Þjóðlíf - 01.12.1985, Blaðsíða 7
Svavar Gestsson eftir stormasamt ár:
Fram til ársins í ár sýndu fjölmiðlar innri málum
Alþýðubandalagsins lítinn áhuga. Meðan átök
og mannaskipti áttu sér stað í Alþýðuflokknum
og Sjálfstæðisflokknum fyrir opnum tjöldum gátu al-
mennir blaðalesendur og fjölmiðlaneytendur vart
fengið aðra hugmynd en þá, að innan Alþýðubanda-
lagsins ríkti friður og eining og formaður flokksins,
Svavar Gestsson, væri óumdeildur leiðtogi hans. En
snemma ársins 1985 var eins og flóðbylgja brysti. Allt í
einu var Alþýðubandalagið komið undir smásjá fjöl-
miðlanna. Skyndilega varð opinber djúpstæður ágrein-
ingur flokksmanna um menn, stefnu og starfshætti.
Það þarf ekki að rifja upp fyrir áhugamönnum um
stjórnmál grein Svans Kristjánssonar í Mannlífi,
skýrslu hinnar svokölluðu mæðranefndar og skýrslu
starfsháttanefndar, sem birt var í blöðum skömmu
fyrir nýafstaðinn landsfund flokksins og landsfundur-
inn gerði raunar að sinni ályktun. Fyrir landsfundinn
ræddu menn urn það hvort Alþýðubandalagið myndi
lifa af eða hvort klofningur yrði þar endanlega stað-
festur og Alþýðubandalagið í sinni núverandi mynd
heyrði sögunni til. Harkaleg átök formanns flokksins
og nýkjörins varaformanns unt stöðu formanns út-
gáfufélags Þjóðviljans nokkrum dögum fyrir lands-
fundinn hljómuðu í eyrum margra sem forspil að
Sálumessu yfir jarðneskum leyfum Alþýðubanda-
lagsins.
En flokkurinn klofnaði ekki. „Alþýðubandalagið
hefur byrjað nýtt líf,“ segir Svavar Gestsson og bætir
því við að enginn annar íslenskur stjórnmálaflokkur
hefði staðið af sér það óveður sem geisað hefur innan
Alþýðubandalagsins síðustu mánuði. En hver er staða
hans sjálfs eftir þennan landsfund, hvers konar flokkur
er Alþýðubandalagið og að hverju stefnir það? Hvern-
ig lítur sú ríkisstjórn út, sem Svavar Gestsson vill helst
sjá komast á laggirnar á Islandi? Er landsfundurinn
endanleg staðfesting þess að Alþýðubandalagið sé
krataflokkur af skandinavískri og vesturevrópskri gerð
og Svavar Gestsson krataforingi?
PJÓÐLIF 7