Læknablaðið - 15.09.2013, Side 37
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Einstaklingsmiðuð heilsurækt
„Þyngd skiptir vissulega máli varðandi heilsuna en hún er þó alls ekki aðalatriði og margir eru orönir skemmdir af
hugmyndafræöinni sem er ríkjandi í samfélaginu um ofþyngd," segir Erla Gerður Sveinsdóttir læknir ogforstjóri
Heilsuborgar.
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
I Heilsuborg í Faxafeni er starfrækt
nokkuð sérhæfð líkams- og heilsu-
ræktarstöð. Þangað leitar fólk með marg-
háttaðan heilsufarsvanda en að sögn Erlu
Gerðar Sveinsdóttur læknis og forstjóra
fyrirtækisins er boðið upp á lausnir og
námskeið sem sniðin eru að þörfum
hvers og eins.
„Það sem við viljum gera er að búa til stað
þar sem einstaklingar geta fengið góða
aðstoð við að gera það sem þeir geta sjálfir
gert fyrir heilsu sína. Fengið vandaða
leiðsögn meðan unnið er með heilsu-
verkefnin sem hluta af daglegu lífi. Við
leggjum áherslu á hvað fólkið okkar getur
gert en ekki hvað það er ófært um að gera.
Þess vegna er mikilvægt að átta sig á því
í byrjun hvar einstaklingurinn er staddur
heilsufarslega og vinna útfrá því," segir
Erla Gerður í upphafi.
„Lífsstíllinn hefur svo gríðarlega mikið
að segja fyrir heilsuna og það er svo margt
sem hægt er að gera til að bæta líðan og
heilbrigði þó ýmislegt ami að. Ástæða
þess að líkamsrækt er svo stór hluti af
Heilsuborg er að hreyfing er bara svo stór
þáttur í því að fyrirbyggja og meðhöndla
alls konar veikindi og mein. Það á við
hvort sem við erum að fást við bakverki,
offitu, þunglyndi, hjartasjúkdóma, gigt
eða önnur heilsuverkefni.
Hér tökum við á móti fólki sem ekki
hefur stundað neina hreyfingu svo
árum skiptir jafnvel. Fólk með alls kyns
vanda sem er hrætt við að hreyfa sig
og veit hreinlega ekki hvernig það á að
bera sig að við hreyfingu. Hingað koma
líka hraustir einstaklingar í góðu formi
sem vilja stunda hreyfingu í rólegu og
vönduðu umhverfi. Stærsti hiuti okkar
skjólstæðinga eiga við heilsufarsvanda að
etja af einhverju tagi. Það er hins vegar
mjög misjafnt hvernig heilsufari okkar
fólks er háttað, sumir eiga við margþættan
og flókinn vanda að stríða en aðrir eru að
leita eftir lausn við streitu, bakverkjum,
háþrýstingi eða koma bara til að styrkjast
og auka orkuna í dagsins önn."
Erla Gerður segir að það færist í vöxt
að læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk
vísi fólki til þeirra. „Þetta úrræði hefur
vantað í heilbrigðiskerfið. Það er svo margt
í gangi í samfélaginu hvað varðar heilsu
og hreyfingu og margt af því er ágætt en
sumt er byggt á vanþekkingu eða mjög
þröngu sjónarhorni og margir verða svolít-
ið ringlaðir af þessu öllu saman. Ekki síst
hvað varðar offitu og heilbrigt mataræði.
Þar er stöðugt eitthvað nýtt í boði og sumt
er býsna fráleitt."
Þegar nýr skjólstæðingur leitar til
Heilsuborgar býðst honum að ganga í
gegnum ákveðið ferli sem Erla Gerður
lýsir nánar.
„Þegar einstaklingur Ieitar til okkar
ráðleggjum við honum að byrja á heilsu-
mati hjá hjúkrunarfræðingi. Þar er farið í
gegnum ýmsa þætti, svo sem mataræði og
matarvenjur, hreyfingu, verki, svefn, and-
lega líðan, streitu og helstu áhættuþætti
lífsstílssjúkdóma. Þar eru gerðar ýmsar
mælingar og gefnar ráðleggingar um
næstu skref. Ef þörf er á frekari greiningu
eru til staðar læknir, næringarfræðingar,
sálfræðingar og sjúkraþjálfarar. Það er
líka hægt að ieita beint tii þessara aðila.
Ef um er að ræða einstakling sem vill ná
stjórn á þyngd sinni og léttast, byrjum við
á að leggja upp daglegt plan með honum
þar sem reglu er komið á mataræðið
LÆKNAblaðið 2013/99 409