Þjóðlíf - 01.12.1985, Blaðsíða 78

Þjóðlíf - 01.12.1985, Blaðsíða 78
Fischers, en hann hataði jafntefli eins og pestina. Einvígið hófst síðan 10. sept- ember 1984. í fyrstu leit út fyrir að þetta yrði stysta heimsmeistaraeinvígi sóg- unnar, en á daginn kom að það varð hið lengsta og því lauk ekki einu sinni. í byrjun var áskorandinn heillum horfinn. Hinn skemmtilegi sóknarstíll virtist alls ekki duga gegn þeirri köldu rökhyggju, sem einkennir skákstíl Karpovs, og eftir aðeins níu skákir var staðan 4-0 fyrir heimsmeistarann. f>eg- ar hér var komið sögu söðlaði Kasparov um og lagðist í vöm í stað þess að taka áhættu. Afleiðingin varð nýtt heimsmet; 17 jafntefli í röð! í 27. skákinni tókst Karpov loks að knýja fram sigur, staðan 5-0. Nú voru jafnvel tryggustu áhang- endur Kasparovs búnir að afskrifa hann. En hið ótrúlega gerðist: Kasparov tókst að snúa vöm í sókn. Lengd einvígisins hafði tekið sinn toll af þreki keppenda og í framhaldinu kom í ljós að úthald Kasparovs var drýgra. Harrn hafði fyrir einvígið lagt mikla rækt við líkamsþjálfun í formi sunds, fótbolta og hjólreiða. Karpov gerði einnig þau afdrifaríku mistök að treysta um of á glappaskot af hendi andstæðingsins. Ef hann hefði tekið meiri áhættu um miðbik einvígisins er mjög líklegt að hann hefði unnið eina skák um síðir, þótt e.t.v. hefðu einhveij- ar skákir tapast í staðinn. í 31. skákinni missti heimsmeistarinn af skemmtilegri vinningsleið. Þetta hafði slæm áhrif á hann því að í næstu skák vann Kaspar- ov sína fyrstu skák í einvíginu. Þá komu 14 jafntefli í röð og vom skákáhuga- menn um allan heim búnir að fá nóg af þessari lönguvitleysu. Eftir 46 skákir var staðan 5—1, en nú var Karpov greinilega kominn að fótum fram því næstu tvær skákir vann Kasparov auð- veldlega. Þá gerðist einstæður atburður í skáksögunni. Campomanes forseti FIDE stöðvaði einvígið. Kasparov varð æfur og mótmælti kröftuglega. Karpov mótmælti einnig en það hljómaði hjáróma. Skákað í skjóli flokksins Að lokum var áframhaldi keppninnar ráðið til lykta á þann hátt að nýtt einvígi hæfist og staðan yrði 0-0 í byrjun þess. Ef litið er hlutlægt á málið er ljóst að þessi lausn var ekki jafn óhagstæð Kasparov og hann vildi sjálfur vera láta. Mörg stór orð vom látin falla í ringul- reiðinni sem kom upp við lok fyrra einvígisins og eftir það. Kasparov lét þar ekki sitt eftir liggja. Sérstaklega deildi hann hart á Campomanes („Karp- ovmanes" eins og Spassky kallaði hann), m.a. í frægu viðtali sem birtist í þýska vikuritinu der Spiegel. í Sovét- ríkjtmum er öll gagnrýni á alþjóða skáksambandið litin mjög óhým auga, enda hafa austantjaldsríkin þar tögl og hagldir. Það er haft eftir áreiðanlegum heimildum að sovéska skáksambandið hafi viljað setja Kasparov í ferða- og keppnisbann fyrir lausmælgi sína. Ef bannið hefði náð fram að ganga er óvíst að seinna heimsmeistaraeinvígið hefði farið fram. En þótt Karpov hafi mikil áhrif innan skáksambandsins og komm- únistaflokksins er Kasparov heldur ekki valdalaus. Haft er fyrir satt, að R. Aliev, fyrrverandi aðalritari kommún- istaflokksins í Aserbasjan, hafi hjálpað Kasparov í erjum hans við skáksam- bandið þannig að málin fengu farsælan endi. Heimsmeistari í best teflda einvígi sögunnar í september sl. hófst síðan annað ein- vígi þeirra Karpovs og Kasparovs. Eins og öllum er í fersku minni sigraði snill- ingurinn ungi með 13 vinningum gegn 11. Yfirbragð þessa einvígis var allt ann- að en hið fyrra. Kappamir tefldu mjög skemmtOega og það er einróma áht sérfræðinga að einvígið hafi verið eitt það best teflda í skáksögunni. Spennan í lok einvígisins var einnig ein hin mesta sem um getur, því þegar aðeins ein skák var eftir hafði Kasparov eins vinnings forskot og heimsmeistarinn átti hvítt í síðustu skákinni. Karpov tefldi stíft tO vinnings, en Kasparov varðist af öryggi og vann um síðir eftir að Kaprov hafði teygt sig of langt í vinningstO- raunum sínum. Ein ákvarðana Campomanesar - og sú sem sætti hvað mestri gagnrýni - var að heimsmeistarinn ætti rétt á nýju einvígi ef hann færi haOoka. Því hefur þriðja einvígi þeirra Karpovs og Kasp- arovs verið ákveðið í febrúar 1986. Ljóst er að þar verður um tvísýna og skemmtOega keppni að ræða og skyldu menn varast að vanmeta þá miklu reynslu og vOjastyrk sem Karopv býr yfir og hefur fleytt honum langt þegar allt hefur ekki gengið í haginn. Flestir spá þó heimsmeistaranum sigri, því að Karpov verður að taka sig mjög á ef hann ætlar að endurheimta titOinn. En skákunnendur um aOan heim bíða nú í ofvæni eftir því hvað gerist þegar kapp- amir setjast aftur að skákborðinu á næsta ári. 78 ÞJÓÐLÍF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.