Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 20
TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR
FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG
BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA.
ILMANDI
HLUTI AF DEGINUM
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki
og framleiðsla síðan 1984
M agnús Geir Þórðarson tók við sem útvarpsstjóri eftir nokkurt átakaskeið
innan Ríkisútvarpsins sem or-
sakaðist meðal annars af óánægju
starfsfólks, áhorfenda og hlust-
enda með niðurskurðaraðferðir þá-
verandi yfirstjórnar. Magnús Geir
segir að tekist hafi að slökkva þá
elda sem loguðu innan stofnunar-
innar og að þær breytingar sem
ný yfirstjórn réðst í vor séu farnar
að skila árangri. Hann er með
metnaðarfull markmið fyrir hönd
Ríkisútvarpsins sem hann segist
hlakka til að takast á við á næstu
misserum. Hann leggur áherslu á
að eiga samtal við stjórnendur og
annað starfsfólk og vinna breyt-
ingarnar með því fólki sem hann
starfar með.
„Ég er ekkert mikið fyrir það að
brýna raustina, þótt ég sé kapps-
maður. Ég legg áherslu á að eiga
opið samtal þar sem ég reyni að
hlusta á fólk og vinna með því. Við
höfum unnið í því að græða sárin
eftir miklar niðurskurðaraðgerðir
síðasta vetur og byggja upp bjarta
stefnu til framtíðar. Við höfum
metnaðarfull markmið um að efla
dagskrána á öllum miðlum og
erum farin að taka skref í þá átt.
Hinn blákaldi veruleiki er hins
vegar sá að fjárhagsstaða RÚV
er slæm og því er nauðsynlegt að
halda áfram að leita hagræðis og
forgangsraða í þágu dagskrár. Á
sama tíma þarf að horfast í augu
við fjármögnun RÚV. Þetta er
verkefni sem er ekki lokið á einni
nóttu,“ segir Magnús Geir.
„Skuldastaða RÚV er ógnvæn-
leg og hana þarf að tækla því
markmið okkar er að sem stærsti
hluti fjármuna fari í framleiðslu
á efni, ekki rekstur húsnæðis,
tæknimál eða vaxtagreiðslur,“ seg-
ir Magnús Geir. Þegar hefur verið
ákveðið að leigja út efri hæðir út-
varpshússins við Efstaleiti og hef-
ur yfirstjórn, þar á meðal útvarps-
stjóri, flutt skrifstofur sínar niður
á jarðhæð þar sem starfsemin fer
að mestu fram.
Magnús Geir segir að RÚV hafi
nú metnaðarfull áform um að auka
framleiðslu á innlendu efni, sér-
staklega verði gefið í þegar kemur
að leiknu efni. „RÚV hefur nánast
dregið sig út af þeim markaði á
undanförnum árum í hagræð-
ingarskyni en Ríkisútvarpið hefur
mikilvægu hlutverki að gegna
hvað varðar menningu í landinu,
ekki aðeins varðandi miðlun
menningarefnis heldur einnig
hvað varðar sköpun. RÚV á að
vera vikur þátttakandi og meðleik-
ari í framleiðslu á leiknu, íslensku
efni,“ segir hann. „Samhliða mun
áherslan á erlent afþreyingarefni
minnka og stærra hlutfall af því
sem við bjóðum upp á verður
vandað, íslenskt gæðaefni,“ segir
Magnús Geir.
Tækifæri með tilkomu Netflix
Hann segir mikil tækifæri fyrir
RÚV falin í þeirri þróun sem átt
hefur sér stað í fjölmiðlum með
stóraukinni netnotkun og til-
komu efnisveitna á borð við Net-
flix. Breytingarnar hjálpi til við
að skerpa sýnina á hlutverk RÚV
sem muni ekki lengur þurfa að
sinna erlendu afþreyingarefni í
jafnmiklum mæli heldur geti lagt
aukna áherslu á framleiðslu og
sýningu á innlendu efni. Þá verði
Pabbahlutverkið
mikilvægast af öllu
Magnús Geir Þórðarson er ánægður í starfinu sem hann tók við
fyrir um hálfu ári og segir að tekist hafi að slökkva elda sem
loguðu þegar hann tók við. Hann sér tækifæri í breytingum á
neyslu fjölmiðla og vill stórefla vef RÚV. Krakkavefur og veður-
vefur verða opnaðir á næstu vikum. Hann á von á öðru barni
eftir viku en á að auki þrjú stjúpbörn og segir pabbahlutverkið
mikilvægast af öllu.
20 viðtal Helgin 19.-21. september 2014