Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2013, Síða 44

Læknablaðið - 15.09.2013, Síða 44
UMFJÖLLUN O G GREINAR Þjálfun og endurmenntun lækna í heilsugæslu til að bregðast við slysum og bráðum veikindum Hjalti Már Björnsson bráðalæknir bráðadeild Landspítala hjaltimb@gmail.com Sigurður Halldórsson heilsugæslulæknir heilbrigðisstofnun Þingeyinga Landsbyggðarlæknar sinna fjölbreyttri bráðaþjónustu Ein af forsendum þess að byggð þrífist utan höfuðborgarsvæðisins á íslandi er að fólkið sem þar býr hafi aðgang að nauðsynlegri læknisþjónustu. í smærri byggðarlögum hefur þessu verið sinnt með uppbyggingu á heilsugæslustöðvum þar sem læknir er ávallt tiltækur þegar slys verða eða upp koma bráð veikindi. Þetta fyrirkomulag byggir á því að til staðar séu vel menntaðir heilsugæslulæknar með sér- þekkingu á greiningu og fyrstu meðferð við þessar aðstæður, en mjög hefur borið á skorti á læknum til starfa í heilsugæslu undanfarin ár. Störf landsbyggðarlækna eru um margt ólík störfum við heilsugæslu í þéttbýli. Fyrir utan að þurfa að sinna móttöku og fyrstu meðferð í öllum neyðartilvikum, sem er venjulega sinnt á bráðadeildum sjúkrahúsa í þéttbýli, þurfa lands- byggðarlæknar einnig að vera færir um að fara sjálfir á vettvang í sjúkrabíl og starfa við aðstæður sem eru mörgum læknum framandi. Þar sem þessi tilvik geta verið af mjög ólíkum toga og gerast fremur sjaldan, en líf sjúklinga veltur á að læknirinn kunni til verka, er þetta mjög krefjandi starf. Könnun á þjálfun og endurmenntun heilsu- gæslulækna í bráöalækningum Til að kanna stöðu þessara mála á ís- landi var send netkönnun vorið 2011 til lækna starfandi í heilsugæslu á landinu gegum póstlista Félags íslenskra heimilis- lækna á heimasíðu Læknafélags íslands.1 Var læknum skipt í þéttbýlis- eða lands- byggðarlækna eftir því hvort þeir störfuðu á höfuðborgarsvæðinu eða Akureyri, eða utan þeirra svæða. Við samanburð á eldri og yngri læknum var miðað við hvort 20 ár voru liðin frá því að viðkomandi útskrifaðist úr læknadeild. Af þeim 256 læknum sem skráðir voru á póstlistann bárust svör frá 105, eða 40%. Er þetta lægra svarhlutfall en vonir stóðu til og takmarkar aðeins gildi niðurstaðnanna. Þjálfun i læknanámi Þegar læknar voru beðnir um að meta þjálfun sem þeir fengu í læknadeild eða í sérnámi til að sinna bráðavandamálum af 9 ólíkum tegundum, reyndust þeir að meðaltali í 73% tilvika telja hana hafa verið þokkalega eða betri, en í 27% tilvika töldu læknar að þjálfuninni hefði verið ábótavant eða mjög ábótavant. Reyndist starfsaldur ekki hafa teljandi áhrif á mat lækna á þessu atriði. Sérhæfð bráðanámskeið Ekki er langt síðan farið var að bjóða upp á sérhæfð námskeið fyrir lækna til að bregðast við bráðavandamálum. í flestum tilvikum er hér um viðbót við aðra mennt- un lækna að ræða, sem er líkleg til að auka gæði læknisþjónustunnar, en ekki þannig að læknar hafi enga þekkingu á við- komandi sviði án þeirra. Til eru fjölmargar gerðir þessara sérhæfðu námskeiða, en spurt var um nokkur þeirra sem hafa verið kennd hér á landi. Af þeim sérhæfðu námskeiðum sem læknum standa til boða til bráðaþjálfunar höfðu 83% sótt sérhæft endurlífgunarnámskeið, að miðgildi fyrir fjórum árum síðan. Lengst er síðan var farið að bjóða upp á þessi námskeið hér á landi og kemur því ekki á óvart að 83% lækna hafa lokið slíku námskeiði. Það er þó áhyggjuefni að hjá 27% svarenda eru liðin meira en 5 ár síðan þeir sóttu nám- skeið í sérhæfðri endurlífgun. í fyrri rann- sókn á viðhorfum landsbyggðarlækna hafa 81% þeirra talið eðlilegt að læknar fengju endurmenntun að minnsta kosti einu sinni á ári á þessu sviði og er ljóst að það mark- mið hefur ekki náðst.2 Nítján prósent lækna höfðu sótt nám- skeið í sérhæfðri endurlífgun barna (mið- gildi fyrir 5 árum) og 42% höfðu sótt námskeið í greiningu og meðferð slasaðra (miðgildi fyrir 6 árum). Sérhæft námskeið í bráðalækningum utan sjúkrahúsa höfðu 34% sótt, að miðgildi fyrir 6 árum síðan. Eins og sjá má á mynd 1 var algengt að meira en 5 ár væru liðin síðan læknar sóttu þessi námskeið. Marktækt fleiri landsbyggðalæknar höfðu sótt námskeið í greiningu og með- ferð slasaðra en raunin var meðal lækna sem starfa á höfuðborgarsvæðinu eða Ak- ureyri (58% og 32%, p=0,01). Ekki reyndist marktækur munur á þessum tveimur hópum hvað önnur námskeið varðar. Marktækur munur reyndist ekki heldur á meðalfjölda sóttra sérhæfðra námskeiða af þessum fjórum tegundum eftir starfsaldri (1,75 á móti 1,92, p=0,46). Þjálfun í einstökum flokkum bráðavandamála Nokkur munur er á þeirri þjálfun sem læknar telja sig hafa fengið til að bregðast við ólíkum bráðavandamálum. Meira en fjórðungur lækna taldi þjálfun sinni nokkuð eða verulega ábótavant í að sinna vinnu á vettvangi í sjúkrabíl og til að sinna greiningu og meðferð slasaðra. Það sama átti við um bráðavandamál barna, fæðingar og kvensjúkdóma og viðbúnað vegna hópslysa og almannavár. Læknar töldu sig hafa fengið betri þjálfun til að sinna minniháttar áverkum, bráðum 416 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.