Læknablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 22
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLl OG YFIRLIT
skýringar á lifrarskaðanum en Herbalife. Það
er þó ekki útilokað að Herbalife hafi átt þátt í
lifrarvandamálum einhverra þessara sjúklinga.
Umræða
Hér er lýst fimm sjúklingum með eitrunar-
lifrarbólgu sem grunur lék á að mætti rekja til
neyslu Herbalife. Ályktun um orsakatengsl við
Herbalife byggist á því að sjúkdómseinkenni
komu fram þegar Herbalife hafði verið neytt
í nokkurn tíma, einkenni hurfu þegar neyslu
Herbalife var hætt og ekki var til staðar önnur
sennilegri skýring. Þetta styrkist enn frekar af einu
tilfelli (nr. 4) þar sem endurtekin neysla Herbalife
síðar leiddi til sömu eða svipaðra einkenna
(positive rechallenge). Mat á orsakasamhengi
samkvæmt WHO-UMC í þessu tilfelli var að
tengsl við Herbalife væru örugg en samkvæmt
RUCAM líkleg, en síðarnefnda flokkunin býður
ekki uppá að tengsl séu örugg. í hinum tilfellunum
fjórum voru orsakatengsl ekki eins ákveðin.
í öllum sjúklingunum voru hækkuð lifrarensím
í blóði sem samræmast lifrarskaða. Sama má
segja um lifrarsýni sem voru tekin í tveimur
sjúklinganna en vefjabreytingar sýndu áberandi
bólgubreytingar sem vel geta samræmst
eitrunarlifrarbólgu af völdum lyfja eða eiturefna.
Þessar rannsóknir sýndu ekki alltaf alveg sömu
sjúkdómsmynd og sama er uppi á teningnum
í þeim tilfellum sem áður hefur verið lýst
en þetta gæti skýrst af áverkun mismunandi
efna í mismunandi skömmtum eða blöndum
ásamt mismunandi ástandi sjúklinganna og
hugsanlegum erfðabreytileika. Þetta mælir þó alls
ekki gegn því að um orsakasamband sé að ræða.
Sjúklingarnir voru rannsakaðir með venju-
bundnum hætti með tilliti til annarra mögulegra
lifrarsjúkdóma. í einu tilfelli (nr. 1) var hækkun
á kjarnamótefnum sem geta myndast hjá
sjúklingum með sjálfsnæmislifrarbólgu og
orkukornamótefnum sem sjást hjá sjúklingum
með frumkomna gallskorpulifur (primary biliary
cirrhosis). Hins vegar lækkuðu þessi mótefni og
lifrarpróf urðu eðlileg þegar notkun Herbalife var
hætt og klínísk mynd og vefjasýni samrýmdist
ekki frumkominni gallskorpulifur. Þekkt er að
við eitrunarlifrarbólgu getur komið fram hækkun
slíkra mótefna.13 Kjarnamótefni voru einnig til
staðar í lágum styrk í tilfelli nr. 5.
í sumum tilfellum var ekki hægt að útiloka þátt
lyfja eða annarra náttúruefna. í tifelli nr. 2 hafði
sjúklingurinn einnig neytt sólhatts sem virðist
geta valdið eitrunarlifrarbólgu.10-14 í tifelli nr. 3 var
sjúklingur jafnframt að taka getnaðarvarnarlyfið
Yasmin (dróspírenón og etinýlestradíól).
Getnaðarvarnarhormón geta valdið lifrarskaða
en þá er nánast alltaf um gallstíflumynd að ræða
en svo var ekki í þessu tilfelli. Lifrarskaði er ekki
þekkt aukaverkun Yasmin (sjá Sérlyfjaskrá). Sami
sjúklingur hafði einnig notað asetýlsalisýlsýru og
íbúprófen í litlu magni með hléum við tilfallandi
höfuðverk. Lifrarskaða hefur verið lýst eftir
íbúprófen en sjúklingurinn hóf aftur notkun þess
án vandkvæða. Asetýlsalisýlsýra getur einnig
valdið lifrarskaða en þá er yfirleitt um stöðuga
notkun og hærri skammta að ræða en í þessu
tilfelli.15
Sjúklingur nr. 5 hafði til margra ára tekið lyfið
enalapríl en lifrarskaða hefur verið lýst eftir
notkun þess, jafnvel eftir langvarandi notkun.16
Þetta virðist þó sjaldgæft og tímatengsl við
Herbalifenotkun gera það að líklegri orsök fyrir
lifrarskaða hjá þessum sjúklingi.
Birtar hafa verið niðurstöður rartnsóknar17 þar
sem lýst er 10 sjúklingum með lifrarskaða sem að
líkindum tengjast notkun Herbalife. Einnig hafa
verið birtar niðurstöður ísraelskrar rannsóknar
þar sem lýst er 12 sjúklingum með lifrarskemmdir
sem líklega tengjast notkun á Herbalife.18-19 Á
Spáni var lýst fjórum tilfellum með lifrarskaða í
tengslum við notkun Herbalife.20 Að lokum birtist
grein21 þar sem lýst er tveimur sjúklingum með
lifrarskemmdir af völdum Herbalife sem rakið
var til mengunar með Bacillus subtilis. Ef allt er
talið saman hafa verið birt 28 tilfelli en líkindin á
orsakatengslum við töku Herbalife eru missterk.
Þau fimm tilfelli sem hér er lýst bætast við
þau 28 sem áður hafa verið birt.17-18-21-22 Aðeins
er hægt að geta sér til um orsakirnar en líklegast
virðist að einhverjar af þessum vörum innihaldi
eitraðar jurtir.1 Það er athyglisvert að þeir
sjúklingar sem hér er sagt frá voru flestir að
taka sömu vörur frá Herbalife en sumar þeirra
innihalda einmitt jurtir sem vitað er að geta
valdið lifrarskemmdum; RoseOx og Herbalifeline
innihalda negul en í honum er evgenól sem
getur valdið lifrarskemmdum á svipaðan hátt og
parasetamól23 og Thermojetics inniheldur útdrátt
(extract) úr grænu tei sem einnig getur valdið
lifrarskemmdum.5 Þama kunna að leynast fleiri
eitraðar jurtir vegna þess að innihaldslýsingar
eru ekki alltaf fullkomnar og eiturefnafræði jurta
er iðulega vanrannsökuð. Vandamál af þessum
toga eru alls ekki bundin við vörur frá Herbalife
og nýlega var talsverð fjölmiðlaumræða um
megrunarvöruna LipoKinetix24 og Hydroxycut25
sem var auglýst til vaxtarræktar og megrunar
en LipoKinetix og sumar vörur af merkinu
Hydroxycut voru teknar af markaði vegna fjölda
tilfella af eitrunarlifrarbólgu.
Segja má að þau sjúkdómstilfelli sem hér
170 LÆKNAblaðið 2010/96