Þjóðlíf - 01.12.1985, Blaðsíða 19

Þjóðlíf - 01.12.1985, Blaðsíða 19
Hinn 23. mars 1983 ávarpaði Ronald Reagan Bandaríkjaforseti þjóð sína í sjónvarpi og markaði í ræðu sinni tímamót í sögu vígbúnaðarkapphlaups stórveldanna. í ávarpinu skýrði hann frá þeirri ákvörðun sinni að þróa skyldi nýtt varnarkerfi, sem gera ætti kjarnorkuvopnin „gagnslaus og úrelt“. Hann taldi að þessi ákvörðun sín myndi „breyta gangi mannkynssögunnar“ og „veita börnum okkar nýja von á 21. öldinni.“ Hið nýja varnarkerfi sagði hann að myndi veita bandarísku þjóðinni og bandamönnum hennar öryggi gegn sovéskri árás, með því að mæta langdrægum flaugum Sovétmanna á miðri leið og eyðileggja þær áður en þær næðu skotmörkum sínum. innlimuð í áætlunina. Fyrirtæki á sviði flugtækni og geimvísinda svo sem Lockheed Missiles & Space Co. og RCA samsteypan settu upp sérstakar geimvamadeildir og hinar ríkisreknu rannsóknastofnanir í hertækni, Los Alamos, Sandia og Lawrence Liver- more efldu rannsóknir sínar verulega. Vísindamönnum í háskólum, stofnunum og fyrirtækium var og er boðið að sækja á mið þessara 26 milljarða með verkefni sem geta tengst áætluninni. Nú þegar hafa fjölmörg fyrirtæki farið af stað með slík verkefni. Auk þeirra sem að framan eru talin má nefna General Electric, TRW, Rockwell, Boeing, McDonnell Douglas, Westinghouse og mörg fleiri. Gert er ráð fyrir að gerðar verði fimmtán megintilraunir fyrir 1990, þar sem m.a. verða prófaðar ýmsar nýj- ar vopnagerðir. Reiknað er með því að niðurstöður rannsóknanna og útkoma tilraunanna, leiði til rökstuddra svara um og upp úr 1990 um það hvort geimvamakerfi geti þjónað yfirlýstum tilgangi. Ef síðan verður tekin ákvörðun um að koma því fyrir, er reiknað með að það taki 20-30 ár og mun kerfið því ekki koma að fullu gagni fyrr en nokk- uð er liðið á 21. öldina. Einn sjóher í viðbot! Til þess að kerfið geti orðið að veru- leika verður að halda kostnaði við upp- byggingu og framleiðslu eininga þess í lágmarki. Sem dæmi má nefna að eitt þeirra verkefna, sem flugherinn vinnur nú að, er lækkun á kostnaði við flutn- inga geimfeijunnar úr um 2500 dollur- um á kg niður í um 20 dollara á kg. Einnig—verður að minnka margfalt kostnaðinn við framleiðslu á hátækniaf- urðum framtíðarinnar, svo sem nýjum tölvum, skynjurum og geimbúnaði. Þetta er ef til vill sambærilegt við það verkefni að fjöldaframleiða bifreið í gæðaflokki Rolls Royce í sama verð- flokki og ódýran smábfl. Ýmsir hafa reynt að meta hefldar- kostnað við byggingu og uppsetningu kerfisins. Meðalhá tala í þeim útreikn- ingum er um 800 milljarðar dollara. Þá er eftir að reikna með viðhaldi, rekst- urskostnaði og endumýjun, því kerfið þarf auðvitað stöðugt að vera tfl við- bragðs reiðubúið. Sá kostnaður hefur verið talinn á bilinu 50-200 milljarðar dollara á ári hverju. Þetta mun vera nokkuð sambærflegt við það að koma upp svo sem eins og einum sjóher til viðbótar við Bandaríkjaher. Til sam- anburðar má geta þess að í frumvarpi tfl fjárlaga fyrir 1986 eru gjöld íslenska ríkisins talin um 33.5 milljarðar króna, sem samsvarar um 0.8 milljörðum dollara. Ef stjórnkerfið bregst þá ervörnin gagnslaus Geimvamaáætlun Bandaríkjanna miðar að uppsetningu kerfis, sem á að veita vöm gegn árás langdrægra kast- flauga Sovétríkjanna. Flugi kastflaugar má skipta í fjögur skeið: Lyftiskeið, þegar flaugin lyftir sér út úr lofthjúpn- um, skiptiskeið, þegar hún sendir frá sér kjamaoddana á braut, renniskeið, þegar kjamaoddamir fljúga áfram utan lofthjúpsins og lokaskeið, þegar þeir koma irm í lofthjúpinn aftur og lenda á skotmarkinu. Gamlar hugmyndir um vamir gegn kastflaugum byggjast á því að gagn- flaug sé skotið á móti árásarflaug á lokaskeiði og hún eyðflögð með árekstri eða sprengingu. Þessar hug- myndir þóttu á sínum tíma gagnslausar meðal annars vegna þess hve dýrt var að koma fyrir gagnflaugum miðað við hugsanlegan árangur. Stórveldin komu sér síðan saman um undirritun gagn- flaugasamningsins 1972 sem bannaði frekari uppbyggingu vopna gegn langdrægum kastflaugum. Kerfið sem geimvamaáætlunin byggist á er frá- brugðið þessum eldri kerfum að því leyti að vömin á nú að fara fram á öllum skeiðum flugsins og gert er ráð fyrir að því fyrr sem flaug er eyðflögð á ferð sinni því betra. Flestar hugmyndir um slíkt vamar- kerfi byggjast á lagskiptri vöm. Þá er átt við að ákveðnir hlutar kerfisins sjái hver um sitt skeið árásarinnar. Talað er um þrjú vamarlög, sem hvert um sig á helst að geta eyðflagt 90% af þeim árás- arflaugum og kjamaoddum sem koma í þess hlut. Með því móti yrði kerfið 99.9% ömggt. Fyrsta lagið mundi fá í sinn hlut fyrstu tvö skeiðin af flugi kast- flauganna. Þetta vamarlag er mikil- ÞJÓÐLÍF 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.