Fréttatíminn - 19.09.2014, Page 59
tíska 59Helgin 19.-21. september 2014
Það er eng-
inn bolur
það ljótur
að hann geti
ekki orðið
taska.
H
ægt er að
koma með
gamla boli í
verslunina
Spaksmanns-
spjarir og láta sauma úr
þeim flotta tösku. Björg
Ingadóttir, fatahönnuður og
eigandi Spaksmannsspjara,
er mikill umhverfisvernd-
arsinni og áhugakona um
endurnýtingu og segir hún
ekki lengur gamaldags að
endurnýta. „Ömmur okkar
og afar kunnu þetta en svo
kom tímabil þar sem enginn
virtist kunna að endurnýta.
Sá tími er sem betur fer að
líða og núna er bæði nauð-
synlegt og smart að kunna
að endurvinna og nýta. Svo
er það líka mjög gaman,“
segir hún.
Björg segir plastpokanotk-
un Íslendinga í gegnum
árin hafa verið allt of mikla
og því hafi hún viljað þróa
hugmyndir til að knýja fram
breytingar. „Ég átti stóran
dall, fullan af bolum sem
ég notaði í tuskur. Svo fór
ég að gera töskur úr þeim
og komst að því að þeir eru
hið besta hráefni. Efnið er
teygjanlegt og hentar því vel
undir fernur og aðrar um-
búðir með hvössum horn-
um.“ Hún segir mikilvægt
að fólk taki afstöðu til þess
hvort það ætli að standa með
náttúrunni og geri breyting-
ar í sínu daglega lífi. „Það er
svo hallærislegt að vera um-
hverfissóði. Einfaldast er að
byrja á því að hætta að kaupa
plastpoka úti í búð. Þetta er
atriði sem fólk þarf að æfa
sig að muna. Svo geta allir
lært að hætta að drekka kaffi
úr einnota glösum.“ Sjálf
notar Björg alltaf fjölnota
könnu. Á árum áður þegar
þær voru ekki á markaðnum
fékk hún sér kaffi í sultu-
krukku og setti hana inn í
sokk til að halda því heitu.
Bolatöskurnar í Spaks-
mannsspjörum hafa vakið
mikla lukku. Komi fólk með
sína eigin boli kostar taskan
4.500 krónur. Þar eru einnig
tilbúnar töskur úr gömlum
bolum sem kosta 4.900
krónur. „Í hverja tösku þarf
tvo boli sem eru svipaðir
að stærð. Ef fólk á ekki boli
sem passa saman finn ég
annan á móti. Ef bolirnir
eru þunnir set ég aðra þykk-
ari undir svo taskan verði
sterkari.“ Bolir frá níunda
áratugnum henta sérstak-
lega vel í töskur. „Þeir eru
úr þykkri bómull og mjög
víðir með skemmtilegum
myndum. Það er alls ekki
verra þó það séu málningar-
slettur á bolunum. Það er
enginn bolur það ljótur að
hann geti ekki orðið taska.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is