu fjármunum sem til ráðstöfunar eru. Það má ekki gerast að við göngum svo nærri heilbrigðisþjónustunni í sparnaðarskyni að fólk missi vinnu sína og síðan klórum við okkur í höfðinu og reynum að finna atvinnuskapandi tækifæri fyrir þetta sama fólk, tækifæri sem sennilega eru ekki jafn hagkvæm fyrir samfélagið og störfin sem það missti, því ég er sannfærður um að í heilbrigðiskerfinu fer fram mesta verðmætasköpunin í samfélaginu. Þetta er grundvallaratriði sem aldrei má missa sjónar af. Fyrir sjúklinginn, einstaklinginn, jafnast ekkert á við lækninguna." Bygging nýs Landspítala ekki stöðvuð Ýmsir hafa bent á að í umræðum um niðurskurð innan heilbrigðiskerfisins hafi samtímis sprottið upp nýjar stofnanir eða eldri blásið út sem nær væri að þrengja að áður en gengið er enn nær sjúkrahúsunum og heilsugæslunni. Þar er verið að tala um Geislavarnir ríkisins, Lyfjastofnun ríkisins, Lýðheilsustofnun og Landlæknisembættið. Ertu að beina sjónum þínum að þeim ? „Já, við erum að gera það. Og það er alveg rétt að þessar stofnanir þurfa að vera í stöðugri sjálfskoðun og endurmótun. Innan skamms ætla ég að boða starfsmenn þessara stofnana til málþings þar sem ég mun kalla eftir hugmyndum um endurskipulagningu. Þá vil ég horfa til þess sem best gerist hjá grannríkjum okkar. Ég vil einnig segja að þessar stofnanir hafa unnið mjög gott starf og vandi þeirra hefur oft verið sá að ekki er hlustað nægilega vel á þær. Ráðleggingar Lýðheilsustöðvar hafa þannig ítrekað verið hunsaðar og aðrir og þrengri hagsmunir teknir fram yfir lýðheilsu þjóðarinnar. Nefni ég þar ákvörðun fyrri ríkisstjórnar um að fella niður skatt af sykruðum gosdrykkjum og Lýðheilsustöð var beinlínis sagt að þegja þegar hún benti á heilsufarsvandann sem af þessu myndi hljótast." Bygging nýs Landspítala hefur staðið fyrir dyrum en nú eru blikurá lofti. Nýjar hugmyndir voru kynntar í vor sem virðast ódýrari en fyrri áætlanir. Muntu beita þér fyrir því að framkvæmdir hefjist við nýja sjúkrahúsbyggingu ? „Ég hef mjög mikinn áhuga á að keyra það mál áfram og mér þykja rök forsvarsmanna Landspítalans sannfærandi að þegar á heildina er litið felist þjóðhagslegur spamaður í því að hefja bygginguna fremur en fresta henni. Við þurfum að láta geysilega fjármuni árlega í alls kyns rekstrar- og skipulagsmál sem ný spítalabygging myndi draga stórlega úr. Þó að núna þurfi að draga saman seglin verða einhverjar framkvæmdir í þjóðfélaginu og þetta er ein sú framkvæmd sem á tvímælalaust rétt á sér við allar aðstæður." Eru peningarnir fyrir sölu Símans tiltækir einhvers staðar? „Það var auðvitað stórfenglegur pólitískur blekkingaleikur sem stjórnvöld léku gagnvart almenningi til að gera mjög óvinsæla aðgerð vinsæla. Það voru meira og minna staðlausir stafir að segja að peningarnir væru sérstaklega eyrnamerktir þessari framkvæmd. Eitthvað af þessum peningum hefur nýst til uppbyggilegra verkefna, sem betur fer, en í framhaldinu munum við verða að tryggja aðra fjármuni til þessara framkvæmda. Við þurfum hins vegar að fara mun hægar í sakirnar en áður var áformað. Ég tel mjög brýnt að þessu verkefni verið fram haldið og það ekki stöðvað." Þú hefur nú þegar kynnt áform um skatt á sykraða 522 LÆKNAblaðið 2009/95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.