Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 52
52 matur & vín Helgin 19.-21. september 2014 Þrjár kynslóðir af kokteilum 20th Century Coctail „Hann var gerður árið 1937 af barþjóni sem hét C.A Tuck og nefndur í höfuðið á lest sem gekk frá New York til Chicago. Þetta er einn af þessum gömlu klassíkerum. Í uppskriftinni er Kina Lillet en það er í raun ekki til lengur. Ég nota Americano í staðinn sem er enn með kínín,“ segir Ási. Þessi kokteill er fáanlegur á Slippbarnum. 20th. Century 45ml. Geranium gin 25ml. Americano 25ml. Creme de cacao (ljós) 25ml. Ferskur sítrónusafi Allt hrist og ís síaður frá í kælt kokteilglas. Skreytt með sítrónu spíral. 21st Century Cocktail „Þessi uppfærða útgáfa var gerð af barþjóni sem heitir Jim Meehan í New York á stað sem heitir PDT eða Please Don’t Tell. Hann breytir uppskriftinni þannig að hann notar tekíla í stað gins og tekur burt Kina Lillet og notar Creme de Cacao og absint. Þetta er kryddaðri nútíma útgáfa en undir miklum áhrifum af hinum kokteilnum. Þetta hefur lengi verið uppáhalds kokteillinn minn. 21st. Century (Jim Meehan) 45ml. Excilia Tequila Blanco 25ml. Creme de cacao(ljós) 25ml. Ferskur sítrónusafi 1 barskeið absinth Allt hrist og ís síaður frá í kælt kokteilglas. Skreytt með stjörnuanís. 21st Century Coctail – Slippbar „Þetta er okkar útgáfa af 21st Century. Við breytum aðeins hlutföllum og notum þurrara tekíla en svo bý ég til líkjör sem er rommbyggður. Hann er gerður úr ljósu rommi, kakónibbum, birkisírópi úr íslensku birki og hrásykri. Þessi er mjög skemmtileg- ur og hann verður á næsta kokteilaseðli.“ Þessi kokteill er fáanlegur á Slippbarnum. 21st. Century (Ásgeir Már Björnsson) 45ml. Ocho Tequila Blanco 30ml. Birki/kakó líkjör 25ml. Ferskur sítrónusafi 1 barskeið Pernod Allt hrist og ís síaður frá í kælt kokteilglas. Skreytt með stjörnuanís. Þegar kemur að kokteilum kemst enginn með tærnar þar sem Ási á Slippbarnum hefur hælana. Ási hefur um árabil unnið á börum hér á landi og í Kaupmannahöfn og getur bæði reitt fram sígilda kokteila sem og það nýjasta nýtt. Við fengum hann til að sökkva sér í sagnfræðirannsóknir og grafa upp einn sígildan kokteil, nútíma útgáfu af honum og svo býr hann til eigin útgáfu af nútímaútgáfunni. Lj ós m yn di r/ Te it ur ÁSi Á Slippbarnum Kemur næst út 10. október Nánari upplýsingar veitir Gígja Þórðardóttir, gigja@frettatiminn.is, í síma 531-3312. Vín vikunnar Þ að er ekki alltaf einfalt mál að para saman vín og mat. Ef pörunin er óþarflega flókin er ágætt að hafa í huga að para vínið bara með tilefninu í stað- inn. Ef tilefnið er hversdagslegt er um að gera að prófa sig áfram og reyna eitthvert nýtt vín. Ef það er hátíðlegt og mikið liggur við getur verið gott að fara öruggu leiðina. Ef maturinn er aðalstjarna kvöldsins getur verið fínt að láta vínið vera í aukahlutverki og eins ef vínið er stjarnan þá er óþarfi að stressa sig of mikið á matnum. Þetta veltur allt á tilefninu. Ekki eyða of miklum tíma og peningum í að velja vín ef ekki er tilefni til þess. Hér er annar Ástrali á ferð. Þetta er dæmigert Chardonnay frá Ástralíu. Það er létt og auð- drekkanlegt, ferskt með sítrus og ferskju en hefur þennan óviðjafnanlega létta eikar- og vanillukeim sem fer vel í alla. Það er hægt að fá ódýrari Chardonnay frá Ástralíu en þessir fáu hundraðkallar umfram eru vel þess virði. Fullkomið með sjávarfangi. Rosemount Cabernet Sauvignon Gerð: Rauðvín Uppruni: Ástralía, 2011 Styrkleiki: 13,5% Þrúga: Cabernet Sauvignon Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.560 Ástralir kunna að búa til vín. Þar eru risastór vínfram- leiðslufyrirtæki og eitt sem einkennir vín þaðan er stöðugleiki. Þetta vín er kröftugt og þú finnur vel fyrir taníninu á jákvæðan hátt. Það er bragðmikið, kryddað og jafnvel smá hiti í því sem gerir það að spennandi kosti með sterkum mat sem er ekki svo auðvelt að finna vín með. paraðu vínið við tilefnið Fyrir þá sem kannast við hið frábæra Tommasi Amarone er þetta litli bróðir. Ripasso-að- ferðin þýðir að afgangsberjum úr framleiðslu Amarone er bætt út í Valpolicella-vínin sem gefur aukinn karakter. Vínið er auðdrukkið, með meðalfyllingu og örlítið ýkt bragð af dökkum berjum sem fellur kannski full fljótt. Það breytir því þó ekki að þetta er fallegt og skemmtilegt vín. Hér er Spánverji frá La Mancha héraðinu. Þetta er Gran Reserva sem hefur fengið að vera töluverðan tíma í eikartunnu og það finnst. Það er þroskað og kryddað og dökkt í sér með kirsjuberjum og súkkulaði- kenndum eftirtóni. Þetta vín er hægt að nota í ýmislegt en í raun hefur það einn megin- tilgang í lífinu og sem er að drekkast með grillkjöti, helst smá reyktu. Wolf Blass Yellow Label Chardonnay Gerð: Hvítvín Uppruni: Ástralía, 2013 Styrkleiki: 13,5% Þrúga: Cabernet Sauvignon Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.750 Estola Gran Reserva Gerð: Rauðvín Uppruni: Spánn, La Mancha 2004 Styrkleiki: 13,5% Þrúga: Tempranillo og Cabernet Sauvignon Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.699 Tommasi Ripasso Gerð: Rauðvín Uppruni: Ítalía, 2011 Styrkleiki: 13% Verð í Vínbúðunum: Kr. 3.599 Höskuldur Daði magnússon Teitur Jónasson ritstjorn@frettatiminn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.