Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2012, Side 40

Læknablaðið - 15.03.2012, Side 40
S T R E I T A Geðlæknarnir Högni Óskarsson og Ólafur Þór Ævarsson stýrðu málþingi á Læknadögum í janúar þar sem fjallað var um kulnun í starfi og streitueinkenni frá ýmsum hliðum. Báðir hafa þeir í sínum störfum öðlast margháttaða reynslu af hinum ýmsu birtingarmyndum kulnunar og streitu í starfi og sinnt ráðgjöf og forvörnum í þessum efnum fyrir fjölmörg fyrirtæki og stofnanir. Rannsóknir á streitu eru vaxandi svið „Mín reynsla er að það séu hörkuduglegir og vel gefnir einstaklingar sem hlífa sér ekki og hlusta ekki á varnarmerki líkama eða sálar þegar álagið er orðið of mikið, sem verða fórnarlömb streitu," segir Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir. ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Ólafur Þór Ævarsson hefur um 10 ára skeið rekið fyrirtækið Forvarnir og segir það hafa verið lærdómsríkt fyrir sig að finna út hvernig best væri að nálgast þetta viðfangsefni og komast í samband við þá sem þyrftu á fræðslunni að halda. „Þegar ég hóf þennan rekstur hafði ég unnið mjög lengi á geðdeildum sjúkrahúsa hér heima og áður í Svíþjóð að endur- hæfingu geðsjúkra. Ég hafði mikinn áhuga á forvörnum og velti talsvert vöngum yfir því hvernig best væri að koma fræðslunni á framfæri. Ég auglýsti fyrirlestra um þunglyndi og kvíða. Það kom enginn og þetta virtist ekki vekja neinn áhuga. Eða kannski vakti þetta ótta. Ég breytti því yfirskriftinni og nefndi þetta fyrirlestra um streitu. Og þá kom fólkið. í kjölfarið fannst mér mikilvægt að hafa jákvæðan hljóm í þessu og gaf þessu nafnið Streitu- skólinn. Þá fór þetta að ganga og hefur þróast þannig að mörg fyrirtæki hafa óskað eftir fræðslu sem hluta af því sem kallast sálfélagsleg vinnuvernd. Ég upp- götvaði að undir þessum formerkjum gat ég talað mjög opinskátt um geðsjúkdóma, um kvíða, þunglyndi og samskiptaerfið- leika, auk streitu, og fólk tók mjög vel við fræðslunni undir merkjum Streituskólans. Til þessa dags hef ég komið í um 200 fyrir- tæki og frætt um 6000 manns og þróað kennsluaðferðir í Streituskólanum áfram. Ég tengi saman fyrirlestra, fræðsluefni í bæklingum og rafbókum og einstaklings- ráðgjöf og handleiðslu. Hugsun mín er fyrst og fremst sú að fólk geti nýtt sér þessa sérhæfðu forvarnafræðslu sem for- vörn til að verjast neikvæðri streitu og heilsuspillandi áhrifum hennar og leiti sér hjálpar ef það hefur þörf fyrir það. Framfarirnar í geðlækningum hafa verið svo miklar á undanförnum áratugum að það er full ástæða til að leita sér hjálpar ef eitthvað bjátar á." Ólafur segir að áhugi á streitu hafi auk- ist mjög á síðari árum innan heilbrigðis- vísinda. í byrjun hafi ýmsir furðað sig á því hvað læknir væri að fást við þetta. „Þegar ég fór að kynna mér rannsóknir á þessu sviði opnuðust augu mín fyrir því hvað þetta er merkilegt og vaxandi svið innan læknisfræðinnar og að læknar eiga fullt erindi inn í þessa grein." Ný hugsun að ryðja sér til rúms Þetta snertir lækna í öllum sérgreinum. Streita hefur bæði líkamleg og andleg áhrif og innan læknisfræðinnar eru vísindamenn sífellt að gera sér betur grein fyrir hversu mikil tengsl eru á milli and- legrar og líkamlegrar líðanar. Það er nú úrelt að tala um sál og líkama sem að- skilin fyrirbæri. Maður sér þetta í þeim rannsóknum sem gerðar eru á streitu í dag að ný hugsun er að ryðja sér til rúms. Aukin þekking á tengslum andlegra og líkamlegra þátta eru að breyta hugmynd- um okkar innan læknisfræðinnar og ég vil hvetja alla lækna til að kynna sér þær rannsóknir á streitu sem verið er að birta víða í heiminum í dag. í erfðafræðinni eru til dæmis að koma fram nýjar kenningar um hinar svokölluðu utangenaerfðir sem skýra hvernig hegðunarmynstur erfast milli ættliða þó engar breytingar sé að sjá í erfðaefninu sjálfu. Þetta snertir streitu- rannsóknir og er mjög áhugavert." Streita, segir Ólafur Þór, hefur áhrif á flesta þá sjúkdóma sem i dag kallast einu nafni menningar- eða lífsstílssjúkdómar. „Þar má nefna hjartasjúkdóma af ýmsum toga og heilablóðfall, meltingartruflanir, magasár, mígreni og einnig vefjagigt og síþreytu. Af andlegum einkennum má 172 LÆKNAblaðið 2012/98

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.