Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 66
NorræNa húsið Nýtt starfsár í 15:15 tóNleikasyrpuNNi
Oliver Kentish heiðraður sextugur
Nýtt starfsár í 15:15 tónleikasyrpunni í
Norræna húsinu hefst á sunnudaginn.
Fyrstu tónleikarnir verða haldnir til
heiðurs Olivers Kentish tónskáldi í til-
efni af sextugsafmæli hans. Þar verða
flutt mörg af tónverkum Olivers þar
sem gítarinn kemur við sögu. Yfir-
skrift tónleikana er „Vistas“, eftir einu
verkanna á efnisskránni, svipmynd-
um af hugleiðingum tónskáldsins með
þetta tiltekna hljóðfæri í huga. Flytj-
endur verða Björn Davíð Kristjánsson
flautuleikari, Margrét Hrafnsdóttir
söngur og Hið íslenska gítartríó, en
það skipa Svanur Vilbergsson, Þröst-
ur Þorbjörnsson og Þórarinn Sigur-
bergsson.
Oliver Kentish fæddist í London
árið 1954. Hann stundaði framhalds-
nám í sellóleik við Royal Academy of
Music þar í borg. Árið 1977 kom hann
til Íslands til þess að leika með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Oliver er af-
kastamikið tónskáld, meðlimur í Tón-
skáldafélagi Íslands og er með vel yfir
annað hundrað tónverka á skrá hjá Ís-
lensku tónverkamiðstöðinni.
Á efnisskránni eru verk sem spanna
tímabilið frá árinu 2007 til dagsins í
dag, m.a. þrjú verk sem verða frumflutt
við þetta tækifæri.
10 tónleikar verða haldnir í 15:15
tónleikasyrpunni í vetur. Tónleikarnir
eru haldnir í Norræna húsinu og hefj-
ast klukkan 15.15. Miðasala er við inn-
ganginn. -jh
á RIFF – Alþjóðlegri kvik-myndahátíð í Reykjavík, sem hefst í næstu viku,
má sjá margt af því besta og fersk-
asta í alþjóðlegri kvikmyndagerð.
Fjölmargar af þeim myndum sem
verða á sýndar á hátíðinni í ár hafa
fengið mikla umfjöllun og verð-
laun á kvikmyndahátíðum erlend-
is, þar á meðal í Cannes, Feneyj-
um, Toronto og Karlovy Vary.
Þær þrjár myndir sem mesta um-
fjöllun hafa fengið eru Mr.Turner
eftir Mike Leigh, sem er jafnframt
heiðursgestur hátíðarinnar. Kvik-
mynd sænska leikstjórans Roy And-
ersson, Dúfa sat á grein og velti fyr-
ir sér tilverunni, sem fékk Gyllta
ljónið í Feneyjum fyrir skömmu og
Boyhood eftir Richard Linklater
sem var tekin upp á 12 ára tíma-
bili og hefur fengið stórkostlega
gagnrýni. Kvikmyndasíðan Rotten
Tomatoes gaf henni 99 prósent, Me-
tacritic gaf henni 100 stig, Rolling
Stone nefndi hana bestu kvikmynd
ársins og franskir fjölmiðlar hafa
hampað henni einnig sem bestu
kvikmynd ársins, svo fátt sé nefnt.
Meðal mynda sem koma sjóðheit-
ar frá hátíðinni í Toronto, sem lauk
um helgina, má nefna Itsi Bitsi eftir
leikstjórann Ole Christian Madsen,
Monsoon eftir Sturlu Gunnarsson
og The Lesson eftir Kristina Gro-
zeva og Peter Valchanov.
Af öðrum myndum má nefna
grísku kvikmyndina Xenia sem
er leikstýrt af Panos H. Koutras.
Hún var valin til þátttöku á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í ár í
flokknum Un Certain Regard og
var einnig sýnd á alþjóðlegu kvik-
myndinni í Toronto og fékk af-
bragðsviðtökur. Lake Los Angeles
var sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Los Angeles og fékk afbragðs-
góða dóma en tónlistin í myndinni
er eftir Maríu Huld Markan. Heim-
ildarmyndin Bridges of Sarajevo,
eftir þrettán ólíka evrópska leik-
stjóra, vakti mikla athygli í Cannes
en hún fjallar um stöðu borgarinn-
ar Sarajevo í evrópskri sögu.
Fjöldi kvikmynda er sýndur á
RIFF í ár en hátíðin á sér stað 25.
september – 5. október. Alla dag-
skrána og upplýsingar um kvik-
myndirnar má nálgast á www.riff.
is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
kvikmyNdir riff hefst í Næstu viku
Margt af því ferskasta
í kvikmyndagerðinni
Kvikmyndin Boyhood er sýnd á RIFF í ár.
Veggmyndirnar verða formlega vígðar
á morgun, laugardag.
Listasafn Reykjavíkur vígir form-
lega veggmyndir eftir Ragnar
Kjartansson og vegglistahóp
Miðbergs að Krummahólum 2 í
Breiðholti á morgun, laugardag,
klukkan 14. Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri vígir verkin.
Boðið verður upp á tónlist og
veitingar við vígsluna.
Ragnar Kjartansson er einn
þekktasti listamaður landsins
og hefur sýnt verk sín víða um
heim. Vegglistahópur frístunda-
miðstöðvarinnar Miðbergs sam-
anstendur af ungmennum sem
voru ráðin til að gera veggmyndir
í Breiðholti í sumar í samráði við
íbúa og Reykjavíkurborg. Verkin
eru víða í hverfinu, t.d. á veggjum
frístundamiðstöðvarinnar, á und-
irgöngum og á húsaveggjum. Þau
unnu verkin undir handleiðslu
starfsmanna í Miðbergi og í sam-
vinnu við Listasafn Reykjavíkur.
Borgarráð ákvað á síðasta ári að
fjölga listaverkum í opinberu rými
í Breiðholti og eru verkin hluti af
því átaki. -jh
Veggmyndir Ragnars og Miðbergs vígðar
Það verður valinn maður í hverju rúmi á
tónleikum til heiðurs Oliver Kentish.
Hamskiptin
551 1200 • HVERFISGATA 19 • LEIKHUSID.IS • MIÐASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is
Lau 20/9 kl. 13:00 5.sýn Lau 27/9 kl. 13:00 9.sýn Lau 4/10 kl. 13:00 13.sýn
Lau 20/9 kl. 16:30 6.sýn Lau 27/9 kl. 16:30 10.sýn Lau 4/10 kl. 16:30 14.sýn
Sun 21/9 kl. 13:00 7.sýn Sun 28/9 kl. 13:00 11.sýn Sun 5/10 kl. 13:00 15.sýn
Sun 21/9 kl. 16:30 8.sýn Sun 28/9 kl. 16:30 12.sýn Sun 5/10 kl. 16:30 16.sýn
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ævintýri í Latabæ – Stóra sviðið
Frábær stórsýning fyrir alla.
Fös 26/9 kl. 19:30 frums. Fös 3/10 kl. 19:30 5.sýn Fös 10/10 kl. 19:3010.sýn
Lau 27/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 4/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 11/10 kl 19:3011.sýn
Sun 28/9 kl. 19:30 3.sýn Sun 5/10 kl. 19:30 8.sýn Sun 12/10 kl 19:3012.sýn
Fim 2/10 kl. 19:30 4.sýn Fim 9/10 kl. 19:30 9.sýn
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Konan við 1000° - Kassinn
Mögnuð skáldsaga Hallgríms Helgasonar í sviðsetningu
Unu Þorleifsdóttur.
Fös 19/9 kl. 19:30 3.sýn Fös 26/9 kl. 19:30 6.sýn Fim 2/10 kl. 19:30 8.sýn
Fim 25/9 kl. 19:30 5.sýn Mið 1/10 kl. 19:30 7.sýn Fös 3/10 kl. 19:30 9.sýn
U
U
U
U
U
U
U
U
U
U
U
Ö
Ö
Ö
Hamskiptin – Stóra sviðið
Nokkrar sýningar í Þjóðleikhúsinu eftir sigurgöngu um heiminn.
Sun 12/10 kl. 14:00 Sun 19/10 kl. 14:00 Sun 26/10 kl. 14:00
Sun 12/10 kl. 16:00 Sun 19/10 kl. 16:00 Sun 26/10 kl. 16:00
Umbreyting – Kúlan
Fimm stjörnu sýning – einstök leikhúsupplifun.
Sun 21/9 kl. 14:00 Sun 28/9 kl. 14:00
Sun 21/9 kl. 16:00 Sun 5/10 kl. 14:00
U
Ö
Ö
Litli prinsinn – Kúlan
12. september – 11. október 2014
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opnunartímar
12:00-17:00 fimmtudaga til föstudaga
13:00-16:00 laugardaga
og eftir samkomulagi
Parísar-pakkinn/The Paris Package
HAllGRímuR
HElGAsON
DON
CARLO
eftir
Giuseppe Verdi
www.opera.is
Frumsýning
18. október
kl. 20
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
66 menning Helgin 19.-21. september 2014