Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 51
heilsa 51Helgin 19.-21. september 2014
Eftir að bækurnar okkar Heilsuréttir fjölskyldunnar
og Nýir heilsuréttir komu út kom í ljós að fólk hefur
því miður ekki alltaf tíma til þess að elda næring-
arríkan mat frá grunni eins og það vildi gera,
m.a. til þess að forðast aukaefni og of mikinn
sykur. Þannig að fljótlega varð okkar næsta
verkefni að búa til heilsurétti án aukaefna,
viðbætts sykurs, eins og maturinn væri í raun
matreiddur í eldhúsinu heima, en samt hægt
að kaupa tilbúna úti í búð. Við höfum útbúið
þrjá nýja heilsurétti, Grænmetislagsagna,
Gulrótarbuff og Indverskar grænmetisbollur.
Bragðgóðir réttir, fullir af þarflegum næring-
arefnum.
Bestu kveðjur, Berglind og Siggi.
tapi og þá minnka líkur á
meiðslum,“ segir Hildur.
Persónulegt hlaupapró-
gramm
Hlaupaprógrömm sem að-
gengileg eru fyrir alla á netinu
eru hugsuð fyrir hinn almenna
hlaupara og yfirleitt mjög góð,
að sögn Hildar. Hins vegar
þurfi yfirleitt að aðlaga þau að
hverjum og einum, sérstaklega
ef fólk er viðkvæmt. „Ef fólk er
í áhættuhóp, eins og þeir sem
eru of þungir, þá myndi ég ráð-
leggja þeim að fá einstaklings-
miðaða ráðgjöf áður en byrjað
er að stunda hlaup reglulega.“
Skoðun fyrir hlaupaiðkun
Hildur bendir á að þegar við för-
um í jeppaferðir inn á fjöll látum
við yfirfara jeppann til að tryggja
áfallalausa fjallaferð. „Það á að
vera jafn sjálfsagt að gera hið
sama með líkamann. Við fengum
að gjöf einn líkama sem þarf að
endast okkur út lífið. Þess vegna
er heildræn skoðun mikilvæg
fyrir fólk sem er á leið í átök.“
Fyrir nákvæma og heildræna
greiningu ráðleggur hún skoðun
hjá sjúkraþjálfara, sérstaklega ef
fólk er viðkvæmt eða með sögu
um meiðsli eða álagseinkenni.
Í framhaldi sé svo hægt að hafa
samvinnu um frekari ráðgjöf og
göngugreiningu.
Algeng mistök hlaupara
Fara of geyst af stað
Eru í lélegum skóbúnaði
Eru ekki nógu sterkbyggðir
Hafa óraunhæf markmið
Algeng meiðsli hlaupara
Bólgur í vöðvafestum kringum mjaðmir, hné, ökkla
og il (hlauparahné, hásinabólga, iljarfellsbólga)
Tognanir aftan í læri og kálfum
Tognanir á ökkla
Rifinn liðþófi í hné
Verkir eða bólgur í baki vegna misbeitingar
Hildur Kristín
Sveinsdóttir,
sjúkraþjálfari
hjá Sjúkra-
þjálfuninni í
Sporthúsinu.
Ljósmynd/Teitur
Járnríkur
aprikósudrykkur
Fyrir 1-2
Innihald
5 þurrkaðar aprikósur (þessar dökk-
brúnu, lífrænt ræktuðu, ekki þessar
appelsínugulu)
Nokkrir ísmolar
4-5 appelsínur eða 150 ml appelsínusafi
2 stór greipaldin eða 150 ml ferskur
greipaldinsafi
2 tsk agavesíróp (eða acacia hunang)
Smá klípa múskat (enska: nutmeg)
Aðferð
Saxið aprikósurnar gróft og látið þær
liggja í volgu vatni í um 30 mínútur.
Hellið vatninu frá aprikósunum (ekki
notað).
Pressið greipaldin og appelsínur í
sítruspressu.
Setjið ísmolana í blandara ásamt 50 ml
af appelsínusafanum. Blandið vel í um
5 sekúndur.
Setjið aprikósurnar út í blandarann
ásamt agavesírópinu og 50 ml af
greipaldinsafanum. Blandið mjög vel
eða í allt að 1 mínútu.
Hellið afgangnum af appelsínu- og
greipaldinsafanum út í blandarann
ásamt múskatinu. Blandið í um 1
mínútu.
Hellið í glös og berið fram strax.
Gott að hafa í huga
Einnig má nota lífrænt framleidda apri-
kósusultu án viðbætts sykurs í staðinn
fyrir þurrkuðu aprikósurnar.
Gott er að setja hálfan banana út í.
Heimild
CafeSigrún.com.