Læknablaðið - 15.03.2010, Side 21
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI OG YFIRLIT
Tafla II. Yfirlit yfir sjúklingana, tegund lifrarskaða og orsakatengsl vöru og lifrarskaða samkvæmt skilmerkium WHO oq
RUCAM.
sjúkl. nr. kyn aldur (ár) biðtími (mán.) tegund skemmdar vefsýni endurgjöf vöru orsakatengsl (WHO) orsakatengsl (RUCAM)
1 kvk 46 1 HC l'á nei líkleg líkleg
2 kvk 47 ? HC nei nei möguleg möguleg
3 kvk 29 4 HC iá nei möguleg möguleg
4 kvk 44 4-5 chol nei jákvæð örugg líkleg
5 kk 78 4-5 chol nei nei líkleg líkleg
HC = lifrarfrumuskaði
chol = gallstíflulifrarskaði
Biðtími er tími frá upphafi inntöku og þar til einkenni komu fram.
Endurgjöf (rechallenge) er jákvæð ef sama vara er tekin inn síðar og sömu sjúkdómseinkenni koma aftur fram, sbr. skilmerki WHO um
orsakatengsl.
Tilfelli 3:
29 ára gömul heilsuhraust kona kom á
bráðamóttöku og hafði verið með gulu og
kláða í nokkra daga. Hún hafði fundið fyrir
kláða af og til í eitt ár. Konan byrjaði að
taka Yasmin (dróspírenón og etinýlestradíól)
getnaðarvamartöflur 6 mánuðum fyrir innlögn
en einnig Myoplex próteindrykk. Hún hafði
tekið Treo (asetýlsalisýlsýra og koffein) og
Ibúkód (íbúprófen og kódein) af og til við höfuð-
verk og notað Herbalifevörur í fjóra mánuði.
Engar rannsóknir studdu aðra lifrarsjúkdóma,
þar með talda lifrarbólgu vegna sjálfsnæmis.
Lifrarsýni: Áberandi bólgubreytingar með
blandaðri bólgufrumuíferð með eitilfrumum,
plasmafrumum, stöku kymingum og einnig sáust
sums staðar rauðkyrningar. í einu portalsvæði
sást eitilfrumuþyrping. í lobuli sást gallstífla í
smæstu gallgöngum. Breytingarnar vom taldar
samrýmast bráðri lifrarbólgu með útlit sem helst
benti til lyfja- eða efnaorsakaðrar lifrarbólgu eða
sjálfsnæmislifrarbólgu.
Konan hætti að nota fæðubótarefni og lyf.
Lifrarpróf lækkuðu og vom orðin nánast eðlileg
innan þriggja mánaða. Hún hefur síðan notað
íbúprófen án vandamála.
Tilfelli 4:
44 ára gömul áður heilsuhraust kona var lögð inn
vegna kviðverkja og gulu. Hún byrjaði að taka
lyfið Zyban (búprópíon) 20 dögum áður og hafði
verið að nota Herbalifevörur í 5-6 mánuði. Hún
hætti að taka Herbalife og búprópíon og urðu
lifrargildi eðlileg. Nokkrum mánuðum síðar fór
hún aftur að taka Herbalifevömr og jafnframt
birkiösku. í kjölfarið fékk hún kláða og hækkun á
lifrarprófum á ný. Hætti þá notkun Herbalife en
hélt áfram að nota birkiösku. Lifrarpróf lækkuðu
hratt og urðu eðlileg eftir um tvo mánuði.
Rannsóknir bentu ekki til annarra lifrarkvilla.
Tilfelli 5:
78 ára karlmaður með Alzheimerssjúkdóm og
háþrýsting reyndist við reglubundið eftirlit með
hækkun á lifrarprófum með gallstíflumynd. Lyf:
Enalapríl til margra ára. Hafði notað Herbalife-
vörur í 4-5 mánuði. Hætti að nota Herbalife og
enalapríl og lifrarpróf urðu eðlileg.
ANA var jákvætt í lágum títra (>1:40<1:100) en
blóðvatnspróf fyrir lifrarbólguveirum og ómun
vom neikvæð.
Allir sjúklingarnir notuðu fleiri en eina vöruteg-
und frá Herbalife. Tafla I sýnir hvaða Herbalife-
vömr voru notaðar, upptalningin er ekki tæmandi
en teknar em með þær vömr sem innihalda jurtir.
Tafla II er yfirlit yfir sjúklingana, biðtíma fram
að einkennum, tegund lifrarskaða og orsakatengsl
sem voru metin með tveimur mismunandi
aðferðum, RUCAM og WHO-UMC.
Tafla III sýnir lifrargildi sjúklinga. í öllum
tilvikum voru prótrombín-tími og albúmín eðlileg.
Skoðuð voru fimm tilfelli til viðbótar sem voru
sjúklingar með lifrarskaða sem tóku Herbalife,
tvö tilfelli á Landspítala, eitt utan spítala og
tvær aukaverkanatilkynningar hjá Lyfjastofnun.
Þessir fimm sjúklingar voru ekki teknir með
í þessari samantekt vegna þess að í öllum
tilfellum voru til staðar aðrar vel hugsanlegar
Tafla III. Taflan sýnir hæstu lifrargildi fyrir hvern sjúkiing (margfeldi afefri eðlilegum
mörkum).
sjúkl. nr. kyn bílirúbínmörk <20 mmol/L ALPmörk 35-105 U/L ALTmörk <70 kk, <45 kvk U/L
1 kvk 311 (15,6) 149 (1,4) 1134(25,2)
2 kvk 190(9,5) 407 (3,9) 2600 (57,8)
3 kvk 247 (12,3) 547 (5,2) 2487 (55,3)
4 kvk 64 (3,2) 231 (2,2) 2637 (58,6)
5 kk 26 (1,3) 712(6,8) 456 (6,5)
ALP=alkalískur fosfatasi
ALT=alanín amínótransferasi
LÆKNAblaðið 2010/96 169