Læknablaðið - 15.02.2013, Síða 34
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Markmiðið er að njóta
lífsins þrátt fyrir verki
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Á Reykjalundi hefur um allnokkurt
skeið verið boðið upp á hugræna atferlis-
meðferð í tengslum við meðferð við þrá-
látum verkjum og að sögn Rúnars Helga
Andrasonar sálfræðings hefur þetta
gefið góða raun. Rúnar kynnti þetta með-
ferðarúrræði á málþingi á nýafstöðnum
Læknadögum.
„Hugræn atferlismeðferð (HAM) var tekin
upp sem meðferðarúrræði á Reykjalundi
árið 1997. Þá var HAM að ryðja sér til
rúms hér á landi og fáir þekktu út á hvað
meðferðin gekk. Nú er ástandið hins vegar
gjörbreytt og langflestir hafa heyrt þess-
arar meðferðar getið, auk þess sem sérhæf-
ing hefur aukist til muna," segir Rúnar.
Á verkjasviði Reykjalundar hefur með-
ferðin verið þróuð sérstaklega með tilliti til
þrálátra verkja og er nú í boði sem sérhæft
og gagnlegt meðferðarúrræði.
„Sé litið til sögunnar var HAM upp-
haflega þróað sem meðferðarúrræði við
þunglyndi og í fyrstu var það notað þann-
ig á Reykjalundi. Sjúklingar fengu 12 tíma
einstaklingsmeðferð og um mitt ár 2003
fór af stað rannsókn á árangri þessarar
HAM-meðferðar. Þeirri rannsókn lauk árið
2008 og þá var farið að rýna í niðurstöður
og skoða bæði form og inntak meðferðar-
innar sjálfrar. Rannsóknin var mjög ítarleg
og niðurstöður hennar merkilegar en við
drógum meðal annars þann lærdóm af
henni að meðferðina þyrfti að aðlaga betur
að sérstökum aðstæðum sjúklinganna hér
á Reykjalundi."
Læra að lifa með verkjunum
Að sögn Rúnars eru algengustu verkir sem
sjúklingar á Reykjalundi fást við ýmiss
konar bakverkir og hálsverkir en geta þó
verið af ýmsum öðrum toga. Ávallt er
samt um króníska verki að ræða sem þurfa
stöðugrar meðferðar við. „Sjúklingarnir
verða allflestir að læra að lifa með verkjun-
Fræðsludagur heimilislækna
- AstraZeneca dagurinn
2. mars 2013
Hinn árlegi fræðsludagur heimilislækna verður haldinn
á Nordica Hótel fyrsta laugardag í mars.
Öldrunarlæknar og endurhæfingarlæknar eru sem fyrr hjartanlega velkomnir.
Fræðsludagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og styrktur af AstraZeneca.
Dagskrá hefst kl. 9.00
Nánari dagskrá verður send læknum sérstaklega.
Fræðslunefnd FÍH
AstraZeneca
um og endurhæfingin gengur út á að gera
iíf þeirra sem bærilegast þrátt fyrir þá."
Hann segir meginbreytinguna hafa
falist í því að hefja hópmeðferð í stað ein-
staklingsmeðferðar og leggja áherslu á
verki sem viðfangsefni. „Við vildum ein-
falda meðferðina, vinna með sjúklingana í
hópum og stytta tímann. Við höfum verið
að þróa þessa meðferð undanfarin 3-4 ár
og með þeim breytingum sem hafa verið
gerðar náum við til mun fleiri einstaklinga
en áður. Þegar tölfræðin er skoðuð kemur
í ljós að rúmlega 90% þeirra sem koma
í endurhæfingu á verkjasviði fara í hug-
ræna atferlismeðferð og á síðasta ári voru
26 hópar keyrðir í gegn. Hver hópur hitt-
ist 6 sinnum og í hverjum þeirra eru 4-6
sjúklingar. Við leggjum megináherslu á
lífsgæði einstaklingsins þrátt fyrir verki,
að lifa með verkjunum fremur en að
afneita þeim. Það er reyndar mikilvægt að
minnast á það að HAM-meðferðin er hluti
af heildrænni meðferð sem sjúklingar á
verkjasviði njóta. Þeir kynnast því allskon-
ar öðrum úrræðum og má nefna slökun og
streitustjórnun, virkniþjálfun, iðjuþjálfun,
sjúkraþjálfun og margt fleira. Fyrir vikið
þurfum við ekki að hugsa fyrir þessu í
HAM-meðferðinni heldur getum einbeitt
okkur að mjög sérhæfðum lausnum sem
byggja á HAM-hugmyndafræðinni."
Aðspurður um hvað sé beinlínis lagt
fyrir sjúklingana í meðferðinni segir
Rúnar að fyrsta skrefið sé að beina athygli
þeirra að því hvernig hugsun okkar getur
haft áhrif á líðan. „Neikvæðar hugsanir
og líkamleg vanvirkni gera verkina mun
verri. Þeir sem hugsa stöðugt um hvernig
verkirnir hindra þá í því að gera alls kyns
hluti og eyðileggja fyrir þeim lífið gera
verkina að aðalatriði í lífi sínu. Við viljum
fá fólk til að skoða hugsanir sínar gagnvart
verkjunum. Þetta snýst ekki um að afneita
þeim, enda eru þeir staðreynd, en með því
að virkja heilann og þar með hugsunina
94 LÆKNAblaðið 2013/99