Fréttatíminn - 19.09.2014, Qupperneq 42
vetrarferðir Helgin 19.-21. september 201442
Undirbúningur
fyrir skíðaferðina
Fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna er mikilvægt að hafa
nokkur atriði í huga svo skíðaferðin verði ánægjuleg og örugg.
Með því að undirbúa ferðina og vera í góðu líkamlegu formi og
með gott jafnvægi verður skíðaiðkunin ánægjulegri. Síðast en ekki
síst þarf skíðabúnaðurinn reglulegt viðhald.
N okkur mikilvæg atriði þarf að hafa í huga svo að skíða-ferðin verði eins ánægjuleg
og örugg og kostur er. Skíðaiðkun er
frábær hreyfing en ef ekki er
hugað að undirbúningnum
getur hún hæglega snúist
upp í andhverfu sína.
Hreyfing
Ekki er nóg að fara í ræktina eða út að hlaupa í vikunni fyrir skíða-
ferðina. Skíðaiðkun krefst þess að við notum vöðva sem við notum alla
jafna ekki dagsdaglega. Á skíðum þarf líka að vera undirbúinn fyrir
hreyfingu í mikilli hæð og kulda. Ráðlegt er að byrja undirbúninginn
fyrir skíðaferðina tveimur mánuðum áður en lagt er í hann. Dágóðan
tíma og fyrirhöfn tekur að þjálfa upp gott jafnvægi. Hefðbundin
líkamsrækt hjálpar mikið en þó er líka gott að gera skíðaæfingar, til
dæmis með sérstöku jafnvægisbretti eins og víða eru í líkamsræktar-
stöðvum. Þá er líka gott að renna sér á línuskautum eða iðka íþróttir
eins og skvass, fótbolta og aðrar sem krefjast þess að hreyfingar séu
örar og reglulega breytt um stefnu. Það tekur tíma að æfa jafnvægið
en mun án efa bæta skíðataktana.
Liðleiki
Á skíðum er liðleiki mikilvægur. Lágt
hitastig getur haft þau áhrif að vöðvarnir
verði stífir og hægir. Með því að stunda
markvissar teygjuæfingar fyrir skíða-
ferðina verður skíðastíllinn betri. Fall á
fyrsta degi, sem myndi annars eyðileggja
fríið, verður þá lítið annað en smá mistök
án meiðsla. Mikilvægt er að hita upp
fyrir teygjuæfingarnar. Að sama skapi
er mikilvægt að gleyma ekki að hita upp
og gera einfaldar teygjuæfingar áður en
skíðað er af stað.
Skór
Gríðarlega mikilvægt er að skiðaskórnir
passi, séu ekki of víðir og ekki of þröngir.
Smellpassi skórnir ekki, geta þeir hindrað
að hægt sé að beita réttu tækninni.
Skíðin
Mikilvægt er að skíðunum sé vel við hald-
ið. Bera þarf á þau og skerpa kantana.
Það er líka góð hugmynd að láta fagfólk
kíkja á bindingarnar og undir skíðin. Með
réttu vaxi og brýningu verður auðveldara
að beygja, sem ekki aðeins gerir tæknina
betri, heldur eykur ánægjuna til muna.
Skíðafötin
Réttu skíðafötin geta haft mikið að segja
um það hvort við endumst allan daginn
eða gefumst upp fyrir hádegi. Best er
að vera hlýtt en samt mikilvægt að vera
ekki of hlýtt. Skíðafatnaður nútímans
getur andað og er úr mörgum lögum og
hleypir út svita. Mun betra er að vera í
ullarfötum næst sér en bómullarfötum.
Þegar fólk svitnar í ullarfötum verður því
ekki kalt en gerist það í bómullarfötum er
hætta á að frjósa.
Með góðum undirbúningi verður
skíðaferðin ánægjulegri. Mikil-
vægt er að æfa jafnvægið, bera
undir skíðin og skerpa kanta.
Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero 2198,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
Jólaferð til Parísar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Komdu með í dásamlega jólaferð til
Parísar. Töfrandi ljósadýrðin og hátíðar-
stemningin um alla borg skapa einstaka
upplifun í upphafi aðventunnar.
Sp
ör
e
hf
.
27. - 30. nóvember Örfá sæti laus!
Fararstjóri: Laufey Helgadóttir
Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mikið innifalið m.a. skoðunarferð um París!
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?