Læknablaðið - 15.09.2013, Síða 19
Y F I R L I T
Sjálfsprottin heilavefsblæðing
- yfirlitsgrein
Ólafur Árni Sveinsson læknir', Ingvar H. Ólafsson læknir2, Ólafur Kjartansson læknir3, Einar Már Valdimarsson læknir4
ÁGRIP
Sjálfsprottin heilavefsblæðing (spontaneous intracerebral hemorrhage)
er blæðing inn í heilavefinn án þess að um ytri áverka sé að ræða. Milli 10
og 15% allra heilablóðfalla stafa af henni. Árlega veikjast um 30-50 ein-
staklingar af heilavefsblæðingu á íslandi. Dánartíðnin er afar há (30 daga
dánartiðni er 25-50%). Háþrýstingur er algengasta orsökin en ávallt ber
að hafa i huga sértækari orsakir, sér í lagi hjá yngra fólki. Ekki hefur verið
sýnt fram á árangur af skurðaðgerðum nema í sérstökum tilvikum eins og
stórum blæðingum í litlaheila. Hins vegar er afar mikilvægt að sjúklingar
með heilavefsblæðingu séu vistaðir á gjörgæsludeildum eða heilablóð-
fallseiningum þar sem viðhaft er nákvæmt eftirlit með vökustigi, tauga-
einkennum, blóðþrýstingi og vökvabúskap.
’Taugadeild Karólínska
sjúkrahússins, Stokkhólmi,
Svíþjóö,
2taugaskurðdeild,
3röntgendeild,
“taugalækningadeild
Landspítala.
Fyrirspurnir:
Ólafur Sveinsson
olafur.sveinsson
@karolinska.se
Greinin barst
25. mars 2013,
samþykkt til birtingar
21. ágúst 2013.
Engin hagsmunatengsl
gefin upp.
Inngangur
Sjálfsprottin heilavefsblæðing {spontaneous intracerebral
hemorrhagé) er blæðing inn í heilavefinn án ytri áverka.
Milli 10 og 15% allra heilablóðfalla stafa af henni.1 Ár-
lega veikjast um 30-50 einstaklingar af heilavefsblæð-
ingu á Islandi.2 Af einstökum gerðum heilablóðfalla er
dánartíðni hæst meðal þeirra sem fá heilavefsblæðingu
og innanskúmsblæðingu (subarachnoidal hemorrhage).’ Á
heimsvísu verða um tvær milljónir einstaklinga fyrir
heilavefsblæðingu á hverju ári og þriðjungur þeirra
deyr innan eins mánaðar.3 Fullvíst er talið að tilfellum
muni fjölga til muna á næstu áratugum vegna hækk-
andi aldurs flestra þjóða. I þessari grein er fjallað um
faraldsfræði, áhættuþætti, einkenni, greiningu, meðferð
og horfur sjúklinga með sjálfsprottna heilavefsblæðingu.
Aðferðir
Gerð var leit í PubMed-gagnasafninu. Notuð voru leitar-
orðin hemorrhagic stroke, ccrebral hemorrhage, intracerebral
hemorrhage, primary intracerebral hemorrhage og spontaneo-
us intracerebral hemorrhage. Alls fengust 150.564 (55360,
43503, 45176, 2675, 3852) heimildir í þeirri leit. Áhersla
var lögð á greinar sem birst hafa eftir 1985, en í vissum
tilvikum leiddi leitin fram mikilvægar eldri heimildir.
Eingöngu voru lesin ágrip á ensku og íslensku. Aðeins
voru lesnar greinar úr virtum tímaritum sem eru leið-
andi í skrifum um taugalækningar, taugaskurðlækning-
ar og gjörgæslumeðferð. Það skilyrði var sett að tímaritin
væru ritrýnd. Ágrip af fundum eða veggspjöldum voru
ekki skoðuð. Gerðar voru þær kröfur að tilfellaraðir
yrðu að hafa yfir 50 sjúklinga til að koma til álita. Yfir-
litsgreinar í virtum tímaritum voru einnig teknar til
greina. Greinar voru valdar út frá mikilvægi og þýðingu
fyrir skrif þessarar yfirlitsgreinar. Af ofantöldum fjölda
heimilda voru 608 ágrip lesin. Á grunni þeirra voru 135
greinar lesnar og af þeim var efni úr 58 notað í þessa
grein. Sérstök áhersla var lögð á leiðbeiningar amerísku
heilablóðfallssamtakanna frá 2010.5
Faraldsfræði
Álykta má að um 30-50 einstaklingar veikist af sjálf-
sprottinni heilavefsblæðingu árlega á íslandi.2 Á einu
ári, 2007-8, greindust 32 einstaklingar með heilavefs-
blæðingu á íslandi.2 Á Vesturlöndum er nýgengi talið
vera um 10-20 tilfelli á hverja 100.000 íbúa.4 Tíðnin er
breytileg eftir kynþáttum. Meðal svarta kynþáttarins er
tíðnin allt að tvöföld miðað við þann hvíta.4-5 Nýgengi
heilavefsblæðinga meðal Japana (55 á hverja 100.000
íbúa) er svipað og hjá svarta kynstofninum.6 Ástæður
fyrir þessu hafa ekki verið skýrðar en meira algengi
háþrýstings gæti útskýrt þetta að hluta. Tíðni heila-
vefsblæðinga er heldur hærri meðal karla en kvenna,
sérstaklega meðal þeirra sem eru eldri en 55 ára.2-8
Gagnstætt því sem á við um heiladrep hefur heilavefs-
blæðingum ekki fækkað síðustu áratugi.9 Ástæður þessa
eru meðal annars hækkandi meðalaldur, en 85 ára ein-
staklingar hafa tífalt aukna áhættu á heilavefsblæðingu
í samanburði við 50 ára einstaklinga, og aukin notkun
blóðþynningarlyfja.10 Þar á móti hefur meðferð háþrýst-
ings batnað á sama tíma.
Áhættuþættir og orsakir
Háþrýstingur
Fjöldi rannsókna hefur sýnt að háþrýstingur
(>140/90mmHg) er langveigamesti áhættuþátturinn
fyrir heilablæðingu.7-11 Algengi háþrýstings meðal
sjúklinga með heilavefsblæðingu er á bilinu 40 til 89%
eftir rannsóknum. Einstaklingar með háþrýsting eru
í fjórfalt til tífalt meiri áhættu.7'12 Flestar háþrýstings-
blæðingar verða í djúphnoðum (basal ganglia) heilans
LÆKNAblaðið 2013/99 391