Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 30
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Tafla I Grunnupplýsingar.
Aldur (ár) miðgildi (n=76) 74(21-92)
Karlar 48/77 (62%)
Miðgildi lengdar endurlifgunar (mín) (n=74) 15(1-120)
Tími hjartastopps (n=80)
- Dagvinna (8:00-16:00) 25 (31 %)
- Utan dagvinnu (16:01-07:59) 55 (69%)
Staðsetning (n=67)
- Aðrar deildir 41 (58%)
- Hjartadeildir 26 (42%)
Grunnendurlífgun fyrir komu teymis (n=61) 44 (72%)
Heildarfjöldi: 80 sjúklingar.
rannsókn, þar með talið þegar sjúkrabifreið
kom með sjúkling utan úr bæ í hjartastoppi á
bráðamóttöku. Þetta var gert til að geta metið
umfang starfsemi endurlífgunarteymanna. Við
mat á árangri endurlífgunartilrauna á sjúkrahús-
inu voru hins vegar aðeins talin með tilfelli þar
sem inniliggjandi sjúklingar fóru í hjartastopp.
Hjartastopp á barnadeildum voru þó ekki talin
með. Við tölfræðilegan samanburð á hópum
var notað Pearson kí-kvaðrat próf og Wilcoxon-
Mann Whitney-próf þegar við átti. Munur var
talin marktækur ef p<0,05. Vísindasiðanefnd
Landspítala og Persónuvernd veittu leyfi fyrir
þessari rannsókn.
voru jafnóðum, en viðbótarupplýsingar sóttar
í sjúkraskýrslur ef þörf var. Skráning á endur-
lífgunartilraunum hófst með skipulögðum hætti
í upphafi árs 2006. Vissan aðlögunartíma þurfti
á þessu fyrirkomulagi, að fylla út staðlaðar
skýrslur um endurlífgun jafnharðan þar til fullar
heimtur fóru að verða á þeim. Þetta varð til
þess að í sumum tilfellum vantaði upplýsingar
að einhverju eða jafnvel öllu leyti. Ef ekki voru
skráðar upplýsingar um nafn eða kennitölu
sjúklings var ekki hægt að skoða þau tilvik nánar.
Símavakt Landspítala skráir öll útköll og þannig
er hægt að fylgjast með fjölda útkalla og heimtum
á endurlífgunarskýrslum. Öll útköll teymanna
voru tekin með í upphafsskoðun gagna í þessari
Tafla II. Endurlífgunartilraunir á Landspítala.
Lifðu Létust p-gildi
Heildarfjöldi (n=80) 55 (69%) 25 (31 %)
Staðsetning (n=80)
- Hjartadeild 25 8 0,26
- Almenn deild 30 17
Kyn (n=77)
- Karlar 33 15
- Konur 20 9
Upphafstaktur (n=80)
- Sleglatakttruflanir 21 1
- Rafleysa eða rafvirkni án dæluvirkni 18 19 0,002*
- Annað/óþekkt 16 8
Grunnendurlífgun fyrir komu teymis (n=61)
- Ekki beitt 11 5
- Beitt 32 13
Tími hjartastopps (n=80)
- Dagvinna (8-16) 16 9 0,54
- Utan dagvinnu (16:01-7:59) 39 16
Aldur (ár) (n=76) miðgildi 73(21-88) 80.5 (43-92) 0,03
Lengd endurlifgunar (mín) (n=74)-miðgildi 15(1-70) 14(1-120) 0,69
Aðeins borin saman lifun þeirra sem höfðu sleglahraðtakt á móti rafleysu eða rafvirkni án dælivirkni.
Niðurstöður
Heildarútköll endurlífgunarteyma
Endurlífgunarteymi Landspítala voru kölluð út
alls 311 sinnum á þessum tveimur árum, þar af
voru 113 útköll í Fossvogi og 198 við Hringbraut.
Útkallsástæðum var skipt eftir á í fjóra flokka.
Fullnægjandi gögn til slíkrar flokkunar reyndust
vera til fyrir 264 af þessum 311 tilfellum (84,9%).
Það takmarkaði þessa rannsókn að ekki reyndust
fullnægjandi gögn fyrir alla sjúklinga. í gögnum
þeirra 80 sjúklinga sem voru skoðaðir nánar
vegna þess að þeir höfðu farið í hjartastopp inni
á sjúkrahúsinu og þurft endurlífgun vantaði
stundum vissar upplýsingar. Gerð er skilmerkilega
grein fyrir því hvað margir hafa fullnægjandi
upplýsingar skráðar þar sem við á í töflum og í
niðurstöðukafla.
í fyrsta flokk fóru útköll þar sem sjúklingar
höfðu farið í hjartastopp inni á sjúkrahúsinu
og endurlífgunarteymi verið kallað til og gerð
tilraun til endurlífgunar. Þetta voru alls 80 (30%)
af þessum 264 útköllum. í öðrum flokki voru þau
útköll þar sem sjúklingur hafði farið í hjartastopp
en þegar verið endurlífgaður (til dæmis gefið
rafstuð af starfsfólki á þræðingastofu, hjartadeild
eða bráðamóttöku) áður en teymið kom á
útkallsstað og því ekki þörf á endurlífgunartilraun
af hálfu teymisins. í þessum hópi voru 40 (15%)
sjúklingar, og þessum flokki tilheyrðu jafnframt
sjúklingar sem komu í hjartastoppi utan úr
bæ og teymin tóku við og héldu áfram með
endurlífgunartilraunum. Þannig voru alls 45%
allra útkalla (flokkur 1 og 2) vegna hjartastopps.
Þriðji flokkurinn, 94 (36%) sjúklingar, voru þeir
sem ekki þurfti að endurlífga en veikindi þeirra
eigi að síður þess eðlis að sérhæfðar aðstoðar
endurlífgunarteymis þurfti við. í flokki fjögur
voru þau 50 tilfelli (19%) þar sem metið var eftir
á að sennilega hefði ekki verið þörf fyrir aðkomu
endurlífgunarteymanna.
510 LÆKNAblaöið 2009/95