Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 6
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Faxafeni 5, Reykjavík, Sími 588 8477 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16 Dalsbraut 1, Akureyri, Sími: 558 1100 • Skeiði 1, Ísafirði, Sími 456 4566 2015-línan komin í Betra Bak Betra Bak 20 Á R a a F M Æ l I20% kynningar- afsláttur kOMDu Og uPPlifÐu gÆÐaDÝnu frá Sumarið 2013 skoðuðu Hreinn Har- aldsson vega- málastjóri og Hanna Birna Kristjáns- dóttir innan- ríkisráðherra aðstæður í Teigsskógi. Mynd innan- ríkisráðu- neytið  Samgöngur SkipulagSStofnun Segir nei – en bendir á úrlauSnir Nýrri veglínu um Teigsskóg hafnað Skipulagsstofnun fellst ekki á tillögu Vegagerðarinnar um nýja veglínu um Teigsskóg í Austur-Barðastrandarsýslu. Þar hefur vegagerð tafist árum sam- an vegna deilna um hvar leggja beri veginn. Íbúar og sveitar- félög á sunnanverðum Vest- fjörðum leggja mikla áherslu á láglendisveg og vegurinn um Teigsskóg er hagkvæmasta lausnin fjárhagslega, svo munar þremur milljörðum króna. Nú er ekið um úrelta og erfiða fjall- vegi, malarvegi sem taldir eru hættulegir, einkum að vetrar- lagi. Skipulagsstofnun hefur hins vegar kynnt Vegagerðinni leiðbeiningar um mögulegar leiðir til úrlausnar í þessu máli og væntir þess að á því verði fundin lausn í sem mestri sátt. Einar K. Guðfinnsson, for- seti Alþingis, er ósáttur vegna þessarar niðurstöðu, að því er fram kom í Fréttablaðinu fyrr í vikunni „Þetta er alvarlegt mál,“ sagði hann, „og það er tæknilega hægt að setja sérlög um vegtengingu í gegnum Teigsskóg. Ég hef sjálfur flutt þannig tillögu. Þetta er fram- kvæmd sem getur ekki beðið lengur. Hér er um að ræða mikilvægustu vegaframkvæmd Íslands að mínu mati. Þetta snýst ekki um náttúruvernd, og hefur aldrei gert og allra síst núna þegar Vegagerðin hefur lagt fram hugmynd að vegstæði sem raskar náttúrunni afar lítið.“ -jh m iðað við kortaveltutölur er útlit fyrir að vöxtur einkaneyslu á þriðja fjórðungi ársins verði myndarlegur, þótt heldur hægi á honum frá fyrri árshelmingi. Á þetta bendir Greining Íslandsbanka og styðst við upplýsingar Seðlabankans en hann birti nýverið tölur um greiðslukortaveltu til ágústloka. Þar kemur fram að 1,5% samdráttur varð á heildarveltu innlendra debetkorta að nafnvirði í ágúst, en veltan nam alls 36,8 milljörðum króna. Hins vegar jókst heildarvelta kreditkorta um 10,6% að nafn- virði á milli ára á sama tíma, en slík velta nam alls 35,2 milljörðum króna. „Að raungildi jókst kortavelta einstaklinga milli ára um 5,4% í ágústmánuði. Þar af jókst kortavelta innan- lands að raungildi um 4,2% en kortavelta erlendis um 14,7%. Er það áframhald á þróun sem hefur verið ríkjandi undanfarið, en það sem af er ári hefur korta- velta erlendis aukist um ríflega 19% að raungildi frá fyrra ári á meðan kortavelta innanlands hefur aukist um 3,2% á sama tíma. Þessi hraði vöxtur kortaveltu erlendis er væntanlega bæði til kominn vegna mikils vaxtar í viðskiptum við erlendar netverslanir og auk- inna utanlandsferða landsmanna. Á fyrstu átta mán- uðum ársins fjölgaði utanlandsferðum Íslendinga til að mynda um 8,7% frá fyrra ári,“ segir Greiningin. Lítillega hefur þó dregið úr vextinum en það sem af er þriðja ársfjórðungi nemur raunvöxtur korta- veltu 3,5% frá sama tíma í fyrra. Til samanburðar var vöxturinn 5,3% á fyrri árshelmingi. „Hefur því,“ segir Greiningin, „heldur hægt á vextinum á þennan kvarða, en rétt er að hafa í huga að talsverðar sveiflur eru í þessum tölum á milli mánaða. Það sem af er ári nemur kortaveltuvöxturinn 4,8% frá fyrra ári. Vöxtur kortaveltu að raungildi gefur ágæta vísbendingu um vöxt einkaneyslu, enda fer meginhluti neysluútgjalda landsmanna um greiðslukortin. Má gera því skóna, miðað við kortaveltutölurnar, að vöxtur einkaneyslu reynist allhraður á yfirstandandi ári.“ Greiningardeild Íslandsbanka spáði því í þjóð- hagsspá sinni, sem út kom í maí, að vöxtur einka- neyslu yrði 4,2% vexti á þessu ári. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is  efnahagur umtalSverður vöxtur einkaneySlu Á fyrstu átta mánuðum ársins fjölgaði utanlandsferðum Íslendinga um 8,7% frá fyrra ári. Viðskipti við erlendar netverslanir hafa einnig aukið kortaveltu. Fleiri halda utan og skipta við erlendar netverslanir Mikill vöxtur er í einkaneyslu Íslendinga. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fjölgað umtalsvert miðað við sama tíma í fyrra. Þá er vöxtur í viðskiptum við erlendar netverslanir. 6 fréttir Helgin 19.-21. september 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.