Læknablaðið - 15.03.2010, Síða 27
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
Lifrarskaði
af völdum lyfja
Einar S.
Björnsson
meltingarlæknir
Lykilorð: lifur, lyf, lifrarskaði.
Ágrip
Lifrarskaði af völdum lyfja er aukaverkun sem
hefur tengst mörgum mismunandi lyfjum þótt
sjaldgæf sé. Bein eitrunaráhrif tengjast of háum
skömmtum af parasetamóli en flest önnur lyf sem
orsaka lifrarskaða valda ófyrirsjáanlegum skaða.
Þó að ófyrirsjáanlegur skaði hafi upphaflega
verið talinn gerast óháð skammti hafa rannsóknir
nýlega sýnt að lifrarskaði af þessu tagi getur í
mörgum tilfellum verið háður skammti. Læknar
verða að hafa lifrarskaða vegna lyfja í huga hjá
öllum sjúklingum með afbrigðileg lifrarpróf eða
einkenni um lifrarsjúkdóm. Skaðinn getur bæði
klínískt og meinafræðilega líkst nánast öllum
þekktum lifrarsjúkdómum og engin meinafræðileg
auðkenni fyrirfinnast. Sjúkdómsgreiningin er
útilokunargreining. Hjá sjúklingum sem taldir
eru vera með lifrarskaða af völdum lyfja þarf að
stöðva inntöku viðkomandi lyfja, og sjúklinga
með gulu og/eða merki um lifrarbilun verður að
leggja inn á spítala og £ sumum tilfellum verður að
íhuga lifrarígræðslu.
Inngangur
Hægt er að skilgreina aukaverkanir lyfja sem
þær verkanir sem eru lyfinu ekki ætlaðar, valda
skaða og eiga sér stað við eðlilega skammta
af lyfinu. Lifrarskaði af völdum lyfja (DILI,
Drug-induced liver injury) og hepatotoxicity
eru orð yfir aukaverkanir lyfja sem hafa áhrif
á lifrarstarfsemina og þýða það sama en DILI
er mest notaða hugtakið yfir þetta fyrirbæri.
Flestar eitranir af völdum parasetamóls tengjast
of háum skömmtum af lyfinu. Það getur bæði
gerst við sjálfsvígstilraunir en einnig fyrir slysni
og virðist sjást í auknum mæli, til dæmis í
Bandaríkjunum.1 Þótt ófyrirsjáanlegur lifrarskaði
af völdum lyfja hafi verið talinn óháður skammti
lyfsins2 hefur nýlega verið sýnt fram á að lyf sem
hafa dagskammt sem er minni en 50 mg á dag,
valda mjög sjaldan lifrarskaða.3 DILI hefur vakið
aukinn áhuga á síðustu árum sökum þess að mörg
lyf hafa verið tekin af markaði vegna alvarlegs
lifrarskaða. DILI er líka ein aðalástæðan fyrir því
að þróun lyfja sem annars lofa góðu hefur orðið
að stöðva við klínískar prófanir.2 Hvað varðar flest
lyf er lifrarskaði mjög sjaldgæf aukaverkun og
er talin gerast hjá um það bil 1 af 10.000 - 1 af 50-
100.00 af þeim sem taka lyfið. í flestum klínískum
lyfjarannsóknum eru færri en 10.000 sjúklingar og
DILI hefur því aðallega uppgötvast eftir að lyfið er
komið á markað.
Faraldsfræði
Sú staðreynd að DILI er sjaldgæft leiðir til
erfiðleika við að gera faraldsfræðilegar rannsóknir
á þessu fyrirbæri. Skortur á kerfisbundnu
eftirliti gerir það að verkum að erfitt er að meta
algengið og enginn vafi er á að þetta er vanskráð
og lítið tilkynnt til heilbrigðisyfirvalda.2 Þar af
leiðandi er hið rétta algengi DILI að mestu leyti
óþekkt. Afturvirk rannsókn frá gagnagrunni
heimilislækna í Bretlandi4 áætlar nýgengi 2,4
tilfelli á hverja 100.000 íbúa á ári og mjög svipaðar
tölur birtust frá sænsku háskólasjúkrahúsi fyrir
10 ára tímabil.5 Mun áreiðanlegri grunnur til að
byggja nýgengi á DILI er framvirk og nákvæm
rannsókn frá Frakklandi frá skilgreindu þýði
í 80.000 manna borg í Norður-Frakklandi.6 Öll
tilfelli þar sem grunur var um DILI var safnað
á ákveðnum tíma og nýgengið var 13,9 tilfelli á
100.000 íbúa sem var að minnsta kosti 16 sinnum
algengara en þegar litið var til þeirra tilfella sem
tilkynnt voru til franska yfirvalda.6 Algengi DILI er
háð hinu klíníska umhverfi. Parasetamól og DILI
er algengasta orsök lifrarbilunar í Bandaríkjunum7
og í mörgum Evrópulöndum, þar á meðal Svíþjóð
(mynd l).8 DILI hefur reynst vera orsök hjá
2-10% af sjúklingum sem lagðir eru inn á spítala
vegna gulu9-10 og 13 af 147 (8,8%) sjúklingum
sem lagðir voru inn á vissu tímabili í Englandi
sem voru með hækkuð lifrarpróf höfðu DILI.11
A háskólasjúkrahúsi í Sviss var nýgengi DILI á
meðal sjúklinga sem lágu inni 1,4%.12 Aftur á móti
var lifrarskaðinn ekki nefndur í læknabréfinu
LÆKNAblaðið 2010/96 175