Þjóðlíf - 01.12.1985, Side 5
EFNISYFIRLIT
Við erum að byrja nýtt líf. Draumarík- g
isstjómin er samstjóm Alþýðubanda-
lagsins og Alþýðuflokksins, ef til vill
með þátttöku Kvennalistans, segir Svav-
ar Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins m.a. í viðtali um landsfund
flokksins í nóvember, átökin síðasta ár
og um stöðu og stefnu flokksins í dag.
Breytingar í íslenskri bókaútgáfu. inn- 15
lend skáldverk og þýdd erlend önd-
vegisrit em meira áberandi á bóka-
markaðnum í ár en nokkm sinni fyrr.
Og bókaútgefendur ætla að mæta
harðnandi samkeppni við aðra miðla
með því að færa út kvíarnar og dreifa
útgáfunni yfir allt árið.
Endalok gereyðingarhættunnar eða 18
ótrúleg sóun hugvits og fjár-
magns? Dr. Hans Kr. Guðmundsson
eðlisverkfræðingur fjallar í ítarlegri
grein um „stjömustríðsáætlun" Reagans
Bandaríkjaforseta frá sjónarhóli vísinda-
manns. Rannsóknarstofnanir við há-
skóla og fyrirtæki vinna nú að gífurlega
dýrum og viðamiklum rannsóknum
vegna þessara hugmynda, sem enginn
veit enn hvort nokkum tíma verður
kleift að gera að veruleika. En fjölmarg-
ir vísindamenn hafa einnig neitað að
taka þátt í þessum rannsóknum af sam-
viskuástæðum og niðurstaða dr. Hans
er að stjömustríðsáætlunin sé mesta
sóun hugvits og fjármagns sem sagan
kunni frá að greina.
Hellamyndir Kjarvals. Rannsóknir og
tveggja fræðimanna, hjónanna Hall-
gerðar Gísladóttur og Áma Hjartar-
sonar, á manngerðum hellum á Suður-
landi hafa leitt til þess að fram í dags-
ljósið hafa komið teikningar eftir Jó-
hannes Kjarval af rúnaristum í hellum
sem ekki em lengur uppistandandi.
Teikningamar gerði Kjarval að frum-
kvæði Einars Benediktssonar skálds.
íslenska ríkið tapar milljörðum 38
vegna ofgreiddra verðbóta á
verksamninga. Þorgiis Axeisson
tæknifræðingur í Garðabæ hefur í mörg
ár bent íslenskum embættismönnum og
stjómvöldum á að flestar Evrópuþjóðú:
verðbæta verksamninga í samræmi við
sérstaka bókun Sameinuðu þjóðanna,
Bóktm A-188, sem m.a. felur í sér að
verkkaupandi greiðir aðeins hálfar
verðbætur, hinn helming allrar áhættu
vegna verðbreytinga á samningstíma
ber verktakinn sjálfur. Þorgils telur að
tæp 10% skulda íslendinga vegna virkj-
ana og vegna togarasmíða erlendis stafi
af ofreiknuðum verðbótum. Sama hlut-
fall gildi um skuldir húsbyggjenda á
íslandi við innlenda verktaka.
Óri og Elja. Smásaga eftir Sigurð Á. Frið-
þjófsson rithöfund og blaðamann.
Fjölmiðlun. Útvarpsrekstur á íslandi verð- r-j
ur frjáls eftir áramótin, en Þröstur Har-
aldsson blaðamaður bendir á að fram-
kvæmd laganna fari mjög eftir reglu-
gerð menntamálaráðherra og starfi út-
varpsréttamefndar. Hvaða afleiðingar
hefur það til dæmis ef skylt verður að
setja íslenskan texta við allt erlent sjón-
varpsefni?
Nýtt útvarp - nýr miðill. Heigi Guð- 68
mundsson fjallar um hugmyndir um út-
varpsrekstur á vegum launþegahreyf-
ingarinnar og hugtakið grenndarútvarp
í því samhengi.
Fyrsta flokks sjómaður - annars 70
flokks þjóðfélagsþegn. Ungur sjó-
maður, sem varð fyrir alvarlegu slysi
um borð í togara fyrir rúmu ári síðan,
gefur hrollvekjandi mynd af því hvemig
öryggismálum íslenskra sjómanna er
háttað í dag.
Sjómennska við ísland er hættulegri 76
en stríðsrekstur. Þrisvar til fjórum
sinnum fleiri íslenskir sjómenn farast
við störf sín heldur en gerist meðal
norskra sjómanna. Rök má færa að því
að slys á sjó árið 1984 hafi kostað þjóð-
félagið andvirði fimm skuttogara.
BSRB berst fyrir lífi sínu. Rúmu ári eftir gg
langt samstöðuverkfall BSRB standa
samtökin frammi fyrir klofningi sem
gæti leitt til þess að stórir starfshópar
segðu sig úr þeim. Hvað hefur gerst á
þessu eina ári?
Sjálfhelda sérhagsmunanna. Brandur qj
skrifar um nauðsyn aðhalds í ríkis-
rekstrinum.
Garry Kasparov. Jóharrn Hjartarson stór- gg
meistari skrifar um hinn nýja heims-
meistara í skák.
Síðasta orðið. Sigurður A. Magnússon rit- gg
höfundur hefur síðasta orðið að þessu
sinni.
ÞJÓÐLÍF 5