Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2013, Page 24

Læknablaðið - 15.09.2013, Page 24
Y F I R L I T er mikilvægt að fylgjast náið með hugsanlegri þróun vatnshöfuðs í bráða- og síðfasa. Sknrðaðgerð Lengi var talið að skurðaðgerð til brottnáms blæðingar hefði hag- stæð áhrif á bata með því að lækka innankúpuþrýsting og þrýst- ing á aðliggjandi heilavef. Fjöldi rannsókna á síðustu árum bendir ekki til gagnsemi skurðaðgerðar ofan hnykiltjalds nema í undan- tekningartilfelllum.51 Slík aðgerð á rétt á sér þegar stór blæðing liggur grunnt undir höfuðkúpubeini.52 Skurðaðgerð vegna blæð- ingar í litla heila getur aftur á móti bjargað lífi. Það á einkum við ef blæðingin er stærri en 3 cm í þvermál og veldur þrýstingi á heilastofninn og/eða orsakar vatnshöfuð (sjá mynd 5).53-54 í slíkum tilfellum er afar mikilvægt að fylgjast grannt með klínísku ástandi og grípa inn í áður en heilastofnseinkenni og skerðing meðvitund- ar nær að þróast. Horfur Samkvæmt erlendum rannsóknum er dánartíðnin fyrstu 6 mán- uðina eftir heilavefsblæðingu á milli 23 og 58%.55 Af þeim sem lifa er stór hópur sem nær sér vel. Eru það yfirleitt einstaklingar með smærri blæðingar. Lækkað meðvitundarstig við innlögn á sjúkrahús, stórt rúmmál blæðingar, hár aldur og blæðing inn í heilahólfin eru þekktir þættir sem spá fyrir um slæmar horfur.55 Endurblæðing verður í um 10-14% tilfella yfir lengri tíma.56 Hér er ekki átt við stækkun blæðingarinnar á fyrstu klukkustundunum. Hættan á endurblæðingu minnkar með tímanum. Framtíðarhorfur Ekki hefur náðst sami árangur í meðferð heilavefsblæðinga og í meðferð heilablóðþurrðar á síðustu áratugum. Töluverðar rannsóknir eiga sér stað í því skyni að bæta meðferðarárangur. INTERACT 2 er stór fjölþjóðleg rannsókn sem miðar að því að finna heppilegustu blóðþrýstingsmörkin. Nýlegar niðurstöður úr þeirri rannsókn sýndu að óhætt er að lækka slagbilsþrýsting að 140 mmHg samanborið við hefðbundnar leiðbeiningar þar sem lægstu mörk eru 180 mmHg. Hafði þessi aukna blóðþrýstings- lækkun heldur betri útkomu í för með sér í heildina séð, en þó ekki hvað líkur á dauða eða alvarlegri fötlun varðaði.57 Lengi óttuðust menn að lækkun blóðþrýstings gæti valdið heilablóðþurrð í kring- um sjálfa blæðinguna. Slík hefur ekki verið raunin í rannsóknum. STICH II er stór rannsókn þar sem könnuð er gagnsemi skurðað- gerða á blæðingum sem liggja grunnt undir höfuðkúpubeini ofan hnykiltjalds. Rannsóknir fara fram á svokölluðu minimally invasive surgery. Þeirri aðferð fylgir minni skaði á umlykjandi heilbrigðum vef. Þar gefst tækifæri til að draga út blóð og einnig til að gefa staðbundna segaleysandi meðferð til að leysa upp storknað blóð. Virðist þessi aðferð lofa góðu.58 Eins og getið var að framan hafði gjöf rFVIIa (Activated recombinant factor VII) sýnt vissan árangur en aukin segamyndun vó upp jákvæð áhrif lyfsins. SPOTLIGHT er rannsókn þar sem kannaður er árangur rFVIIa hjá einstaklingum sem hafa spot sign á tölvusneiðmynd snemma í sjúkdómsferlinu, sem er tákn um virka blæðingu. Niðurstöður liggja ekki fyrir. Fleiri storkulyf eru til rannsóknar. Samantekt Sjálfsprottin heilavefsblæðing veldur um 10-15% allra heilablóð- falla. Um 30-50 einstaklingar veikjast árlega á íslandi. Dánartíðnin er afar há. Háþrýstingur er algengasta orsökin en ávallt ber að leita eftir sértækum orsökum, sér í lagi hjá yngra fólki. Skurðaðgerðir hafa ekki sýnt fram á árangur nema í undan- tekningartilvikum eins og við stórum blæðingum í litla heila. Hins vegar er afar mikilvægt að sjúklingar með heilavefsblæðingu séu vistaðir á gjörgæsludeildum eða heilablóðfallseiningum eftir því sem við á, þar sem viðhaft er nákvæmt eftirlit með vökustigi, taugaeinkennum, blóðþrýstingi og vökvabúskap. ENGLISH SUMMARY Spontaneus intracerebral haemhorrhage -review Sveinsson O', Olafsson IH2, Kjartansson O3, Valdimarsson EM4 Spontaneous intracerebral hemorrhage occurs when a blood vessel within the brain parenchyma ruptures without a near related trauma. It is the second most common form of stroke, accounting for approximately 10% to 15% of new strokes. The 30 day mortality is very high (25-50%). Hypertension is the most common cause. Unfortunately, surgery has not proven to be helpful except in certain exceptions such as in large cere- bellar hemorrhage. Nonetheless, it is very important that patients with ICH are admitted to an intensive care or a stroke unit with close surveill- ance of consciousness, focal neurologic symptoms, blood pressure and fluid balance. Keywords: Spontaneous intracerebral hemorrhage, hypertension, cerebral amyloid angiopathy, raised intracranial pressure. Correspondence: Olafur Sveinsson, olafur.sveinsson@karolinska.se 'Department of Neurology Karolinska Hospital, Stockholm, Sweden, !Department of neurosurgery, University Hospital oflceland, Reykjavik, lceland, 3Department ofradiology, University Hospital of lceland, Reykjavik, lceland, ‘Department of neurology, University Hospital of lceland, Reykjavik, lceland. 396 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.