Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 44
U M R Æ Ð A L Æ K N I R O G F R É T T I Á H A I T I R Þrífst vel undir álagi - segir Hlynur Þorsteinsson þyrlu- og rústabjörgunarsveitarlæknir Ein segir að sér líki best að vera í ati og hraða í vinnunni og því ini hann vel við sig á slysa- og bráðadeildinni þar sem hann iir starfað frá árinu 1998. Þetta er læknirinn og tónlistarmaðurinn nur Þorsteinsson sem um árabil hefur verið fastur maður í lusveit Landhelgisgæslunnar og einnig í rústabjörgunarsveit dsbjargar, sveitarinnar fræknu sem fór til Port au Prince á Haiti Slfar jarðskjálftans í byrjun janúar. „Þetta var erfið ferð," segir Hlynur sem vill þó ekki gera meira úr sínum hlut en efni standa til. „Mitt hlutverk innan sveitarinnar er fyrst og fremst að fylgjast með ástandi manna og sjá til þess að allir haldi heilsu í gegnum þau erfiðu verkefni sem sveitin þarf að vinna við svona aðstæður." Hlynur hlaut sérfræðiréttindi í heimilislækn- ingum 1992 og starfaði sem heilsugæslulæknir á heilsugæslustöðvum í Reykjavík og nágrenni þar til hann réðst á Bráðamóttökuna. „Ég hafði áður verið súper-kandídat bæði á slysó eins og hún var áður og einnig á bráðamótttöku lyfjadeildar Landspítalans svo þetta er orðinn talsverður tími þegar allt er lagt saman. Nú er þetta að breytast aftur ef bráðamóttakan á Hringbraut færist til okkar í Fossvoginum að nokkru eða jafnvel öllu leyti." Á undanförnum árum hafa bráðalækningar rutt sér nokkuð til rúms sem sjálfstæð sérgrein og Hlynur segir vissulega nokkurn mun á þeim og heimilislækningum. „Bráðalækningar eru eins og nafnið bendir til með talsvert þrengra svið og vettvangur þeirra er bráðadeildirnar en heimilislæknar þurfa að kunna skil á fleiri greinum því þeir geta lent í alls kyns aðstæðum í starfi sínu, sem héraðslæknar og heilsugæslulæknar. Ég kunni reyndar mjög vel við mig sem heilsugæslulæknir en hluti af mér þrífst vel á hraðanum og álaginu sem fylgir bráðamótttökunni." Aksjónmaður með afbrigðum Hávar Hann segist vera svo heppinn að hafa alltaf Sigurjónsson haft eitthvað annað meðfram fastri vinnu sem læknir og nefnir að á árum áður hafi hann verið heimilislæknir nunnanna í Karmelítaklaustrinu í Hafnarfirði og einnig hafi hann sinnt læknisþjónustu um sjö ára skeið fyrir Krísuvíkursamtökin sem reka meðferðar- og dvalarheimilið í Krísuvík. „Svo skoppaði ég með Bifreiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur í ein ellefu sumur og var opinber læknir rallíkeppna á þeirra vegum. Rallíakstur hefur reyndar aldrei verið neitt sérstakt áhugamál en ég hef gaman af fjölbreyttum verkefnum og dróst einhvern vegirtn inn í þetta." Hann segist hafa byrjað með þyrlusveit Landhelgisgæslunnar árið 2000 og svo hafi rústabjörgunarsveitin bæst við tveimur árum síðar. Hverjir veljast til starfa úr liópi lækna í þyrlusveitina er engin tilviljun. „Menn eru nánast handvaldir því þetta á alls ekki við alla. Menn þurfa að ráða vel við mjög fjölbreytt verkefni og hafa mikla reynslu af læknisstörfum. Við erum sex læknar sem skiptum þessu með okkur og alltaf er reynt að hafa einn unglækni í hópnum sem þó er kominn með góða reynslu. Unglæknirinn er valinn eftir að við höfum fengið augastað á honum fyrir dugnað og sjálfstæði í starfi. Þyrluþjálfunin sjálf felst í að læra að síga úr vélinni, læra umgengni við búnaðinn, þyrluna og áhöfnina. Reglulega eru haldnar æfingar í að síga, bæði á sjó og landi; svo eru þrjú námskeið á ári í öryggismálum en annað hvert ár er haldið námskeið í því hvernig maður á að bjarga sér út úr þyrlunni ef hún lendir í vatni eða sjó. Þau námskeið eru haldin í Aberdeen í þyrlulíkani í sérstökum tanki þar sem hægt er að líkja eftir raunverulegum aðstæðum. Fullþjálfaður þyrlulæknir er því búinn að ganga í gegnum talsverða þjálfun og menn verða ekki beinlínis gripnir upp af götunni í þetta." Það er varla hægt annað en spyrja Hlyn um minnistæðar björgunaraðgerðir með þyrlunni og hann segir þær margar sitja í minninu. Hann rifjar upp mikla og erfiða aðgerð við að sækja slasaða björgunarsveitarkonu sem hafði orðið fyrir því að slasast mjög illa á fæti innst í gilinu í Botnsdal í Hvalfirði, alveg inn við fossinn Glym. 192 LÆKNAblaðið 2010/96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.