Læknablaðið - 15.02.2013, Síða 9
RITSTJÓRNARGREIN
Næringarþörf sjúklinga á sjúkradeildum
Kristinn
Sigvaldason
yfirlæknir gjörgæsludeild
Landspítala Fossvogi
krisig@landspitali. is
í þessu tölublaði Læknablaðsins eru birtar
niðurstöður rannsóknar á næringarinntöku
sjúklinga á hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítala þar sem metið var hversu vel
næringarmarkmiðum var náð.1 Óhætt er að
hrósa rannsóknaraðilum fyrir framkvæmd
þessarar rannsóknar þar sem það er um-
fangsmikið og erfitt verk að mæla nákvæm-
lega alla næringarinntöku 60 sjúklinga á
sjúkradeild í 5 daga, yfirheyra þá sem tóku
þátt og vigta alla matarafganga frá hverjum
og einum. Niðurstöðurnar benda til þess
að nokkuð sé í land með að settum nær-
ingarmarkmiðum sé náð hjá sjúklingum
á skurðlækningadeild og svo virðist sem
umtalsverður hluti matar lendi í ruslinu.
Rannsóknir á næringarinntöku sjúklinga
á sjúkrahúsum eru afar mikilvægar en
þessum þætti sjúkrahúsdvalar hefur ekki
verið nægur gaumur gefinn til þessa. Að
þetta sé skoðað vísindalega og á vandaðan
hátt er því mjög jákvætt og ánægjulegt að
sjá hvað næringarstofa Landspítala hefur
verið öflug á síðustu árum að skoða þessi
mál og vinna að stöðlum í mati á næringar-
ástandi og skimun fyrir vannæringu.
Næringarástand skiptir töluverðu máli
í meðferð flestra sjúkdóma og hefur bein
áhrif á horfur sjúklinga.2 Nýlegt þyngdar-
tap og saga um minnkaða fæðuinntöku síð-
ustu vikurnar fyrir innlögn eru sérstaklega
mikilvægir þættir. Við innlögn á sjúkrahús
er því mjög mikilvægt að sjúkrasaga inni-
haldi upplýsingar um næringarástand og
að skimað sé fyrir vannæringu en þarna
vantar mikið upp á í dag. Vannæring eykur
tíðni fylgikvilla eins og sýkinga sem geta
verið sjúklingnum hættulegar og jafnframt
mjög kostnaðarsamar fyrir þjóðfélagið þar
sem sjúkrahúslega verður oftast lengri. Það
er því mjög mikilvægt að vitundarvakn-
ing verði um þessi mál meðal heilbrigðis-
starfsfólks, ekki síst lækna. Með góðri og
markvissri næringarmeðferð er hægt að
hafa talsverð áhrif á horfur sjúklinga sem
þurfa innlögn á sjúkrahús vegna alvarlegra
veikinda eða slysa.
A skurðlækningadeildum er sérstaklega
mikilvægt að huga vel að næringarmálum,
því meðferðinni fylgja óhjákvæmilega
föstutímabil vegna rannsókna og skurðað-
gerða og oft eru notuð lyf, svo sem verkja-
lyf, sem trufla starfsemi garna. Allt getur
þetta truflað starfsemi garna en með því
að gefa næringu í görnina eykst blóðflæði
í slímhúðinni og starfseminni er betur við-
haldið. Mat á næringarástandi við innlögn
er því afar mikilvægt og að gerð sé næring-
aráætlun í tengslum við sjúkrahúsdvölina
og fylgst sé vel með hvernig markmiðum er
náð. Mæta þarf orkuþörf einstaklinga, sem
er 20-25 kkal/kg/dag samkvæmt klínísk-
um leiðbeiningum um næringu sjúklinga á
Landspítala. Matið er þó einstaklingsbund-
ið, aldraðir og langveikir þurfa minna og
þeir sem gengist hafa undir stórar skurðað-
gerðir eða lent í slysum þurfa hugsanlega
meira. Ef ekki gengur að næra fólk á venju-
legan hátt er mælt með sondunæringu um
meltingarveg og þannig reynt að ná mark-
miðum en ef það gengur ekki er völ á mjög
góðum næringarlausnum til að gefa í æð.
Sennilega er þó betra að reyna með öllum
tiltækum ráðum að næra sjúklinga um
meltingarveg og bíða með gjöf næringar í
æð í 7 daga frá byrjun alvarlegra veikinda
eða skurðaðgerðar.3 Þetta var niðurstaða
stórrar rannsóknar sem birt var í Neu) Eng-
land Journal of Medicine fyrir um ári síðan.
Niðurstöður annarrar nýlegrar rannsóknar
benda til þess að bæta megi horfur sjúk-
linga með aukinni próteingjöf.4 Samkvæmt
klínískum leiðbeiningum um næringu
sjúklinga á Landspítala er mælt að því að
gefa 1,2-1,5 g/kg af próteinum á dag. Niður-
stöður margra rannsókna benda til þess að
þessum markmiðum sé þó sjaldan náð.
Þetta er líka niðurstaða þeirrar rannsóknar
sem birtist í þessu tölublaði Læknablaðsins
og kom einnig fram í niðurstöðum nær-
ingarrannsóknar hjá gjörgæslusjúklingum
á Landspítala.5 Það virðist því vera erfitt að
ná settum markmiðum í inntöku próteina á
sjúkrahúsum, hvort sem það er með venju-
legri fæðuinntöku eða með gjöf næringar-
lausna. Þarna má hugsanlega gera betur ef
hægt er að auka próteininntöku sjúklinga
með einhverjum leiðum. Ymislegt bendir
til þess að hægt sé að bæta horfur sjúklinga
ef fyrrgreindum markmiðum í próteininn-
töku er náð og að það sé mikilvægara en að
ná settum markmiðum í orkugjöf.5
Ef marka má niðurstöður þessara rann-
sókna er þörf á próteinríkara fæði á sjúkra-
húsum. Forsenda góðrar næringarmeð-
ferðar er vandað mat á næringarástandi
og það er vel framkvæmanlegt eins og sést
á þeirri rannsókn sem hér er til umfjöll-
unar. Það ætti að vera hluti af uppvinnslu
sjúklinga sem þurfa innlögn á sjúkrahús
vegna alvarlegra veikinda eða slysa. Huga
þarf vel að mataræði sjúklinganna, hafa
matinn lystugan og sníða að þörfum hvers
og eins. Næringarmeðferð er stór hluti af
heildarmeðferð sjúklinga og rannsóknum
á þessu sviði hefur vaxið fiskur um hrygg.
Margt er þó ennþá óljóst og þörf er á frekari
rannsóknum. Niðurstöður rannsóknarinn-
ar ættu því að vera höfundum og öðrum
hvatning til frekari dáða á þessu sviði.
Heimildír
1. Vilhjálmsdóttir DÖ, Hinriksdóttir HH, Þórðardóttir FR,
Þórsdóttir I, Gunnarsdóttir I. Orku- og próteinneysla
skurðsjúklinga á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala.
Læknablaðið 2013; 99: 71-6.
2. Hiesmayr M, Schindler K, Pemicka E, Schuh C, Scho-
eniger-Hekele A, Bauer P, et al. Decreased food intake
is a risk factor for mortality in hospitalised patients: the
NutritionDay survey 2006. Clin Nutr 2009; 28:484-91.
3. Casaer MP, Mesotten D, Hermans G, Wouters PJ, Schetz
M, Meyfroidt G, et al. Early versus late parenteral nutri-
tion in critically ill adults. N Engl J Med 2011; 365: 506-17.
4. Weijs PJ, Stapel SN, de Groot SD, Driessen RH, de Jong
E, Girbes AR, et al. Optimal protein and energy nutrition
decreases mortality in mechanically ventilated, critically
ill patients: a prospective observational cohort study. JPEN
J Parenter Enteral Nutr 2012; 36: 60-8.
5. Kristinsson B, Sigvaldason K, Kárason S. Orkunotkun og
næring gjörgæslusjúklinga. Læknablaðið 2009; 95:491-7.
Nutrition in hospitalized patients
Kristinn Sigvaldason M.D.
Chief of Intensive Care Unit
Landspítali University Hospital
Fossvogur
LÆKNAblaðið 2013/99 69