Þjóðlíf - 01.12.1985, Page 23

Þjóðlíf - 01.12.1985, Page 23
ar stjömuhnattaiuia senda þá stöðugt gögn um ferð og útlit hvers hlutar inn í tölvukerfið. Hægt væri til dæmis að sjá hvort hlut- urinn er þungur eða léttur á bakslagi flaugarinnar þegar hún sendir hann frá sér. Einnig mætti nota agna- geisla (14) til að skynja þykkt hluta og skilja þannig oddana frá ruslinu. Vopnin sem aðal- lega yrðu notur á þessu skeiði eru árekstravopn og leysar, sem hafa 10—20 mínútur til stefnu eftir því hve langdræg flaugin er. Á lokaskeiðinu koma oddamir og villuhlutimir í lofthjúpinn aftur. Ruslið og oddalíkin brenna þá upp (17) og aðeins kjama- oddamir sjálfir ná til jarð- ar. Hér á þriðja vamar- lagið að grípa inn og eyði- leggja þá odda sem slopp- ið hafa í gegnum fyrri vamarlögin. Ljósnæmir skynjarar í flugvélum (15) og ratsjárstöðvar á jörðu niðri (16) miða oddana út en árekstraflaugar (18) og kúlur úr sporbyssum (19) eiga að eyðileggja þá. Lokaskeiðið er stutt, um og innan við ein minúta er til stefnu. Kerfið eins og því er hér lýst er samsuða ýmissa hugmynda og vopnin sem talin em upp em ýmist ekki til eða aðeins til í ófullkominni frumgerð. Ómögulegt er þvi að átta sig á hvað af þessu getur orðið að raunveruleika. Álagið á stjómstöðvar kerfisins verður svo gífur- legt á svo skömmum tíma að til þess að mæta þvi þarf nýja kynslóð tölva og hugbúnaðar. Vafasamt er að slík tækni verði nokk- um tíma að veruleika og fullyrða má að vegna próf- unarörðugleika verður kerfinu aldrei treystandi. Að sjálfsögðu þarf svo kerfið sjálft að geta staðist árás óvinarins sem yrði t.d. gerð með gervihnatta- vopnum (20) og gagnflaug- um (21). Myndin gefur auðvitað ekki tæmandi yfirlit yfir allar þær hugmyndir sem em á sveimi og eins má gera ráð fyrir þvi að ekki verði allt notað sem tíund- að er.

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.