Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2010, Side 52

Læknablaðið - 15.03.2010, Side 52
U M R Æ Ð A A K R A N E S O G F R É T T I R Jafnlangt báðar leiðir - heimsókn á sjúkrahúsið á Akranesi „Okkur þykir ómaklegt að heyra sífellt umræður um að sjúkrahús í nágrenni Reykjavíkur séu rekstrarlega óhagkvæm og best væri að sem mest af þjónustunni væri veitt í Reykjavík," segir Þórir Bergmundsson, framkvæmdastjóri lækninga og rekstrar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi. „Staðreyndin er sú að Sjúkrahús Akraness er mjög vel rekin stofnun og reksturinn hefur árum saman verið í jafnvægi. Þá hefur mikil vinna verið lögð í rekstraráætlanir ár hvert, þeim síðan fylgt eftir með virku aðhaldi og fjárlög virt. Allt hefur verið sparað eftir föngum, reynt hefur verið að jafna áhrifum skertra fjárveitinga á herðar sem flesta og nú þegar okkur hefur verið gert að skera niður um stórar fjárhæðir í rekstri tvö ár í röð hafa starfsmenn tekið höndum saman og standa vörð um sinn vinnustað, þrátt fyrir umtalsverða kjaraskerðingu, til að ekki þurfi að segja upp fólki." Talsverð breyting varð á rekstrarumhverfi innan heilbrigðisþjónustunnar á Vesturlandi um síðustu áramót en þá voru heilbrigðisstofnanir og átta heilsugæslustöðvar sameinaðar undir eina stjórn með aðsetur á Akranesi. Hin nýja stofnun heitir Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Þetta eru auk sjúkrahússins á Akranesi heilsugæslustöðvarnar á Akranesi, í Borgamesi, Ólafsvík, Grundarfirði, Stykkishólmi, Búðardal, Hólmavík og Hvamms- tanga auk St. Franciskusspítalans í Stykkishólmi og sjúkra- og hjúkrunardeildanna á Hvammstanga og Hólmavík. Sjúkrahúsið á Akranesi tók til starfa árið 1952 og varð fjórðungssjúkrahús tíu árum síðar. Stofnunin hefur vaxið og dafnað og er fjölgreinasjúkrahús sem sinnir bráðaþjónustu allan sólarhringinn. Þjónustusvæði þess nær frá Hvalfirði norður til Hvammstanga og Hólmavíkur. Þá er löng hefð fyrir því að öðrum landsmönnum standi þjónusta sjúkrahússins til boða. Þannig er fjórði hver aðgerðarsjúklingur með heimilisfesti á höfuðborgarsvæðinu. Tæplega fjórði hver nýburi á einnig lögheimili þar. Á heilsugæslustöðinni, sem er í sama húsi, eru 15 starfsmenn þar af fimm læknar. Heildarfjöldi starfsmanna sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi er 210, þar af eru 17 læknar í 12 stöðugildum. Mjög fjölbreytt Hávar sérfræðilæknisþjónusta er til staðar. Sjúkrahúsið Sigurjónsson er deildaskipt með fjórum legudeildum; lyf- lækningadeild með 18 legurúmum, 10 rúma kvennadeild með tveimur vel útbúnum fæð- ingarstofum, 10 rúma handlækningadeild, 22 rúma öldrunar- og endurhæfingardeild, skurðdeild með tveimur skurðstofum auk stoðdeilda í geislagreiningu, rannsóknarstofu og endurhæfingardeild. Á sjúkrahúsinu er einnig teknir til starfsnáms og þjálfunar lækna-, hjúkrunar- og sjúkraliðanemar. Traust bakland Sjúkrahúsið er stærsti vinnustaðurinn á Akranesi og segir Þórir að um stofnunina ríki mikil samstaða í bæjarfélaginu. „Akumesingar og raunar Vestlendingar allir hafa staðið þétt við bakið á starfseminni hér. Stofnunin á sér fjölmennan hóp velunnara; einstaklinga og félagasamtaka, sem með fjárfram- lögum og tækjagjöfum hafa stutt dyggilega við það starf sem urtnið er hér. Gott dæmi um velvilja íbúanna er að fyrir fáeinum árum var efnt til söfnunar velunnara fyrir sneiðmyndatæki og á innan við mánuði var upphæðin komin. Þetta tæki hefur sparað sjúkrahúsinu háar fjárhæðir þar sem annars þyrfti að senda alla sjúklinga til Reykjavíkur í slíkar rannsóknir. Húsnæði sjúkrahússins er misjafnlega gamalt, elsti hlutinn tekinn í notkun 1952 og nýjasti hlutinn á árinu 2002. Legurými lyflækninga og handlækningadeildar er orðið brýnt að endurbæta enda hefur það verið óbreytt ífjóra áratugi." Sólarhringsvakt og stuttur viðbragðstími „Hér á sjúkrasviðinu er alltaf einn deildarlæknir á vakt, allan sólarhringinn, allt árið um kring. Auk þess eru fjórir sérfræðingar á bakvakt; lyflæknir, skurðlæknir, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir og svæfingalæknir. Vakthafandi sérfræðingar dvelja á vöktunum hér á Akranesi og nokkrir þeirra eru búsettir hér. Þegar landlæknisembættið lét gera úttekt á fæðingaþjónustu heilbrigðisstofnana hér á landi fyrir örfáum árum var meðal annars sérstaklega skoðað hver viðbragðstími við keisaraskurði væri. í ljós kom að viðbragðstíminn hér frá ákvörðun um aðgerð að fæðingu barns 200 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.