Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2010, Page 7

Læknablaðið - 15.03.2010, Page 7
Kristján Erlendsson krerlend@landspitali. is Höfundur er framkvæmdastjóri Vísinda-, mennta- og gæðasviðs Landspítala, og varadeildarforseti læknadeildar HÍ. Clinical Research Center at Landspitali -University Hospital Kristján Erlendsson MD, Excecutive Director of Research, Education and Quality, Landspitali - University Hospital and Associate Professor, Associate Dean of Students, Vice Dean of Medical Faculty, University of lceland. RITSTJÓRNARGREINAR Klínískt rannsóknasetur Landspítala og Háskóla íslands Ein af aðalröksemdunum fyrir því að sameina Ríkisspítalana og Sjúkrahús Reykjavíkur voru að þannig gæfist tækifæri til þess að draga saman á eina stofnun þá háskólastarfsemi sem fram hafði farið á sjúkrahúsunum báðum, en verið dreifð og lítt skipulögð fram að þeim tíma. Hún hafði þó vissulega verið til staðar en samanburður og samkeppni við erlenda háskólaspítala hvatti í auknum mæli til þess að vísinda- og kennslustarfsemi yrði efld og viðurkennd sem eðlilegur þáttur með þjónustu við sjúklinga og samofin henni í daglegu starfi háskólaspítalans. Ýmis skref hafa síðan verið tekin á þessari leið, með formlegri stofnun skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar en ekki síst með formlegum samstarfssamningi spítalans og Háskóla íslands sem fyrst var gerður 2001 og síðast endurskoðaður árið 2006. Við opnun Klínísks rannsóknaseturs Landspítala og Háskóla íslands 15. janúar var stigið enn eitt skrefið í þá átt að viðurkenna og styrkja háskólastarfsemi á spítalanum. Þannig er jafnframt unnið að því að uppfylla lagafyrirmæli nýrra heilbrigðislaga þar sem er kveðið á um að spítalinn skuli stunda vísindarannsóknir og veita vísindamönnum á sviði heilbrigðisvísinda aðstöðu til þess að stunda rannsóknir sínar. Klínískar rannsóknamiðstöðvar hafa lengi verið til á erlendum háskólasjúkrahúsum og hafa á síðustu árum víða þróast yfir í einingar þar sem skipulögð hefur verið sameiginleg þjónusta við rannsóknir og vísindamenn. Þær hafa létt vísindamönnum ýmiss konar umsjónarstarf, stuðlað að samnýtingu tækja og húsnæðis og greitt fyrir samstarfi og samskiptum skyldra rannsóknarhópa. Með uppbyggingu öflugra innviða hafa vísindamennimir getað einbeitt sér að sínum sérsviðum og skapast hefur hvetjandi umhverfi, og meiri sókn í alþjóðlega styrki og meiri eftirtekju á því sviði. Þannig er hægt að styðja við eða ýta úr vör starfsemi sem kann í upphafi að þurfa sérstakan stuðning, en er háskólaspítala nauðsynleg til að þar megi stunda klínískar rannsóknir sem geta vegið þungt á alþjóðlegum vettvangi. Þá hafa þróast innan þessara miðstöðva umsjón gagnabanka, lífsýnabanka og þar orðið aðsetur ýmiss konar þróunar, vinnu að málefnum persónuvemdar og læknisfræðilegrar siðfræði. Ekki er óalgengt að þessar stofnanir séu sameign spítala og háskóla til að nýta megi þekkingu og möguleika stofnananna beggja. Hið nýja íslenska klíníska rannsóknasetur hefur leitað fyrirmynda og ráða hjá erlendum stofn- unum, í Bergen, Stokkhólmi og Minneapolis. Lögð hefur verið áhersla á að tvöfalda ekki þjónustu og unnið að skipulagningu samstarfs við Rannsóknarþjónustu HÍ, til dæmis er varðar styrkjaöflxm, umsjón hugverkaréttar og einkaleyfa. Þá verður áfram byggt á reynslu sem fengist hefur á Landspítala í samningagerð við íslenskar og erlendar rannsóknastofnanir og lyfjafyrirtæki. Það sama á við um þjónustu við þá sem hlotið hafa rannsóknastyrki. Árið 2008 hafði Vísinda-, mennta- og gæðasvið til dæmis umsjón með um 280 mkr. styrkjafé vísindamanna Landspítala og HÍ. Þá er upplýsingasöfnun um vísindastarf á spítalanum komið í fast form. Þær nýju áherslur sem nú koma til auk bættra innviða verður aukin aðstoð við gerð styrkumsókna til Evrópusambandsins og NIH og menn hvattir til að nýta þá möguleika sem í boði eru. Lögð verður áhersla á að skipuleggja og efla klínískar lyfjarannsóknir og skapa vettvang til að mæta breyttum kröfum lyfjafyrirtækja um nútímalega aðstöðu og taka þátt í að skapa tækifæri til framþróunar. Þá verður unnið að því að efla og hvetja til nýsköpunar en víðast er á háskólaspítölum kallað eftir æ meiri og skipulagðari hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna og einkaleyfisumsókna. Nýta þarf alla möguleika til að auka fjárstreymi til vísindarannsókna; nýjar styrkumsóknir, sérstakar tekjuaflanir og nýir samningar um lyfjarannsóknir og hagnýtingu rannnsóknaniðurstaðna. Setrið verður rekið sem hluti vísinda- mennta- og gæðasviðs og ráðinn hefur verið verkefnastjóri. Setrið verður undirstaða starfsemi sérstakra rannsóknastofa í hjartasjúkdómum, nýrnasjúkdómum, lífverkfræði, bæklunarsjúk- dómum, krabbameinum, öldrunarsjúkdómum og hjúkrun svo nokkuð sé nefnt. Grunnurinn verður sem fyrr náin samvinna Landspítala og heilbrigðisvísindasviðs HÍ. LÆKNAblaðið 2010/96 155

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.