Læknablaðið - 15.03.2010, Page 59
Séra Tðmas Guðmundsson svæfir með eter á opna grímu (Esmarch grímu) við skurðaðgerð á sjúkrahúsinu á Patreksfirði 1968 eða 1969. Hann heldur grímunni
með vinstri hendi og virðist halda hökunni fram en með hægri hendi lætur hann drjúpa á grisjuna úr eterdropaglasi. Hannes Pinnbogason var læknir á
Patreksfirði 1956 og kenndi prestinum pá að svæfa. Hægra megin á myndinni er kona að mæla blóðþrýsting en læknarnir Guðmundur Guðjónsson og Þórir S.
Arinbjarnarson gera aðgerðina.
Mynd mánaðarins
Jón Sigurðsson
Kári Hreinsson
Tómas
Guðbjartsson
Ljósmyndari þessarar myndar er óþekktur en
myndin er fengin að láni frá Minjasafni Egils
Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn við Patreksfjörð
og birt með góðfúslegu leyfi Sigurbjargar Ásgeirs-
dóttur safnstýru þar. Myndin er einnig notuð
á veggspjaldi fyrir sameiginlegt vísindaþing
Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjör-
gæslulæknafélags íslands árið 2010.
Eter kom til sögunnar á íslandi eftir aldamótin
1900 en fyrir þann tíma var klóróform eina
svæfingarlyfið. Fram yfir miðja síðustu öld var
gjöf eters og klóróforms í opna svæfingagrímu
mikið notuð, klóróform einkum við stuttar
svæfingar en eter við lengri svæfingar. Stundum
var gefin blanda af klóróform og eter. Svæfingin
var venjulega undir leiðsögn þess læknis sem
aðgerðina gerði. Uti á landsbyggðinni fengu
héraðslæknar oft eiginkonur sínar til liðs við
sig eða jafnvel einhverja handlagna menn úr
sveitinni. Því má segja að svæfingar hafi oftast
verið í höndum lítt reyndra lækna, læknanema,
hjúkrunarkvenna, ljósmæðra eða leikmanna.
Þótt hinn gamli góði eter hafi verið barn síns tíma
(í langan tíma!) var hann þó á vissan hátt öruggt
svæfingarlyf. Þetta voru þó ekki fínar svæfingar.
Sjúklingamir sváfu oft klukkutímum saman eða
jafnvel í nokkra daga eftir aðgerðir og leið oft mjög
illa þegar þeir vöknuðu. Eftir miðja öldina áttuðu
læknar sig betur á nauðsyn góðra svæfinga. Með
aukinni þekkingu og menntun, bættum útbúnaði
og betri lyfjum voru gerðar meiri kröfur um öryggi
og velferð sjúklinga. Hin nýju svæfingarlyf eru
þó bara góð lyf í höndum þeirra sem fengið hafa
sérstaka þjálfun í notkun þeirra.
LÆKNAblaöið 2010/96 207