Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2013, Qupperneq 50

Læknablaðið - 15.09.2013, Qupperneq 50
POWERDOC A/S OSKAR EFTIR LYTALÆKNI TIL STARFA Á EINKASPÍTAU\ í NOREGI - LAUN 2-2,5 MILLJÓNIR NKR Á ÁRI Reynsla af lýtaaðgerðum á einkasjúklingum: Andlitslyfting, brjóstastækkun/minnkun, fitusog o.fl. Vinnutími mánudaga til föstudaga, kl. 7:45-16:30, í góðu og notalegu vinnuumhverfi. POWERDOC A/S ÓSKAR EFTIR SVÆFINGARLÆKNI TIL STARFA Á EINKASPÍTALA í NOREGI Svæfingar og deyfingar fyrir lýtaaðgerðir. Vinnutími mánudagatil föstudaga, kl. 7:45-16:30, í góðu og notalegu vinnuumhverfi. Nánari upplýsingar í síma: Telefon: +45 45 540 540 Netfang: info@powerdoc.dk POWERDOC A/S Sonderhoj 16 . DK-8260 Viby J Tlf.: +45 45 540 540 www.powerdoc.dk MEDIC STAFF BY POWER DOC Vísinda- og þróunarstyrkir Úthlutun 2013-2014 Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) úthlutar styrkjum til visinda- og þróunarverkefna á sviði heiisugæslu einu sinni á ári. Sjóðurinn veitir einnig sérstaka starfsstyrki til slikrar vinnu. Umsóknir um úthlutun fyrir styrkárið 2013-2014 þurfa að berast sjóðnum fyrir 20. október næstkomandi og ber að skila rafrænt til Margrétar Aðalsteinsdóttur magga@lis.is hjá Læknafélagi islands, Hlíðasmára 8,201 Kópavogi, ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum eða framgangsskýrslu ef um endurumsókn sama verkefnis er að ræða. Starfsstyrkir geta verið allt frá 1 til 12 mánaða í senn. Upphæð starfsstyrks miðast við fasta upphæð sem svarar til dagvinnulauna styrkþega og er þá tekið mið af menntun og starfsaldri, þó aldrei hærri en sem svarar dagvinnulaunum yfirlæknis i heilsugæslu. Sé styrkþegi starfandi á heilbrigðisstofnun innan heilsugæslunnar leggur stjórn Vísindasjóðsins til að styrkurinn verði greiddur beint til þeirrar stofnunar. Á móti komi að forsvarsmenn stofnunarinnar sjái til þess að styrkþegi haldi áfram starfi sínu, óbreyttum launum og réttindum, en fái jafnframt tíma til að sinna rannsóknarstörfum á dagvinnutíma. Við mat á umsóknum er lögð áhersla á að rannsóknarverkefnið sé á forsendum heilsugæslunnar. Sé um visindaverkefni að ræða, er einnig lögð áhersla á tengsl rannsakenda við heimilislæknisfræði Háskóla Islands eða aðra akademíska háskólastofnun i heimilislækningum. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson,/o/is/g@h/./s Stjórn Visindasjóðs FÍH HSA HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS LÆKNIR ÓSKAST TIL HSA Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir lækni til starfa á heilsugæslusviði. Æskilegt er sérnám í heimilislækningum. Læknar með aðrar skyldar sérgreinar og almennir læknar eru einnig hlutgengir. Um er að ræða fjölbreytt störf í hóþi lækna sem skipta á milli sin verkefnum, starfssvæðum og vöktum á Mið-Austurlandi. Megin starfsstöð er á Djúpavogi í samvinnu við lækna heilsugæslusviðs. Æskilegt starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur einnig til álita. Búseta fer eftir samkomulagi en læknisbústaður er til staðar. Laun eru greidd skv. kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. rikissjóðs annars vegar og Læknafélags íslands hins vegar. Umsóknarfrestur er til 23. september 2013. Umsóknum skal skilað til HSA á eyðublöðum er fást á vef Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is. Nánari upplýsingar veita: Stefán Þórarinsson, framkvæmdastjóri lækninga HSA, s. 470-3052 & 892-3095, netf. stefanth@hsa.is. Emil Sigurjónsson, forstöðumaður mannauðssviðs HSA, s. 470-3053 & 895-2488, netf. emils@hsa.is. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslusvið HSA er skilgreint sem ein heild með sameiginlegri fagstjórn og áhersla lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar alls um 10.500 ibúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmis- sjúkrahús, FSN, er í Neskaupstað. 422 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.