Læknablaðið - 15.09.2013, Qupperneq 33
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Læknar hafa dregist verulega aftur úr
öðrum sambærilegum háskólastéttum
og má til samanburðar benda á laun lög-
fræðinga og verkfræðinga sem starfa hjá
ríkinu. Hér ber Læknafélag íslands mikla
ábyrgð og hefur ekki haldið nægilega vel á
spöðunum."
Hann segir engan vafa leika á því í
sínum huga hvers vegna íslenska heil-
brigðiskerfið sé samkvæmt úttekt OECD
talið það þriðja besta í heimi.
„Meginástæðan að mínu mati er sú
að um áratugaskeið hefur það tíðkast
að íslenskir læknar sæki sér framhalds-
menntun erlendis til bestu háskólasjúkra-
húsa austan hafs og vestan. Þeir hafa
síðan komið til baka og hér hefur skapast
brunnur þekkingar á því besta sem tíðkast
allt í kringum okkur. Það er því þekkingin
sem mannaflinn býr yfir, mannauðurinn,
sem hefur umfram annað gefið okkur
þetta góða heilbrigðiskerfi. Þetta hefur
verið okkar meginstyrkur. Núna er þetta
að snúast upp í okkar helsta veikleika þar
sem fólkið og þekkingin er ekki að skila
sér heim með sama hætti."
Fleira kemur til að mati Einars enda
hafa aðstæður til búsetu erlendis gjör-
breyst á undanförnum árum og í dag er
auðvelt fyrir íslendinga að búa í útlöndum.
„Það er einfaldlega styttra á milli
landa í dag en var fyrir nokkrum árum
og áratugum. Það er auðveldara að ferðast
á milli og eiga stöðug samskipti við fjöl-
skyldu og vini í gegnum síma og tölvur.
Fólk er ekki eins einangrað í útlöndum og
áður og unga fólkið okkar er einfaldlega
miklu tilbúnara til að búa erlendis en mín
kynslóð var. Þjóðernishugmyndin er líka
á undanhaldi, fólk lítur frekar á sig sem
alþjóðaborgara og hin ramma taug sem
rekka dregur föðurtúna til er ekki eins
sterk og áður."
Einföld lausn á vandanum
/hverju er þá lausnin fólgin?
„Lausnin er einfaldlega að hækka launin.
Ef menn telja sér trú um að þetta ástand
verði leyst með því einu að kaupa tæki eða
smíða nýtt hús þá eru þeir á villigötum.
Það þarf að gera það líka en eitt og sér
er það ekki nóg. Við getum dregið sam-
líkingu af því þegar hér á árum áður var
sagt að öll vandamál grunnskólans myndu
leysast með því að hann yrði einsetinn.
Fyrir vikið var mannauðurinn í kennara-
stétt vanræktur í áratugi og nú stöndum
við frammi fyrir því að vera með best
hýsta og dýrasta grunnskólakerfi í veröld-
Meginástæðanfyrir óánægju lækna er launin.
Læknastéttin hefurfarið dálítið í kringum þetta
eins og köttur í kringum heitan graut, ekki viljað
liorfast í augu við þetta sem aðalatriðið, heldur bent
á slæma aðstöðu, lélegt húsnæði og gömul tæki scm
skýringar.
inni en samanburður við árangur nem-
enda í öðrum löndum er ekki okkur í vil.
Hið sama á við um heilbrigðiskerfið
okkar, ef við leggjum eingöngu áherslu
á tæki og búnað lendum við í meðal-
mennsku hvað mannauðinn varðar.
Við verðum líka að huga að því hvernig
við nýtum læknana. Það fer alltof mikill
hluti af starfsdegi sérfræðinga í alls kyns
smámuni og reddingar, sem ættu ef allt
væri með felldu að vera í höndum annarra.
Þetta er hluti af stjórnunarvanda spítalans
sem hefur verið viðvarandi um árabil og
skilað sér í fáránlegri skiptingu í stjórnun
spítalans á milli lækninga og hjúkr-
unar, þar sem sérfræðilæknar hafa orðið
algerlega útundan hvað varðar umgjörð
og stuðning svo þeir geti sinnt því sem
þeir kunna best, lækningum, kennslu og
stjórnun."
Einar dregur í lokin upp fremur dapra
framtíðarsýn ef ekki verður snúið við
blaðinu.
„Gæðum íslenska læknanámsins mun
einnig hraka samhliða þessari þróun og
eins og ástandið er í dag má taka svo djúpt
í árinni að segja að við séum að mennta
framúrskarandi lækna fyrir erlendan
markað, þegar við blasir að þeir fara til
framhaldsnáms erlendis og snúa ekki til
baka.
Þetta ástand hefur verið viðvarandi í
fimm ár og ef við höldum áfram á sömu
braut verður sífellt erfiðara að snúa við.
Þetta hefur einnig bráð áhrif á lífsgæði alls
almennings í landinu. Ef heilbrigðiskerfinu
hrakar verður ófýsilegra að búa hér og allir
sem tök hafa á munu leita annað. Þetta er
ófögur framtíðarsýn fyrir íslenska þjóð.
Dæmin á spítalanum um vanda ein-
stakra deilda blasir við öllum sem vilja
sjá. Mannekla í röðum lækna er staðreynd
og ýmis sérhæfð þjónusta sem áður var í
boði er það ýmist ekki lengur eða í mun
takmarkaðra mæli en áður. Landspítalinn
reiðir sig í æ meira mæli á störf farand-
lækna, sérfræðinga sem búa erlendis og
koma hingað upp og framkvæma aðgerðir
á vissum fresti.
Þetta þýðir að þjónustan er ekki full-
nægjandi og engin uppbygging á sér stað
með nýjustu þekkingunni."
LÆKNAblaðið 2013/99 405