Læknablaðið - 15.03.2010, Qupperneq 77
bundið plasmapróteinum, er ólíklegt að það valdi eða verði fyrir
lyfjafræðilegum milliverkunum. I in vivo rannsóknum komu engar
klínískt mikilvægar milliverkanir fram hjá pregabalíni og fenýtóíni,
karbamazepíni, valpróinsýru, lamótrigíni, gabapentíni, lorazepami,
oxýkódóni eða etanóli. Þýðisrannsóknir á lyfjahvörfum bentu til
þess að sykursýkilyf til inntöku, þvagræsilyf, insúlín, fenóbarbital,
tíagabín og tópíramat hefðu engin klínískt marktæk áhrif á
úthreinsun pregabalíns. Samhliða notkun pregabalíns og
getnaðarvarnalyfjanna noretísterón og/eða etinýlöstradíól til
inntöku hafði engin áhrif á lyfjahvörf þessara lyfja við jafnvægi.
Pregaþalín getur aukið áhrif etanóls og lórazepams. I klínískum
samanburðarrannsóknum höfðu endurteknir skammtar af
pregabalín til inntöku gefnir á sama tíma og oxýkódón, lórazepam
eða etanól engin klinískt mikilvæg áhrif á öndun. Eftir
markaðssetningu hefur verið greint frá öndunarbilun og dái hjá
sjúklingum sem taka pregabalín og önnur lyf sem slæva
miðtaugakerfið. Pregabalín virðist auka á skerðingu af völdum
oxýkódóns á skilvitlega-og grófhreyfivirkni (cognitive and gross
motor function). Engar rannsóknir hafa verið gerðar á
milliverkunum hjá öldruðum sjálfboðaliðum. Rannsóknir á
lyfhrifamilliverkunum hafa eingöngu verið framkvæmdar hjá
fullorðnum. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki liggja fyrir neinar
fullnægjandi rannsóknarniðurstöður um notkun pregabalíns á
meðgöngu. Rannsóknir á dýrum hafa sýnt fram á skaðleg áhrif á
frjósemi. Hugsanleg áhætta fyrir menn er ekki þekkt. Lyrica ætti
ekki að notaá meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til (ef
ávinningur fyrir móður vegur augljóslega þyngra en hugsanleg
áhætta fyrir fóstrið). Konur á barneignaaldri eiga að nota örugga
getnaðarvörn. Ekki er vitað hvort pregabalín skilst út í brjóstamjólk
hjá konum, hinsvegar er vitað að það finnst í mjólk hjá rottum.
Þess vegna er ekki mælt með brjóstagjöf á meðan á meðferð með
pregabalíni stendur. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla:
Lyrica hefur lítil eða væg áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar
véla. Lyrica getur valdið sundli og svefnhöfga og þar með haft
áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Ráðleggja á sjúklingum
að aka ekki eða stjórna flóknum vélum eða fást við önnur
áhættusöm verk áður en þeir þekkja hvaða áhrif meðferðin hefur
á hæfni þeirra til að vinna slík verk. Aukaverkanir (mjög algengar
og algengar): Efnaskipti og næring: Algengar: Aukin matarlyst.
Geðræn vandamál: Algengar: Vellíðunartilfinning, rugl,
skapstyggð, minnkuð kynhvöt, vistarfirring, svefnleysi. Taugakerfi:
Mjög algengar: Sundl, svefnhöfgi. Algengar: Ósamhæfing
hreyfinga, skortur á samhæfingu, skjálfti, tormæli, minnistruflun,
einbeitingarskortur, breytt húðskyn, róun, jafnvægistruflun,
drungi. Augu: Algengar: Þokusýn, tvísýni. Eyru og völundarhús:
Algengar: Svimi. Meltingarfæri: Algengar: Uppköst, munnþurrkur,
hægðatregða, vindgangur. Æxlunarfæri og brjóst: Algengar:
Ristruflun. Almennar aukaverkanir og ástand tengt íkomuleið:
Algengar: Óeðlilegt göngulag, ölvunartilfinning, þreyta, bjúgur í
útlimum, bjúgur. Rannsóknaniðurstöður: Algengar:
Þyngdaraukning. Ofskömmtun: Ekki hefur verið greint frá neinum
óvæntum aukaverkunum eftir stóra skammta allt að 15 g. Eftir
stóra skammta eru svefndrungi, ringlun, uppnám og eirðarleysi
algengustu aukaverkanirnar sem greint hefur verið frá eftir
markaðssetningu. Meðferð við ofskömmtun á að fela i sér
almenna meðferð við einkennum og getur ef nauðsyn krefurfalist
í blóðskilun. Afgreiðslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt.
Greiðslufyrirkomulag: E. Handhafi markaðsleyfis: Pfizer Limited
Ramsgate Road, Sandwich, Kent CT13 9 NJ Bretland. Samantekt
um eiginleika lyfs er stytt í samræmi við reglugerð um
lyfjaauglýsingar. Upplýsingar um lyfið er að finna í Sérlyfjaskrá og
á lyfjastofnun.is. Umboð á íslandi: Vistor hf., Hörgatúni
2, 210 Garðabæ.
Pakkningar og verð 1. febrúar 2010: Hylki 25 mg, 56 stk. 4.950 kr.
Hylki 75 mg, 14 stk. 4.314 kr. Hylki 75 mg, 56 stk. 11.293 kr. Hylki
150 mg, 14 stk. 5.993 kr. Hylki 150 mg, 56 stk. 16.673 kr. Hylki 225
mg, 14 stk 6.769 kr. Hylki 225 mg, 56 stk. 21.556 kr. Hylki 300 mg,
56 stk 23.332 kr.
Heimild: LYRICA®, Samantekt á eiginleikum lyfs, janúar 2010
(www.lvfiastofnun.is).
• Rl CA
PREGABALÍNl
skjót áhrif - viSmandi mkun
LÆKNAblaðið 2010/96 225