Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2012, Side 41

Læknablaðið - 15.03.2012, Side 41
STARFSKULNUN „Viðgöngum á tímann sem ætlaður er til samveru meðfjölskyldu og til hvíldar, en það er einmitt tíminn sem við þurfum til að hlaða batteríin að nýju," segir Högni Óskarsson geðlæknir. Starfskulnun er ekki vandamál einstaklingsins nefna þunglyndi, kvíða og einbeitingar- skort samfara minnisleysi, en streitan getur einnig espað upp alvarlegri geð- sjúkdóma sem annars hefðu legið í dvala. Breytingar á skapi eru einnig algengar, pirringur og ýmiss konar samskiptaörð- ugleikar, bæði á vinnustað og í einkalífi." Fyrirbærið sjálft segir Ólafur Þór að sé ekki beinlínis neikvætt frá nátt- úrunnar hendi. „Streita er í grunninn eðlilegt fyrirbæri og er viðbragð tauga- og hormónakerfa líkamans við yfirvofandi hættu og álagi. Eðli málsins samkvæmt er streita því frá náttúrunnar hendi mjög tímabundið viðbragð við álagi og hættu. En þegar hún verður hins vegar að viðvar- andi ástandi er hún neikvæð og einnig ef hún er of snögg og djúpstæð í formi áfalla- streitu. Annað sem hefur á seinni árum ýtt undir rannsóknir á streitu er hinn mikli kostnaður sem hlýst af henni. Meiri veikindaforföll, aukin starfsmannavelta, hærri slysatíðni og minnkað vinnuframlag hefur veruleg áhrif á rekstur fyrirtækja." Duglegir og vel gefnir einstaklingar Hvað læknastéttina varðar segir Ólafur að það sé mjög mikilvægt að hver og einn sé meðvitaður um orsakir og einkenni streitu. „Læknar eru yfirleitt undir miklu álagi og bera ríka ábyrgð og til þeirra eru gerðar kröfur. Störf þeirra eru flókin, tímapressan er stíf og miklar kröfur eru gerðar til þeirra um þekkingu. Þar við bætist að það einkennir lækna sem stétt að þeir eru yfirleitt mjög kröfuharðir á sjálfa sig, ofurnákvæmir og hlífa sér ekki. Gamla kenningin var sú að þeir sem yrðu helst streitu að bráð væru veikgeðja og viðkvæmir einstaklingar sem ekki réðu við álag. Mín reynsla er að í rauninni sé þessu öfugt farið, því það eru frekar hörkuduglegir og vel gefnir einstaklingar sem hlífa sér ekki og hlusta ekki á varnar- merki líkama eða sálar þegar álagið er orðið of mikið, sem verða fórnarlömb streitu. Sá kostnaður sem hlýst af kulnun í starfi með tilheyrandi truflun á starfsgetu eða jafnvel óvinnufærni hjá lækni sem tekið hefur áratugi að mennta og þjálfa, er mjög mikill fyrir einstaka vinnustaði og samfélagið allt." „Þeir sem gera miklar kröfur til sín í starfi, hafa mikinn metnað og eru haldn- ir fullkomnunaráráttu er frekast hætt við kulnun í starfi," segir Högni Óskarsson geðlæknir. Högni hefur sinnt ráðgjöf og stjórnendaþjálfun undir merkjum Humus ehf. við ýmis fyrirtæki og stofn- anir undanfarin ár. Högni segir að samkvæmt hollenskum rannsóknum á ýmsu starfstéttum megi að meðaltali greina starfskulnun hjá 2-4% starfsmanna. Hann rifjar upp könnun sem gerð var meðal bandarískra skurðlækna sem leiddi í ljós að kulnunareinkenni voru greinanleg hjá allt að 40% þeirra. „Við fyrstu sýn kemur þetta kannski á óvart því bandarískir skurðlæknar eru jaxlar sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna, þeir eru gríðarlega hæfir og hafa komist í gegnum ótal síur á ferli sínum. Það mætti því ætla að þeir væru sæmilega fullnægðir í sínu starfi. En þegar farið var að rýna í þessar sláandi niðurstöður kemur ýmislegt athyglisvert í ljós sem við getum dregið lærdóm af, sérstaklega núna í skugga hruns og yfirstandandi kreppu. Þjálfun lækna snýst um að gera þá hæfa til að sinna læknisverkum af ýmsu tagi, eins og skurðaðgerðum, rannsóknum, viðtölum og greiningum. Þegar læknar hefja störf er þetta það sem á hug þeirra allan og metnaður þeirra stendur til. Hið daglega starf læknisins snýst síðan að miklu leyti um aðra hluti. Hann verður æ uppteknari af alls kyns verkefnum sem í rauninni má skilgreina sem aukaatriði eða bakgrunnshljóð við hið eiginlega læknisstarf. Þetta eru skýrslur sem þarf að skrifa, meðferðarlýsingar, áætlanir, vottorð, beiðnir, útskriftir og í Banda- ríkjunum þurfa læknar að skila mjög ítar- legum skýrslum til tryggingafélaga sem allur rekstur sjúkrahúss eða stofu byggir á. Við þetta bætast svo hin tímafreku rafrænu samskiptakerfi nútímans, sími og tölvupóstur sem eltir fólk hvert sem það fer. Bandarísku skurðlæknarnir kvörtuðu sáran yfir því að öll þessi umsýsla með pappír og tölvur tæki sífellt meiri tíma og æ minni tími færi í það sem þeir kynnu best og vildu helst gera. Einn læknir lýsti þessu mjög vel þegar hann sagði að tíminn á skurðstofunni væri eins og að komast í búddíska hugleiðslu; geta einbeitt sér að einu verkefni og gleymt öllu öðru á meðan. Skilaboð þessarar sögu eru að lík- urnar á starfskulnun aukast stórum þegar LÆKNAblaðið 2012/98 173

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.