Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2013, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.09.2013, Blaðsíða 33
UMFJÖLLUN O G GREINAR Læknar hafa dregist verulega aftur úr öðrum sambærilegum háskólastéttum og má til samanburðar benda á laun lög- fræðinga og verkfræðinga sem starfa hjá ríkinu. Hér ber Læknafélag íslands mikla ábyrgð og hefur ekki haldið nægilega vel á spöðunum." Hann segir engan vafa leika á því í sínum huga hvers vegna íslenska heil- brigðiskerfið sé samkvæmt úttekt OECD talið það þriðja besta í heimi. „Meginástæðan að mínu mati er sú að um áratugaskeið hefur það tíðkast að íslenskir læknar sæki sér framhalds- menntun erlendis til bestu háskólasjúkra- húsa austan hafs og vestan. Þeir hafa síðan komið til baka og hér hefur skapast brunnur þekkingar á því besta sem tíðkast allt í kringum okkur. Það er því þekkingin sem mannaflinn býr yfir, mannauðurinn, sem hefur umfram annað gefið okkur þetta góða heilbrigðiskerfi. Þetta hefur verið okkar meginstyrkur. Núna er þetta að snúast upp í okkar helsta veikleika þar sem fólkið og þekkingin er ekki að skila sér heim með sama hætti." Fleira kemur til að mati Einars enda hafa aðstæður til búsetu erlendis gjör- breyst á undanförnum árum og í dag er auðvelt fyrir íslendinga að búa í útlöndum. „Það er einfaldlega styttra á milli landa í dag en var fyrir nokkrum árum og áratugum. Það er auðveldara að ferðast á milli og eiga stöðug samskipti við fjöl- skyldu og vini í gegnum síma og tölvur. Fólk er ekki eins einangrað í útlöndum og áður og unga fólkið okkar er einfaldlega miklu tilbúnara til að búa erlendis en mín kynslóð var. Þjóðernishugmyndin er líka á undanhaldi, fólk lítur frekar á sig sem alþjóðaborgara og hin ramma taug sem rekka dregur föðurtúna til er ekki eins sterk og áður." Einföld lausn á vandanum /hverju er þá lausnin fólgin? „Lausnin er einfaldlega að hækka launin. Ef menn telja sér trú um að þetta ástand verði leyst með því einu að kaupa tæki eða smíða nýtt hús þá eru þeir á villigötum. Það þarf að gera það líka en eitt og sér er það ekki nóg. Við getum dregið sam- líkingu af því þegar hér á árum áður var sagt að öll vandamál grunnskólans myndu leysast með því að hann yrði einsetinn. Fyrir vikið var mannauðurinn í kennara- stétt vanræktur í áratugi og nú stöndum við frammi fyrir því að vera með best hýsta og dýrasta grunnskólakerfi í veröld- Meginástæðanfyrir óánægju lækna er launin. Læknastéttin hefurfarið dálítið í kringum þetta eins og köttur í kringum heitan graut, ekki viljað liorfast í augu við þetta sem aðalatriðið, heldur bent á slæma aðstöðu, lélegt húsnæði og gömul tæki scm skýringar. inni en samanburður við árangur nem- enda í öðrum löndum er ekki okkur í vil. Hið sama á við um heilbrigðiskerfið okkar, ef við leggjum eingöngu áherslu á tæki og búnað lendum við í meðal- mennsku hvað mannauðinn varðar. Við verðum líka að huga að því hvernig við nýtum læknana. Það fer alltof mikill hluti af starfsdegi sérfræðinga í alls kyns smámuni og reddingar, sem ættu ef allt væri með felldu að vera í höndum annarra. Þetta er hluti af stjórnunarvanda spítalans sem hefur verið viðvarandi um árabil og skilað sér í fáránlegri skiptingu í stjórnun spítalans á milli lækninga og hjúkr- unar, þar sem sérfræðilæknar hafa orðið algerlega útundan hvað varðar umgjörð og stuðning svo þeir geti sinnt því sem þeir kunna best, lækningum, kennslu og stjórnun." Einar dregur í lokin upp fremur dapra framtíðarsýn ef ekki verður snúið við blaðinu. „Gæðum íslenska læknanámsins mun einnig hraka samhliða þessari þróun og eins og ástandið er í dag má taka svo djúpt í árinni að segja að við séum að mennta framúrskarandi lækna fyrir erlendan markað, þegar við blasir að þeir fara til framhaldsnáms erlendis og snúa ekki til baka. Þetta ástand hefur verið viðvarandi í fimm ár og ef við höldum áfram á sömu braut verður sífellt erfiðara að snúa við. Þetta hefur einnig bráð áhrif á lífsgæði alls almennings í landinu. Ef heilbrigðiskerfinu hrakar verður ófýsilegra að búa hér og allir sem tök hafa á munu leita annað. Þetta er ófögur framtíðarsýn fyrir íslenska þjóð. Dæmin á spítalanum um vanda ein- stakra deilda blasir við öllum sem vilja sjá. Mannekla í röðum lækna er staðreynd og ýmis sérhæfð þjónusta sem áður var í boði er það ýmist ekki lengur eða í mun takmarkaðra mæli en áður. Landspítalinn reiðir sig í æ meira mæli á störf farand- lækna, sérfræðinga sem búa erlendis og koma hingað upp og framkvæma aðgerðir á vissum fresti. Þetta þýðir að þjónustan er ekki full- nægjandi og engin uppbygging á sér stað með nýjustu þekkingunni." LÆKNAblaðið 2013/99 405
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.