Fréttatíminn - 19.09.2014, Blaðsíða 22
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Kíkið inná:
heklanotadirbilar.is
GÓÐIR, NÝLEGIR,
TRAUSTIR
GÆÐABÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
VW Polo 1.4 Comfl. 85 hö
5 gíra. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 37.000 km, beinskiptur
VW Passat Alltrack 4motion
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 29.000 km, sjálfskiptur
Skoda Superb Combi
2.0TDI 140 hö. Árg. 2013, dísil
Ekinn 35.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 2.290.000
Ásett verð: 5.790.000
Ásett verð: 4.590.000
VW Bjalla Design 160 hö
Árgerð 2012, bensín
Ekinn 22.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 3.990.000
VW Passat Comfortl
1.4 DSG. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 14.000 km, sjálfskiptur
Komdu og
skoðaðu úrvalið!
VW Tiguan Track&Style
2.0 TDI. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 44.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.290.000
Skoda Octavia Combi Amb.
TDI 2.0 4x4 MT. Árg. 2012, dísil
Ekinn 79.500 km, beinskiptur
Ásett verð: 3.670.000
Skoda Fabia Amb. 1.6
TDI. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 17.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 2.690.000
Skoda Rapid Amb. 1.2 TSI
86 hö. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 34.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 2.590.000
Ásett verð: 4.790.000
VW Golf Trendl TDI
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 86.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 2.390.000
ur efnis jókst. Okkar helstu markmið
nú voru að efla dagskrána á nýjan
leik. Við höfum stóraukið dagskrár-
gerðina, eflt teymi dagskrárgerðar-
manna, erum nýbúin að gera nýjan
framtíðarsamning við Sinfóníuna um
að fjölga tónleikaupptökum, höfum
eflt útvarpsleikhúsið og dregið úr
endurleiknu efni,“ segir hann.
Magnús segist hafa fengið mjög
jákvæð viðbrögð við breytingunum
heilt yfir og bendir á að niðurstöður
kannana síðustu vikna sýni að fólk
kunni vel að meta nýja dagskrárliði
beggja rása. „En eðlilega hafa verið
skiptar skoðanir um einstaka liði
eins og venja er þegar breytingar
ganga yfir. Til að geta eflt dagskrána
á þennan hátt höfum við þurft að
leita hagræðis og auka tekjur á móti.
Það höfum við gert með því að hag-
ræða í tæknimálum rásarinnar á
sama tíma og meiri áhersla fer á
innihaldið. Auk þess var bætt við
samtengdum auglýsingatímum fyrir
hádegis- og kvöldfréttir. Við höfum
auðvitað orðið vör við að sumir eru
óánægðir með að heyra leiknar
auglýsingar á þessum tímum á Rás 1.
Við skiljum og virðum þau sjónarmið
sem vilja engar leiknar auglýsingar
á Rás 1. Það var hins vegar okkar
mat að ávinningurinn af þessu væri
það mikill að þetta væri réttlætan-
legt enda fer allur sá ávinningur
og gott betur beint í bætta dagskrá
rásarinnar. Þetta er hins vegar ekki í
fyrsta skipti sem samtengdir auglýs-
ingatímar eru á rásunum, því þetta
var gert um árabil í samtengdum
morgunþætti,” segir Magnús Geir.
Stuðla að bættum lestri
Eitt af þeim verkefnum sem RÚV
hyggst ráðast í á næstunni er að
beina athyglinni að lestri þjóðar-
innar. „Í mínum huga á RÚV að vera
mannúðleg, uppbyggileg stofnun
sem gerir þjóðina betri, eykur lífs-
gæði þjóðarinnar. Eitt af því sem
RÚV á að gera sem oftast er að beina
kastljósinu að mikilvægum mál-
efnum og setja mál á dagskrá,“ segir
Magnús. „Í síðustu viku sameinuð-
ust allir okkar miðlar og tóku þátt í
Degi rauða nefsins. Í október förum
við af stað með mjög spennandi verk-
efni sem við vinnum þvert á miðla
þar sem við ætlum að beina kastljós-
inu að lestri þjóðarinnar, sem hefur
auðvitað verið farið minnkandi á
síðustu árum, svo mjög að menn hafa
af ansi miklar áhyggjur. Við viljum
vekja athygli á mikilvægi lestrar
og hvað lestur gefur okkur mikið í
stóra samhenginu og þar munu allir
miðlar koma að og vera með þætti
sem þessu tengjast,“ segir hann.
„Samhliða þessu erum við með í
undirbúningi risavaxið verkefni sem
verður aðgengilegt þjóðinni eftir
rúmt ár. Þar er á ferð mjög metn-
aðarfullt lestrarkennsluefni sem við
vinnum þvert á alla miðla, fyrir út-
varp, sjónvarp og vefinn sem verður
aðgengilegt fyrir fólk þegar börn
byrja að læra að lesa. Einkunnarorð
RÚV eru upplýsa, fræða og skemmta
og ég vona að þetta verði skemmti-
legt efni sem krakka þyrsti í að horfa
á af því það er gaman en svo auðvitað
er þetta fræðandi og upplýsandi og
ekta verkefni sem RÚV á að ráðast í
af metnaði,” segir Magnús Geir.
Ekki útvarpsstjóri með stóru Úi
Staða útvarpsstjóra hefur verið
áhrifastaða í íslensku samfélagi.
Hvernig finnst Magnúsi að bera
þennan titil? „Ég er nú ekkert voða
upptekinn af því, ég er bara með
ákveðin markmið og metnað fyrir
hönd Ríkisútvarpsins og leiði þessa
starfsemi með öllu því frábæra
starfsfólki sem hér er. Ég hef gaman
af því að vinna með fólki og fæ mikið
út úr því að vera hluti af öflugu teymi
sem nær að koma hreyfingu á mikil-
væg mál. Það var ekkert metnaðar-
mál eða keppikefli að verða útvarps-
stjóri með stórum staf, þetta er
einfaldlega spennandi verkefni sem
og tel mig hafa eitt og annað í og að
við, hópurinn, getum áorkað ýmsu,“
segir Magnús Geir en hann hefur
flutt skrifstofu útvarpsstjóra úr turn-
inum á fimmtu hæð niður á gólfið
með öðru starfsfólki. „Ég ætla mér
að vera hér í fimm ár, að minnsta
kosti. En svo má vel vera að ég snúi
aftur í leikhúsið einhvern daginn,“
segir hann með bros á vör.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
„Ég er mikill fjölskyldumaður og nýt mín
hvergi betur en með fjölskyldunni.
Ég reyni að sinna því eins vel og ég
mögulega get og reyni að passa
upp á það. Ef mikið gengur á í
vinnunni þarf maður að venja
sig á að slökkva á þeim hugs-
unum og vera alveg til staðar
heima. Það er að lærast
en óneitanlega er áreitið
meira í nýju starfi en því
fyrra. Annars gengur
fjölskyldulífið bara
dásamlega vel og ég
er bara svo heppinn
að eiga frábæra
fjölskyldu,“ segir
Magnús Geir
Þórðarson út-
varpsstjóri.
Ljósmyndir/
Hari
Helgin 19.-21. september 2014