Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 66

Læknablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 66
■AFMÆLI LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR 1909-2009 Heilsuverndarstöðin 1953-2006 Jón Ólafur ísberg sagnfræðingur jonotafur<Salth\ngi.is Heilsuverndarstöðin í Reykjavík, Barónsstíg 47, stendur á horni Egilsgötu og Barónsstígs. Húsið teiknaði Einar Sveinsson sem var húsameistari ríkisins á árunum 1934-1973 og var það sérhannað fyrir starfsemina. Heilsuverndarstöðin er sú bygging sem Einar Sveinsson er einna þekktastur fyrir en Gunnar H. Ólafsson teiknaði húsið með honum. Einar átti ríkan þátt í að móta ásýnd borgarinnar og teiknaði margar kunnar byggingar í borginni. Byggingin er að mestu í módemískum stíl en með nokkrum klassískum útfærslum og fagurfræðilegum útúrdúrum sem gera hana eftirminnilega. Það var árið 1946 að bæjarstjórn Reykjavíkur kaus nefnd sem átti að gera tillögur um „byggingu og fyrirkomulag fullkominnar heilsuverndar- stöðvar". Hafist var handa um bygginguna árið 1950 og hluti hennar tekinn í notkun árið 1953 en húsið var ekki formlega vígt fyrr en 2. mars 1957. Heilsuverndarstöðin átti að annast öll þau verkefni sem voru á vegum borgarlæknis og ýmis félagasamtök höfðu með höndum en þó einkum starfsemi Hjúkmnarkvennafélagsins Líknar. Líkn var stofnað árið 1915 og vann brautryðjendastarf á sviði heilsuvemdar í Reykjavík en með tilkomu heilsuverndarstöðvarinnar var félagið lagt niður þar sem „stefnumál þess væri nú framkvæmt og framtíðardraumur þess rættist". Orðið heilsuvemd kom fyrst fyrir í lögum frá árinu 1944 og þá var eingöngu átt við berklavamir. Verkefnin stöðvarinnar voru samkvæmt lögum um heilsuvemd frá árinu 1955 berklavarnir, ungbamavemd, mæðravernd, skólaeftirlit, tann- vernd, íþróttaeftirlit, atvinnusjúkdómavarnir, kynsjúkdómavarnir, áfengisvarnir, geðvernd, almennar sjúkdómavarnir, almennar þrifnaðar- varnir og aðstoð við fatlaða og vangefna. Auk þessa var Heilsuverndarstöðin miðstöð heimahjúkrunar, sjúkrahús og slysavarðstofa allt þar til Borgarspítalinn tók til starfa síðla árs 1967 og nokkru lengur sem langlegudeild. Upphaflega voru þrjár deildir í þeirri álmu sem veit að Barónsstíg: ein fyrir barnavernd, þar sem haft var eftirlit með ungbörnum og stálpuðum börnum. Þá var þar deild sem hafði eftirlit með barnshafandi konum og veitti þeim leiðbeiningar en í enda álmunnar var deild fyrir kynsjúkdómalækni. í álmunni sem veit að Egilsgötu voru berklavarnirnar, en þær voru einnig á annarri hæð í aðalbyggingunni og þar var líka röntgenstofa og rannsóknarstofa. A neðstu hæð aðalbyggingarinnar var slysavarðstofa. A tveimur efstu hæðunum var heilsuverndin og þar var einnig húsrúm fyrir sjúklinga og gert ráð fyrir að þar gætu verið allt að 50-60 sjúkrarúm. Sjúkrahúsrekstur í heilsuverndarstöðinni varð umfangsmeiri en gert hafði verið ráð fyrir í upphafi og kom til af illri nauðsyn. Miklar vonir voru bundnar við starfsemi Heilsuvemdarstöðvarinnar þegar hún var tekin í notkun og óhætt er að fullyrða að hún hafi staðið undir væntingum. Þetta var á tímum mikillar sérhæfingar og var byggingin og starfsemin skipulögð með það í huga. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur kom upp útibúi í Langholti þegar í upphafi, síðar í Árbæ og Breiðholti eftir því sem þau hverfi byggðust. Á Heilsuverndarstöðinni var sinnt almennri heilsuvernd og heimahjúkrun, en heimilislæknar störfuðu á sínum stofum úti um bæinn. Hugsunarhátturinn breyttist og tími þess sem kallað hefur verið „heildræn" þjónusta rann upp, og rétt þótti að sameina störf heimilislækna og heilsuvernd. Heilsuverndarstöðin var forveri og fyrirmynd heilsuverndarstöðva sem byrjað var að taka í notkun eftir 1970, sú fyrsta var heilsugæslustöðin í Árbæ 1977, en þær gegndu þó ekki eins viðamiklu hlutverki og Heilsuverndarstöðin enda aðstæður aðrar. Hlutverk Heilsuverndarstöðvarinnar varð óljóst með tilkomu heilsugæslustöðva og ýmissa annarra breytinga en ríki og borg sem áttu húsið saman gátu ekki komið sér saman um framtíðarnot af húsinu. Árið 2005 „lauk 15 ára stríði" ríkis og borgar um Heilsuverndarstöðina og var ákveðið að selja húsið á almennum markaði. Allri heilsuverndarstarfsemi lauk þar árið 2006. Sýnilegur árangur af heilsuvemd er oft á tíðum ómælanlegur enda er um samspil ólíkra þátta að ræða. Það virðist ljóst að starfsemi Heilsu- verndarstöðvarinnar hafi skipt sköpum fyrir batnandi heilsufar Reykvíkinga. Reykvíkingar voru í forystu í heilbrigðismálum landsmanna á þessum tíma og ruddu brautina fyrir nýskipan í heilbrigðismálum. Þar er fyrst og fremst að þakka Læknafélagi Reykjavíkur, borgarlækni og borgarstjórn. 546 LÆKNAblaðið 2009/95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.