Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 13

Læknablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 13
RANNSÓKN Offita Sykursýki Kransjeðasjúkdómur HeilablóófaD Híþrýstingur Mynd 1. Fjöldi einstaklinga meö ákveðnar sjúkdómsgreiningar. Niðurstöður sólarhringsblóðþrýstingsmælinga leiddu til þess að 14% fengu óbreytta meðferð, 19% voru settir á lyfjameðferð vegna háþrýstings, 16% voru ekki settir á neina meðferð, í 6% til- vika var meðferð minnkuð og í 13% var hún aukin, 6% var ráðlögð meðferð án lyfja. Tafla III sýnir til hvaða aðgerða var gripið eftir að niðurstöður sólarhringsblóðþrýstingsmælinga lágu fyrir, flokkað eftir tilefni rannsóknarinnar, það er hvort rannsóknin var gerð til að greina háþrýsting eða hvort um eftirlit var að ræða. Sjúkdómsgreiningar voru kannaðar sérstaklega og fjöldi ein- staklinga með ákveðnar sjúkdómsgreiningar er sýndur á mynd 1. Af rannsóknarhópnum voru 29 (14%) sem reyktu. Alls voru 112 einstaklingar með sjúkdómsgreininguna há- þrýstingur og af þeim voru 14 (13%) sem höfðu blóðþrýstings- gildi á stofu undir 140/90 mmHg. Meðal þeirra sem fóru í sólar- hringsblóðþrýstingsmælingu til að greina hvort þeir væru með háþrýsting voru 12 (13%) með blóðþrýstingsgildi á stofu undir 140/90 mmHg. Ein af þeim breytum sem sólarhringsmæling gefur fyrir hvern einstakling er hlutfall mælinga sem eru yfir fyrirfram ákveðnum mörkum og er það nefnt blóðþrýstingsálag (blood pressure load)}0 Að degi til er miðað við fjölda mælinga yfir 140 mmHg í slagbils- þrýstingi og 90 mmHg í hlébilsþrýstingi. Samsvarandi viðmið að nóttu eru yfir 120 og 80 mmHg. Af niðurstöðum mælinga að degi til voru 39% yfir 140 mmHg í slagbilsþrýstingi og 26% yfir 90 mmHg í hlébilsþrýstingi. Af næturmælingum voru 57% mælinga yfir viðmiðum í slagbilsþrýstingi og 32% yfir í hlébilsþrýstingi. Tafla III. Afleiðingarsólarhringsblóðþrýstingsmælinga flokkaðareftirtilefni rann- sóknarinnar, fjöldi (%). Til greiningar Til eftirlits með háþrýstingi Óþekkt 22 (24) 27 (24) Óbreytt meðferð 4(4) 25 (22) Meðferð hafin 30 (33) 9(8) Engin meðferð 25 (27) 7(6) Meðferð minnkuð 0(0) 13(12) Meðferð aukin 0(0) 26 (23) Meðferð án lyfja 8(9) 4(3) Vill ekki lyfjameðferð 1 0) 0(0) Frekari rannsóknir 2(2) 2(2) Hiþrýttlnfslyf BlóóHtul«kkandl lyf lyf vlð (ykurtýki HjarUmagnyl Mynd 2. Lyfjanotkun meöalþátttakenda. Lyfjanotkun þátttakenda var könnuð og reyndust 27% ekki taka nein lyf að staðaldri en um helmingur var á háþrýstings- lyfjum, sjá mynd 2. Umræða Niðurstöður rannsóknar okkar sýna að á þessum þremur heilsu- gæslustöðvum eru framkvæmdar um 100 sólarhringsblóðþrýst- ingsmælingar á ári. Aldursdreifing er nokkuð víð og nær yfir 70 ár og rannsóknin framkvæmd jöfnum höndum til greiningar og eftirlits með háþrýstingssjúklingum. Mikilvægi háþrýstings sem áhættuþáttar fyrir hjarta- og æða- sjúkdómum er vel þekkt og er alheimsvandamál.11 Ábendingar fyrir notkun sólarhringsmælinga eru meðal annars grunur um hvítsloppa-háþrýsting, léleg svörun við meðferð og einkenni um blóðþrýstingsfall.5'12 Þrátt fyrir að alþjóðlegar leiðbeiningar leggi áherslu á að stofumælingar séu það viðmið sem nota eigi við greiningu og meðferð háþrýstingssjúklinga er viðurkennt að sólarhringsblóðþrýstingsmælingar gefi gagnlegar upplýsingar umfram stofumælingu.5-12-13 Ennfremur hefur verið sýnt fram á að notkun sólarhringsblóðþrýstingsmælinga í heilsugæslu bæti marktækt meðferð háþrýstingssjúklinga.14 Blóðþrýstingsmæling sem framkvæmd er á stofu gefur ekki alltaf alveg rétta mynd af blóðþrýstingi viðkomandi og oft er misræmi milli niðurstöðu mælinga á stofu og mælinga sem gerðar eru heima. Ennfremur fást margar mælingar bæði yfir dag og nótt með sólarhringsmæl- ingu.15 Viðmiðunargildi sem teljast eðlileg/óeðlileg eru lægri við sólarhringsblóðþrýstingsmælingu en við stofumælingu. Þannig er miðað við að við sólarhringsmælingu eigi blóðþrýstingur að meðaltali að vera <130/80 yfir sólarhringinn, að degi <135/85 en að nóttu <120/70 mmHg.16 Blóðþrýstingur er jafnan hærri í vöku þegar viðkomandi er virkur, en lækkar í hvíld og svefni en hækkar aftur undir morgun þegar viðkomandi fer að losa svefn.17 Að meðaltali er blóðþrýstingur að nóttu til um 10-20% lægri en að degi til, bæði slagbils- og hlébilsþrýstingur. Hjá sjúklingum með háþrýsting eru gildin hærri en þeir sýna sama munstur.18 Hjá sum- um lækkaði blóðþrýstingur ekki yfir nóttina og eru þeir kallaðir ekki-dýfarar. í okkar rannsókn voru 41% flokkaðir sem dýfarar. í norskri rannsókn þar sem 59 heimilislæknar og þrír hjartalæknar skoðuðu notkun sólarhringsmælinga hjá 1162 einstaklingum var þetta hlutfall heldur hærra, eða 54%.19 í stórri spænskri rannsókn á gagnsemi sólarhringsmælinga meðal 12.897 sjúklinga með há- LÆKNAblaðið 2012/98 145

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.