Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 36
Tilfelli mánaðarins F R Æ Ð I G R E I T I L F E L L I M N A R Á N A Ð A R I N S Oskarsson T, Ardal B Kristjansson S. Case of the month. A boy with mysterious rash lcel Med J 2009; 95: 515-6 Blöðrumyndandi útbrot sem þessi geta verið af margvíslegum toga. Ber þar helst að nefna ertings- og ofnæmis-snertiexem (irritant and allergic contact dermatitis), Steven-Johnsons heilkenni, lyfjaútbrot, bruna og sólarútbrot. Sólarútbrot eru ýmist sólarofnæmi/exem (photoallergy) eða sólarútbrot sem rekja má til lyfja, plöntuefna eða annarra efna sem framleidd eru í líkamanum eins og til dæmis porfyríns (phototoxicity). Algengast er að plöntur valdi útbrotum með ræsingu ónæmiskerfisins, annaðhvort með týpu I ofnæmi eins og eftir frjókorn (urticarial dermatitis) eða við týpu IV ofnæmi eins og sést eftir brenninetlur (allergic contact dermatitis). Plöntur geta einnig valdið útbrotum óháð ræsingu ónæmiskerfisins og er þá um ertings-snertiexem og ljósertiexem (phytophotodermatitis) að ræða.1'2 í þessu tilfelli kom saga og útbreiðsla útbrotanna heim og saman við ljósertiexem og má rekja orsökina til ljósnæmra efna, svokallaðra fúranókúmarína sem vitað er að finnast í risahvönn. Fúranókúmarín eða fúrókúmarín er að finna í ýmsum plöntum og ávöxtum (tafla I), en kúmarín (til dæmis warfarín) sem meðal annars eru notuð sem blóðþynningarlyf, eru efnafræðilega mjög skyld þeim. Algengustu tegundir fúranókúmarína eru psoralen, 5-MOP (5-methoxypsoralen), 8-MOP (8-methoxypsoralen), angelicin og bergapten.3 Risahvönn (Heracleum mategazzianum) er víða að finna á íslandi. Geta risahvannir orðið allt að 4-5 metrar að hæð og vaxa best í rökum og frjósömum jarðvegi, til dæmis við árbakka. Mun meira er af fúranókúmarínum í risahvönnum en algengari hvannartegundum eins og ætihvönn og valda þau því verri útbrotum en fúranókúmarín úr öðrum plöntum.3'4 Talið er að UV-A geislar sólarljóss, með bylgju- lengd 320-380 nm, umbreyti fúranókúmarínum Tafla I. Dæmi um algengar plöntur sem innihalda fúranókúmarín. Risahvönn Límónur Sellerí Gulrótarlauf og -stönglar Fíkjulauf Næpa Steinselja Dill Sumar tegundir af sóleyjum Sumar tegundir af sinnepsplöntum í óstöðug efnasambönd sem valdið geta skaða á frumum líkamans. Frumuskemmdimar verða fyrir tilstilli samtengingar (cross linking) við DNA-sameindir, frumuhimnur og ýmis prótein. Þetta er ólíkt sólarútbrotum vegna lyfja, til dæmis tetrasýklína, þar sem vefjaskemmdir verða vegna súrefnis-radikala.1-2 Einkenni ljósertiexems koma venjulega fram eftir 12-24 klukkustundir og ná hámarki innan 48-72 klukkustunda. Roði er algengastur en í svæsnum tilfellum geta komið fram blöðrur og sár. Ljósertiexem sést oftast á handarbökum því þar eru plöntuefnin gjarnan í mestri þéttni og húðin jafnframt útsett fyrir sólarljósi. Umfang útbrotanna eru einstaklingsbundin, og ráðast meðal annars af þykkt og rakastigi húðarinnar, lit og fjölda hársekkja.2 Afbrigðileg útbrotamynstur sjást gjarnan sem getur hjálpað til við greiningu eins í þessu tilfelli.5-6 Eftir að útbrotin hverfa er algengt að sjá oflitun (hyperpigmentation) á húð sem getur tekið vikur eða ár að hverfa. Orsökin er talin vera útfelling melaníns í húð í kjölfar frumudauða og aukinni örvun sortufrumna.1 Ekki er til sértæk meðferð við ljósertiexemi. Drengurinn í þessu tilfelli var meðhöndlaður með brunameðferð í samráði við lýtalækna, meðal annars með ríkulegri vökvagjöf, verkja- og kláðastillandi töflum auk prednisólóns vegna umfangs útbrotanna. Meðferðin gekk vel og útskrifaðist hann heim til sín eftir 10 daga. Þremur mánuðum síðar voru lítil ummerki eftir útbrotin og oflitun nánast horfin. Fúranókúmarín finnast í ýmsum matvælum og plöntum og því mikilvægt að brýna fyrir fólki að þessi efni berist ekki á húð sem útsett er fyrir sólarljósi. Þetta á sérstaklega við um börn enda húð þeirra mun viðkvæmari en hjá fullorðnum. Greining: Ljósertiexem (Phytophotodermatitis) Heimildir 1. Epstein JH. Phototoxicity and photoallergy. Semin Cutan Med Surg 1999; 18; 274-84. 2. Baugh WP, Kucaba WD, Bamette Dj, Chen CL. Phytophotodermatitis. www.emedicine.com; 2007. 3. Lagey K, Duinslaeger L, Vanderkelen A. Burns induced by plants. Bums 1995; 21: 542-3. 4. Pira E, Romano C, Sulotto F, Pavan I, Monaco E. Heracleum mantegazzianum growth phases and furocoumarin content. Contact Dermatitis 1989; 21: 300-3. 5. Carlsen K, Weismann K. Phytophotodermatitis in 19 children admitted to hospital and their differential diagnoses: Child abuse and herpes simplex vims infection. J Am Acad Dermatol 2007; 57(5 Suppl): S88-91. 6. Mehta AJ, Statham BN. Phytophotodermatitis mimicking non-accidental injury or self-harm. Eur J Pediatr 2007; 166: 751-2. 516 LÆKNAblaðið 2009/95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.