Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 4
Þ umalputtareglan er sú að al-þingismenn greiða 18 þúsund krónur á mánuði miðlægt og þeir geta því greitt allt að sjö þúsund krónur aukalega til síns svæðisfélags,“ segir Daníel Haukur Arnarsson, starfsmaður Vinstri hreyfingarinnar - græns fram- boðs. Algengt er að kjörnir fulltrúar á Ís- landi greiði tíund til flokka sinna. Mis- jafnt er hvort um eiginlega tíund er að ræða en peningarnir eru jafnan notaðir til rekstrar flokkanna og flokksfélaga. Fréttatíminn kannaði málið hjá fjórum stórum og rótgrónum flokkum og hjá öllum þeirra er tíund við lýði. Daníel Haukur hjá VG segir að samkvæmt lögum megi hver einstak- lingur ekki greiða meira en 300 þúsund krónur á ári til stjórnmálaflokks og því takmarkist tíundargreiðslur við 25 þús- und á mánuði. Hann segir að tíundar- greiðslur séu í fullu samráði við hvern kjörinn fulltrúa. Sveitarstjórnarmenn borgi til svæðisfélaga sinna og ráði því hvað þeir greiða miðlægt til flokksins. „Það er ekki þvinguð nein tíund hjá okkur en við hins vegar óskum eftir því að kjörnir fulltrúar flokksins styrki hann reglulega. Stór hluti gerir það,“ segir Þórður Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Þórður segir að þetta eigi bæði við um kjörna fulltrúa á sveitarstjórnarstig- inu og þingmenn. Þetta hafi tíðkast um áratugaskeið. „Í flokksfélögunum erum við bæði með aðildargjald og styrktar- mannakerfi. Við höfum óskað eftir því að okkar kjörnu fulltrúar greiði í þetta eins og hundruð annarra. Þetta eru frjáls framlög og menn greiða eftir efni og aðstæðum.“ „Það hefur alla jafna verið þannig að þingmenn hafa greitt ákveðna upphæð á mánuði hjá okkur. Það hefur ekki verið skylda en algengast er að fólk geri það. Ráðherrar hafa borgað meira en þing- menn,“ segir Þórunn Sveinbjarnardótt- ir, framkvæmdastjóri Samfylkingarinn- ar. Hún segir að greiðslur þingmanna hafi farið í sjóð er kallast Máttarstólpar en í hann geta aðildarfélög sótt til að fjármagna tiltekin verkefni og efla félagsstarfið. „Styrkur sjóðsins fer svo eftir því hversu marga menn við erum með á þingi,“ segir Þórunn. Þórunn segir að aðildarfélögin sem eiga fulltrúa í sveitarstjórnum hafi ákvörðunarvald um hvort þau innheimti tíund og hvernig tíundargreiðslum sé háttað. „Þau gera það ekki öll að því er ég best veit. Stærstu félögin hafa gert þetta og þá er þetta tekið af nefndarlaunum fólks og er oftast nýtt til að standa undir rekstri og leigu húsnæðis og þess háttar.“ „Það er hluti sem gerir það og hluti sem gerir það ekki, það er ákvörðun hvers og eins. Svo eru sumir sem borga í flokksfélögin,“ segir Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokks- ins. Hrólfur segir að það hafi lengi tíðkast að kjörnir fulltrúar flokksins greiði tí- und til flokksins eða félaga innan hans. „Þetta fé hefur verið notað til reksturs félaga og til að styrkja starfið.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is siggaogtimo.is veður Föstudagur laugardagur sunnudagur RigningaRbakki veRðuR á leið austuR yfiR lanDið. HöfuðboRgaRsvæðið: Súld eða rigning, einkum framan af degi styttiR upp og léttiR suMs staðaR til. kólnaR í bili. HöfuðboRgaRsvæðið: Þurrt, en Sólarlítið. sa-HvassviðRi þegaR líðuR á Daginn og Með Rigningu s- og v-lanDs. HöfuðboRgaRsvæðið: SlagveðurSrigning yfir miðjan daginn. skin og skúrir tíðin er hægt og bítandi að taka á sig haustlegri blæ eftir sérlega mildan kafla að undangförnu. í dag fer veigalítið úrkomusvæði yfir landið og í kjölfar þess léttir til víða á landinu á laugardag og nv- golublæstri. Þá kólnar jafnframt og hiti gæti fallið nokkuð og fryst um nóttina á stöku stað, einkum n- og a-til. Spáð er álitlegri lægð á sunnudag. Henni fylgir slagveðursrigning, fljótlega um morguninn Sv-til, en síðar um daginn a-til. ferðafólk þarf að huga að vindaspám. 10 9 10 12 10 9 9 7 8 11 10 8 10 8 9 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is 893.000 krónur hefur gísli freyr valdórsson í mánaðarlaun á meðan mál hans er til meðferðar hjá dómstólum. gísli freyr var leystur frá störfum sem aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur innanríkisráðherra eftir að ríkissaksóknari ákvað að ákæra hann í lekamálinu svokallaða. 20.000 jarðskjálftar hafa orðið í Vatnajökli þann mánuð sem jarðhræringar hafa staðið þar yfir. Það gerir yfir 600 skjálfta á sólarhring. Grunaður um njósnir kín versk stjórn­ völd hafa hand tekið fyrr ver andi sendi herra kína á íslandi, ma jis heng, og eig in konu hans, Zhong yue. Þau eru grunuð um að hafa njósnað fyr ir japönsk stjórn völd. myndavélar í strætó Örygg is mynda vél ar verða tekn ar í gagnið í nýrri vögn um Strætó í næsta mánuði. Til að byrja með verða mynda- vélar í 15-18 vögnum en um áramót verða þær í um fjörutíu vögnum. 217 milljónir króna var hagnaður IKEA á íslandi á síðasta rekstrarári. Það er 18 milljónum minna en árið áður.  vikan sem var ótrúlegur uppgangur Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er í 34. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA. Liðið hefur farið upp um 97 sæti á rúmum tveimur árum.  stjórnmál kjörnir Fulltrúar greiða allt að 25 Þúsund á mánuði Alsiða að greidd sé tíund til stjórnmálaflokka Þingmenn og kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum greiða allt að 25 þúsund krónur á mánuði í tíund til flokka sinna. Þessar greiðslur eru jafnan notaðar til að standa straum af kostnaði og til að efla starf flokkanna. Hvað er tíund? Tíundarlögin frá 1096 voru fyrstu skattalög á Íslandi. Samkvæmt þeim var tíundin greidd af eign en ekki af tekjum eins og tíðkaðist í öðrum löndum. 4 fréttir Helgin 19.-21. september 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.