Læknablaðið - 15.03.2010, Síða 54
U M R Æ Ð A
A K R A N E S
OG FRÉTTIR
Á myndinni erufrá vinstri: Þóra Björg Elídóttir sjúkraliði, Guðríður Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur, Sigríður Amórsdóttir sjúkraliði, Svanhildur
Thorstensen hjúkrunarfræðingur og Kristín jónsdóttir sjúkraliði.
Landspítala og aðgangur er gagnkvæmur, " segir
Þórir. „Samvinna við gjörgæsluna er mjög góð og
þar er mat okkar á þörf sjúklings fyrir innlögn á
gjörgæslu aldrei dregið í efa," bætir Björn við.
„Á öðrum sviðum er samvinnan ekki sem
skyldi. Innan kvensjúkdóma- og fæðingafræða
vantar trausta og óumdeilda forystu. Þar hefur hin
faglega umræða einkennst af karpi í dagblöðum
og klögumálum til landlæknisembættisins í stað
þess að mál séu rædd af yfirvegun og fagmennsku
innan sérgreinafélagsins," segja þau.
Þórir segir að skýrsla heilbrigðisráðuneytisins
um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á
suðvesturhomi landsins vera meingallaða og í
henni séu beinlínis rangar tölur, sem liggja til
gmndvallar útreikningiun og ályktunum. „Okkur
finnst undarlegt að skýrslan skyldi ekki kynnt fyrst
fyrir stjómendum og starfsfólki sjúkrahússins og
okkur með því verið gefið tækifæri til spuminga,
athugasemda og ábendinga. Verstu skekkjumar
í þessari skýrslu lúta að kostnaði við fæðingar
á SHA. Þar er gengið út frá því að stöðugildi
kvensjúkdómalækna hér séu 2,9 en á Landspítala
er samsvarandi tala 5,1. Stöðugildin hér em 1,6
og á Landspítala rúmlega 11. Stór hluti vinnutíma
kvensjúkdóma- og fæðingalæknanna hér fer í að
sinna kvensjúkdómum. Auk fæðingaþjónustu
veitir kvennadeildin göngudeildarþjónustu og
með-göngueftirlit, auk smærri og stærri aðgerða
vegna kvensjúkdóma. Ljósmæður kvennadeildar
hér sinna ekki aðeins fæðingum og sængurkonum
heldur einnig konum sem inniliggjandi eru eftir
aðgerðir vegna kvensjúkdóma. Þetta breytir
forsendum um kostnaðarútreikninga vemlega.
Tveir svæfingalæknar em hér, sem auk
annarra verkefna, sinna svæfingum og deyfingum
tengdum kvennadeild. Á síðastliðnu ári fæddust
274 börn á SHA og hafa aldrei verið fleiri í sögu
sjúkrahússins. Konur á Vesturlandi vilja helst eiga
böm sín hér. Reyndar fæðast hér fleiri böm en
nemur fjölgim á Vesturlandi. Fjórða hvertbarn sem
fæðist hér á heimilisfesti á höfuðborgarsvæðinu.
Það segir sína sögu. Frá 1. janúar á þessu ári
hafa fæðingar verið 51 (18. febrúar). Svokallaðar
utanbastdeyfingar (epiduraldeyfingar) vegna
fæðinga vom ríflega 120 á árinu 2008, eða um 45%
fæðinganna."
„Á hinn bóginn em reglur um áhættufæðingar
mjög skýrar og allar konur sem falla undir
þá skilgreiningu em sendar á kvennadeild
Landspítala. Um það er enginn ágreiningur.
En konur sem ekki em í áhættuhóp geta valið
fæðingarstað og það er staðreynd að sífellt fleiri
velja Sjúkrahús Akraness," segir Bjöm.
„Ein ástæðan er eflaust sú að við höfum boðið
sængurlegukonum að dvelja hér 1-2 sólarhringum
lengur eftir fæðingu en tíðkast á Landspítala. Þetta
kunna margar konur mjög vel að meta en á sér
þá skýringu að á okkar svæði er misjafnt hvort
heimaþjónusta ljósmæðra er í boði eða ekki."
Liðskiptiaðgerðir mun ódýrari
Fjöldi skurðaðgerða á SHA var á síðasta ári um
3000 og hefur farið fjölgandi. „Fjölgunin stafar
meðal annars af því að við emm með mjög færa
sérfræðinga á sviði liðskipta- og kviðsjáraðgerða
sem hafa fengið aukin verkefni á undanfömum
202 LÆKNAblaðið 2010/96