Læknablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 19
RANNSÓKN
Mynd 1. Staðsetning sára hjá sjúklingum sem fengu sárasogsmeðferð á íslandi árið
2008,fjöldi meðferða (%). Mynd: Ittgibjörg Guðmundsdóttir.
|
o
Dagar
í töflu I er sýnd skipting milli sérgreina, bæði eftir fjölda sjúk-
linga en einnig fjölda sárasogsmeðferða. Einnig er tiltekin tíma-
lengd meðferðar. Flestar meðferðir voru veittar á æðaskurðadeild,
eða 23 meðferðir, og 17 á brjóstholsskurðdeild þar sem meðferðar-
dagar voru fæstir, en hver meðferð tók að meðaltali 14 daga.
Abendingar fyrir sárasogsmeðferð voru aðallega þrenns konar.
Algengust var örvun gróanda í 27 (42%) tilvikum, meðferð sýktra
sára í 26 meðferðum (40%) og í 12 (19%) tilvikum til að halda
holrúmum opnum, til dæmis eftir stórar kviðar- eða brjósthols-
aðgerðir. I töflu II má sjá nánari útlistun á tegundum sára sem
meðhöndluð voru, en sýkt skurðsár voru algengust (28%) og var
helmingur þeirra í sýktum bringubeinsskurði, næst komu lang-
vinn fótasár (20%) og síðan þrýstingssár (14%).
A mynd 1 sést staðsetning sára sem meðhöndluð voru með
sárasogsmeðferð. Flest sáranna voru staðsett á neðri útlimum
(26%) og aðeins færri á brjóstkassa (25%).
í öllum tilvikum nema einu var notast við svampumbúðir
(98%). Oftast var notast við sárasugu frá KCI®, eða í 47 tilvika
(72%), og veggsog án sérhæfðs sárasogstækis í 13 tilvikum (20%).
Tafla IV. Samanburður á árangri sárasogsmeðferðar eftir gróanda sára. Gefinn
er upp fjöldi (%),en meðaltal aldurs og likamsþyngdarstuðuls.
Þættir Fullurgróandi (n=40) Ófullkominn gróandi (n=19) p-gildi
Meðalaldur (ár) 58 68 0,04
Karlkyn 24 (60) 13(68) 0, 58
Llkamsþyngdarstuðull (kg/m2) 28 27 0,59
Saga um reykingar 8(20) 3(16) 0,71
Útæðasjúkdómur 17(43) 13(68) 0,10
Sykursýki 10(25) 11 (58) 0,02
Mænuskaði 5(13) 2(11) t
Bláæðasjúkdómar 3(8) 4(21) t
Sterameðferð 2(5) 0 t
Geislameðferð 2(5) 1(5) t
t = einstaklingar of fáir fyrir tölfræðilegan samanburð Sjúklingar gátu haft fleiri en einn undirliggjandi sjúkdóm, en í 16 tilvikum vantaði upplýsingar um undirliggjandi sjúkdóma eða þeir ekki skráðir. Hjá 10 sjúklingum var ekki hægt að reikna út líkamsþyngdarstuðul þar sem upplýsingar um hæð eða þyngd vantaði. Hjá fjórum sjúklingum vantaði upplýsingar um reykingasögu.
Mynd 2. Kaplnn-Meier lifunnrkúrfa scm sýnir heildarlifun sjúklinga sem fengu
sárasogsmeðferð. Við útreikninga voru teknir með þeir 6 sjúklingar sem létust á með-
ferðartíma.
Sárasuga frá KCI® og veggsog voru notuð samhliða í fjórum til-
vikum (6%). Tæki frá öðrum framleiðenda var notað í einni með-
ferð. Ekki reyndist vera marktækur munur á árangri meðferða
eftir því hvaða umbúðir eða tæki voru notuð. Að meðaltali tók
sárasogsmeðferð 25 daga (bil 1-203 dagar) og voru 54% sjúkling-
anna skemur en 15 daga í meðferð.
Oftast var skipt um umbúðir annan til þriðja hvern dag, eða
í 80% meðferða, daglega hjá 6% og sjaldnar en þriðja hvern dag í
9% tilvika. Upplýsingar um fjölda sáraskiptinga vantaði í þremur
meðferðum (5%).
Af 59 meðferðum greru 40 sár að fullu, eða í 68% tilvika, en gró-
andi reyndist ófullkominn í hinum 19 meðferðunum (32%). í töflu
III má sjá árangur sárasogsmeðferðar eftir því hvaða ábendingar
voru fyrir meðferðinni. Alls greru 69% sýktra sára, 59% sára þegar
verið var að örva gróanda og öll sár þar sem sárasogsmeðferð var
notuð til að halda holrýmum opnum. Munur á milli þessara hópa
var þó ekki marktækur (p=0,15). í töflu IV er samanburður á sjúk-
lingum sem höfðu sár sem greru með sárasogsmeðferð og þeirra
þar sem gróandi var ófullnægjandi. Gróandi var sambærilegur
fyrir bæði kyn en sjúklingar með fullkominn gróanda voru 10
árum yngri að meðaltali (p=0,04) og voru marktækt sjaldnar með
sykursýki, eða í 25% tilfella borið saman við 58% (p=0,02). Ekki
reyndist munur á milli hópa hvað varðar líkamsþyngdarstuðul,
sögu um reykingar né útæðasjúkdóma. Sjúklingar með mænu-
skaða, bláæðasjúkdóma eða sem fengið höfðu stera eða geisla-
meðferð reyndust of fáir til að hægt væri að leggja mat á árangur
meðferðar.
Fylgikvillar sem raktir voru til sárasogsmeðferðar voru skráðir
í 19 meðferðum og voru verkir algengastir, eða í 12% tilfella. Næst
á eftir komu húðvandamál (11%) en blæðing greindist í einni
meðferð og aðrir fylgikvillar í þremur meðferðum. Ekki reyndist
fylgni milli árangurs sárasogsmeðferðar og tíðni fylgikvilla.
Sex sjúklingar létust meðan á sárasogsmeðferð stóð, allir vegna
undirliggjandi sjúkdóma, oftast fjölkerfabilunar eða blæðinga, en
enginn vegna fylgikvilla meðferðarinnar. Af 50 sjúklingum sem
útskrifuðust höfðu 6 til viðbótar látist þann 1. nóvember 2009. Á
LÆKNAblaðið 2012/98 151