Læknablaðið - 15.09.2013, Page 38
UMFJOLLUN O G GREINAR
og hreyfing er sett inn í stundaskrána.
Sumum nægir aðhald og stuðningur við
að borða reglulega yfir daginn og gæta að
hollustunni, aðrir þurfa mikinn stuðning
við að breyta daglegum venjum. Hópurinn
er mjög breiður og við leggjum okkur fram
við að finna hvað hentar hverjum einstak-
lingi. Við leggjum áherslu á ábyrgð hvers
og eins á að fylgja leiðbeiningunum en við
erum alltaf til staðar til stuðnings ef ekki
gengur sem skyldi."
Engin samkeppni um útlit
„Starfsemin í Heilsuborg er í raun þríþætt.
Fólk getur komið hingað og stundað
líkamsrækt á eigin vegum. Hér er fremur
rólegt og þægilegt að vera, enginn hávaði
eða samkeppni um útlit. Hér er þó engu að
síður skemmtilegt að hreyfa sig og vinna
með heilsuna enda leggjum við áherslu á
lífsgleðina. Síðan er hægt að hitta einstaka
fagaðila og fá ráðgjöf án þess að vera í
skipulögðu prógrammi að öðru leyti. Við
erum með stutt námskeið, svo sem í hug-
rænni atferlismeðferð eða streitustjórnun.
Sérstaða okkar liggur síðan í því hvernig
við tvinnum þetta saman og búum til
námskeið sem við köllum „Lausnir" sem
eru mismunandi fyrir mismunandi hópa.
Heilsulausnir eru viðamestar og eru
ársnámskeið fyrir þá sem vilja ná að
stjórna þyngd sinni. Þar vinnum við með
hreyfingu, mataræði, reglu í daglegu lífi
og andlega líðan. Þar er meðal annars
námskeið í svengdarvitund sem byggir
á hugrænni atferlismeðferð. Þessi lausn
hefur gefið mörgum mjög góðan árangur.
Hún hentar til dæmis vel sem framhald
fyrir þá sem hafa verið í offitumeðferð
á Reykjalundi eða á Heilsustofnuninni
í Hveragerði. Við vinnum náið með
offitusviðinu á Reykjalundi og byggjum á
sömu hugmyndafræði. Þá bjóðum við upp
á „Hugarlausnir" sem eru sniðnar fyrir
þá sem glíma við streitu, þunglyndi eða
kvíða. Þar er námskeið í núvitund (mind-
fulness) og áhersla á hreyfingu sem lykil að
bættri andlegri líðan. Við notum forskrift
hreyfiseðilsins þar sem þegar er'búið að
finna út hvaða hreyfing hentar hverjum
sjúkdómi best. Orkulausnir eru sniðnar
að þörfum þeirra sem eru að ná sér eftir
alvarleg líkamleg veikindi eða geta ekki
farið skarpt af stað af öðrum líkamlegum
orsökum. Stoðkerfislausnir henta þeim
sem glíma við gigt, álagsmein eða annan
vanda í stoðkerfi og hjartalausnirnar eru
sniðnar fyrir einstaklinga með háþrýsting
eða hjartasjúkdóma. Fræðsla er alltaf hluti
af námskeiðunum okkar og við erum
með marga frábæra fyrirlesara hjá okkur í
Heilsuborgarskólanum."
Á þeim fjórum árum sem liðin eru frá
stofnun fyrirtækisins hefur áherslan að
sögn Erlu Gerðar færst æ meira yfir á svið
meðferðar fyrir einstaklinga sem eru að
fást við tiltekin heilsufarsverkefni.
„Það fjölgar alltaf þeim einstaklingum
sem hingað koma eftir tilvísun frá lækni
sínum en þessi þjónusta okkar er ekki
niðurgreidd af heilbrigðiskerfinu og því
þarf fólk að bera allan kostnað sjálft að
mestu leyti. Við erum auðvitað að vonast
til þess að þetta verði viðurkennt sem hluti
af heilbrigðisþjónustunni, því árangurinn
er ótvíræður og við erum mjög stolt af því
hvað við getum boðið okkar fólki fyrir þó
ekki hærri upphæð.
Stór þáttur í okkar starfi er að virkja
fólk til að vilja breyta lífsstíl sínum og
hvetja það til hreyfingar. Við beitum meðal
annars markþjálfun í þessu skyni til að
laða fram það besta í einstaklingnum.
Margir koma hingað inn mjög jákvæðir
og tilbúnir til að gera breytingar á sínum
högum og þeir sem nýta námskeiðin
með jákvæðum og opnum hug ná undan-
tekingarlaust mjög góðum árangri. Fyrir
suma hefur aðdragandinn að því að koma
hingað til okkar verið mjög langur og
það krefst kjarks að brjóta ísinn og koma.
Það er oft stærsti þröskuldurinn sem ein-
staklingurinn þarf að yfirstíga. Það felst
mikill styrkur í því að leita sér aðstoðar
af þessu tagi og það er mjög mikilvægt að
taka vel á móti fólki sem er að koma til
okkar í fyrsta skipti. Margir hafa reynt alls
konar hluti og orðið fyrir endurteknum
vonbrigðum og eru ekki sérlega vongóðir
um árangur þegar þeir koma hingað til
okkar. Þeir þurfa kannski lengri tíma til
að sannfærast um að þetta muni skila
þeim raunverulegum árangri og ég gæti
sagt margar sögur af fólki sem hefur náð
ótrúlega góðum árangri þó ekki hafi litið
vel út í byrjun."
Fyrstu skrefin erfiðust
„Við ráðleggjum fólki að koma og aðstoð-
um við að finna leið til að ná betri líðan.
Það er tilgangslaust að sitja heima og bíða
eftir nógu góðri líðan til að geta byrjað
hjá okkur. Það gerist ekki þannig. En
fyrstu skrefin eru mjög erfið fyrir marga.
Það er svo gaman að sjá þegar vonin og
gleðin kviknar í augum fólks og það fer að
trúa því að þetta muni skila árangri. Við
þvingum engan og segjum engum fyrir
verkum. Við erum meira í því að aðstoða
einstaklinginn við að finna sína leið. Það
er tilgangurinn með þessu og við leggjum
mikla áherslu á gleðina í öllu okkar starfi.
Við mælum ekki okkar árangur eingöngu
í minnkandi þyngd eða lækkaðri fitupró-
sentu, heldur auknum lífsgæðum og
bættri líðan. Þyngd skiptir vissulega máli
varðandi heilsuna en hún er þó alls ekki
aðalatriði og margir eru orðnir skemmdir
af hugmyndafræðinni sem er ríkjandi í
samfélaginu um ofþyngd."
Erla Gerður hefur einnig menntað sig í
lýðheilsufræðum og samtali okkar lýkur á
þessum orðum:
„Við þurfum að gera þjóðfélagið okkar
þannig úr garði að auðveldara sé fyrir
fólkið að stunda heilbrigða og holla lífs-
hætti. Þar á ég við samgöngur, aðbúnað
á vinnustöðum og í skólum, aðgang að
hollum mat og almennt meiri upplýsingar
um hvað fólk eigi að gera til að gæta að
heilsu sinni. Við þurfum að vera með-
vitaðri um aðvaranir sem líkaminn gefur
frá sér og grípa inn í fyrr en nú er. Það er
til dæmis mjög mikilvægt að staldra við af
og til og fara yfir lykilþætti í lífinu. Hreyfi
ég mig nóg? Er ég að þyngjast? Borða ég
reglulega og gæti að hollustunni? Nýt ég
lífsins? Þarna vantar oft talsvert upp á og
fólk leitar ekki aðstoðar fyrr en komið er
í eitthvert óefni. Þá getur verið erfitt að
snúa þróuninni við, breyta um lífsstíl sem
gróinn er við ýmsar daglegar venjur. Sam-
félagið okkar er orðið verulega tvískipt að
þessu leyti. Það er stór hópur fólks sem
stundar reglulega hreyfingu og gætir vel
að heilsu sinni. Síðan er annar mjög stór
hópur sem er beinlínis orðinn mjög veikur
af slæmum lífsstíl og venjum. Þessi hópur
þarf á mikilli og sérhæfðri aðstoð að halda.
Þarna á milli er þriðji hópurinn, sem er
kannski stærstur, og hann er afskiptur,
stundar hvorki reglulega hreyfingu né
heilbrigðan lífsstíl og stefnir inn í seinni
hópinn ef hann snýr ekki við blaðinu.
Þetta er ungt fólk að miklu leyti og þenn-
an hóp þarf að styðja mun meira en nú er."
410 LÆKNAblaðiö 2013/99