Þjóðlíf - 01.12.1985, Blaðsíða 74

Þjóðlíf - 01.12.1985, Blaðsíða 74
Ljóst er aö sigur hins unga snillings er einn merkilegasti skákviðburður sem átt hefur sér stað síðan einvígi aldarinnar milli Fischers og Spassky fór fram í Reykjavík 1972. Fáir heimsmeist- arar hafa virst jafn ósigrandi og Karpov. Ferill Karpovs hefur verið óvenju glæsi- legur, því auk þess að bera titilinn eft- irsótta, hefur hann teflt á fjölda móta og sigrað á þeim flestum. Það var ekki fyrr en Kasparov fór að kveðja sér hljóðs á alþjóðlegum skákvettvangi með glæsi- legum sigrum í anda Fischers, að mönn- um þótti sem til sögunnar væri kominn skákmaður sem velt gæti Karpov úr sessi. Fáir reiknuðu hinsvegar með að það gerðist jafn fljótt og raun bar vitni. Er því ekki úr vegi að beina sjónum að hinum nýja heimsmeistara og stuttum en glæsilegum ferli hans. Undir handarjaöri Botvinniks Garry Kasparov fæddist í borginni Baku við Kaspíahaf þann 13. apríl 1963. Baku er í sovétlýðveldinu Aserbasjan og býr hann þar enn. Kasparov hefur oft sótt þangað pólitískan stuðning þegar hann hefur átt í höggi við skákveldið í Moskvu. Þegar Kasparov fæddist hlaut hann nafn föður síns sem hét Kim Weinstein. Hann lést í bílslysi þegar drengurinn var aðeins sjö ára gamall. í framhaldi af því tók Kasparov nafn móð- ur sinnar, Klöru Kasparovu, þegar harrn var tólf ára gamall. Þetta ku víst vera lenska í Sovétríkjunum, en illar tungur segja að nafnið Weinstein hafi þótt of gyðingslegt og því hafi þess vegna ver- ið breytt að undirlagi sovéskra skákyfir- valda þegar Kasparov var farinn að vekja athygli fyrir skákhæfileika sína. Eftir því sem næst verður komist, lærði Garry mannganginn sex ára gam- all. Fljótlega tók hann að stunda tafl- mennsku í ungherjahöllinni í Baku undir handleiðslu þjálfara og tók örum fram- förum. Níu ára gamall komst meistarinn ungi fyrst á síður dagblaðanna í Baku er hann komst í úrslit á hraðmóti í 1. flokki. Árið 1973 urðu þau miklu þáttaskil á skákferli Kasparovs að hann hlaut Handbragð hins nýja heimsmeistara Áður en Kasparov hóf seinni slaginn við Karopv tefldi hann tvö æfingaeinvígi við þá Húbner og Anderson og sigraði í þeim báðum með miklum yfirburðum. Hér fáum við að sjá gott dæmi um það hvemig snillingurinn „hitar upp“. Það er Húbner sem er fómarlambið í þessari skák: Hamborg 1985. Hvítt: Robert Húbner, Vestur-Þýska- landi. Svart: Garry Kasparov. Enskur leikur. 1. c4-e5 2. Rc3-d6 3. d4 (Þetta afbrigði hefur verið í tísku að und- anfömu, en nú hljóta vinsældir þess að dvína. Hvítur brýtur nefnilega eina af grundvallarreglum mann- taflsins, sem er að forðast drottnmg- arleiki í byrjun tafls. Reyndar sagði Tarrasch eitt sinn að munurinn á meistara og minni spámönnum væri sá, að meistarinn vissi hvenær mætti brjóta grundvallarreglumar en hinir ekki. í þessari skák sést að þetta spakmæli er ekki algilt.) exd4 4. Dxd4—Rf6 5. g3—Rc6 6. Dd2-Be6 7. Rd5—Re5 8. b3-Re4 9. De3 (Framhaldið í skákinni J. Kristian- sen-Reinert, Danmörk 1985, var einkar skemmtilegt: 9. Dd4-f5! 10. Bg2-g6 11. Bb2?-c5 12. Ddl-Bxd5 13. Dxd5-Da5 14. Kdl-Rd3!! og svartur vinnur, því að hvítur tapar drottningunni eða verður mát.) Rc5 (Fræðileg nýjung sem kemur Húbn- er í opna skjöldu. í skákinni Ftácnik- Timman 1985 lék Hollendingurinn hér 9. .. .-c6 10. Dxe4-cxd5 11. cxd5-Da5+ 12. Bd2-Bxd5 og skákin varð jafntefli um síður.) 10. Bb2 (Betra var 10. Bg2) c6 11. Rf4— Rg4! 12. Dd4? Re4!! (Leikur ársins. Riddarinn er friðhelgur því eftir 13. Dxe4-Da5+ 14. Kdl-Rxf2+ tapar hvítur drotm- mgunni. Nú ryðjast svörtu riddaram- ir inn í hjarta hvítu stöðunnar, en slíkar tilfæringar virðast vera vöm- merki Kasparovs, sbr. einvígis- skákina við Karpov, sem hér fer á eftir.) 13. Bh3—Da5+ 14. Kfl-Rgxf2 15. Bxe6-fxe6 16. Rxe6-Kd7! (Vita- skuld ekki 16. .. .-Rxhl 17. Dxe4 og hvítur fær allt sitt til baka með vöxtum. Textaleikurinn setur hvítum erfið vandamál: a) 17. Rxf8-Haxf8 og svartur fær myljandi sókn eftir f- línunni, b) 17. Rf4-He8! og síðan Rxhl með liðsvinningi. Húbner fúm- ur einu leiðina sem leiðir til upp- skipta, en við það opnast staða hans og kóngurinn verður berskjaldað- ur.) 17. Rh3—Rxh3 18. Dxe4-He8 19. Rxc5H—Dxc5 20. Dg4+-Kc7 21. Dxh3 (Þjóðverjinn virðist vera sloppinn fyrir hom en með frekari fómum tekst Kasparov að halda sókninni gangandi.) Be7! 22. Bxg7— Hhf8!+ 23. Bxf8—Hxf8+ 24. Kel- Df2+ 25. Kdl—Dd4+ 26. Kc2- De4!+ 27. Kd2-Bg5+ (Þátttaka svarta biskupsms í sókninrú ræður úrslitum.) 28. Kc3-De5+ og hvítur gafst upp, því eftir 29. Kb4-Bd2+ 30. Ka3-Bc3 er öllu lokið. Moskva 1985, 16. einvígisskák. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garry Kasparov Sikileyjarvöm, Paulsen-afbrigðið. 1. e4—c5 2. Rf3—e6 3. d4—cxd4 4. Rxd4—Rc6 5. Rb5-d6 6. C4-RÍ6 7. Rlc3—a6 8. Ra3—d5! (Karpov hefur hér beitt afbrigði sem hann hefur notað oft áður með góðum ár- angri, m.a. sigraði hann Kasparov 74 ÞJÓÐLÍF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.