Þjóðlíf - 01.12.1985, Blaðsíða 12
stjóm og það getur verið hættulegt lýð-
ræðinu. Okkar afstaða er að það eigi að
nota markaðinn þar sem hann er brúk-
legur. Hins vegar á að setja lýðræðis-
legar skorður við því að hann gangi
ekki yfir svo að segja hvem mann eins
og er að gerast á íslandi núna. Jafnframt
segjum við að hluti af því efnahagslega
og atvinnulega valdi, sem hefur verið
hjá ríkinu, eigi að fara þaðan og út til
fólksins; til byggðarlaganna o.s.frv.
Okkar stefna er ekki að auka vald skrif-
finna í ráðuneytum. Við viljum færa út
landhelgi lýðræðisins, eins og ég hef
orðað það.“
Það d að auka
samneysluna
Er þá orðinn nokkur munur á ykkur
og Alþýðuflokknum í innanlands-
málum?
,Jú, taktu nú eftir því að um leið og
við segjum þetta, þá segjum við líka:
Það á að auka samneysluna. Við segj-
um: Það er ekki hægt að bæta kjör
hinna lægst launuðu svo um muni án
þess að auka samneysluna stórkost-
lega. Það þýðir meiri skatta á þá sem
em með mikla peninga og flutning á
þeim yfir til þeirra sem þurfa á þeim að
halda. Við erum að segja: Hinn opinberi
geiri ríkis og sveitarfélaga á að vera
stærri. Annars er hér Hong Kong eða
Singapore-þjóðfélag.
Alþýðubandalagið er eini flokkurinn
sem er með þessar áherslur og þetta
skapar okkur algera sérstöðu í íslenska
flokkakerfinu. Ef við tökum til dæmis
Alþýðuflokkinn, þá hefur hann lýst því
yfir að það eigi að skera ríkisútgjöld
niður í 25% af þjóðarframleiðslu. Sam-
tök um kvennalista hafa meira að segja
talað um að það þurfi að minnka ríkisút-
gjöld. Nú erum við ekki að tala um að
þessi starfsemi eigi öll að vera á einni
ríkishendi, heldur erum við að krefjast
þess að hin samfélagslega þjónusta
verði styrkt frá því sem nú er. En það
þarf stjóm, það þarf heildarstjóm til að
dreifa fjármagninu, taka frá þeim sem
em að raka saman fé í þessu þjóðfélagi.
Þannig má segja að við höldum uppi því
merki sem sósíaldemókratar hafa hald-
ið uppi í grannlöndum okkar. Þeir beij-
ast fyrir aukinni samneyslu. Við höfum
verið einir á verði hér á íslandi í áratugi
liggur mér við að segja."
Alrœði öreiganna ekki d
dagskrd
„Deilan um sósíaldemókrata og kom-
múnista er sagnfræði,“ segir formaður
Alþýðubandalagsins. „Hún hefur ekkert
með veruleikann í dag að gera. Við
höfum verið með fólk innan okkar raða
sem hefur litið á sig sem sósíaldemó-
krata, enda er það ekkert skrítið. Sós-
íalistafloklomnn var á sínum tíma stofn-
aður upp úr Kommúnistaflokknum og
vinstra armi Alþýðuflokksins, Alþýðu-
bandalagið var svo stofnað upp úr Sós-
íalistaflokknum og vinstra armi Alþýðu-
flokksins aftur - þeim sem þá var eftir.
En svo erum við líka með fólk sem
segir: Við erum engir andskotans krat-
ar, við erum kommar, og það er fólk
sem fyrst og fremst kynntist Alþýðu-
flokknum á viðreisnarárunum þegar Al-
þýðuflokkurinn kom óorði á það sem
kallað er jafnaðarstefna."
.. .ekki kommúnistar af austur-
evrópskri gerð?
„Þeir eru ekki til. Alþýðubandalagið
setiu sig skilyrðislaust undir þær lýð-
ræðislegu leikreglur sem eru ákveðnar
í þjóðfélaginu - skilyrðislaust. Við vilj-
um halda hér uppi fjölþátta þjóðfélagi,
plúralistísku þjóðfélagi, og það kemur
ekkert annað til greina af okkar hálfu.
Hins vegar - þótt við sættum okkur við
niðurstöður þingræðis og lýðræðis á
hverjum tíma, þá áskiljum við okkur
allan rétt til að breyta ýmsum hlutum.
En lýðræðið og vald fólksins er gnmd-
vallaratriðið, það er homsteinninn í
stefnu Alþýðubandalagsins. Sósíalismi
án lýðræðis er ekki til. Austantjalds er
ekki sósíalismi. Þar þrífst ekkert af því
sem Karl Marx talaði um; frelsi einstakl-
ingsins og frelsi heildarinnar.
Niðurstaða okkar á landsfundinum er
þessi: Við höfnum hvers konar ofstjóm,
bæði í þjóðfélaginu og innan okkar
eigin raða. Við höfnum tilraun minni-
hluta til að ráða meirihluta. Og það sem
kallað hefur verið alræði öreiganna er
ekki á dagskrá hjá okkur. Það kemur
ekki til greina."
Kaupið efst dforgangslista
„Þú spurðir um muninn á okkur og
Alþýðuflokknum. Við leggjum sem sagt
mikla áherslu á samneysluna og hlut-
verk ríkisvaldsins í þeim efnum. En ég
tel einnig að við séum með miklu þró-
aðri hugmyndir um lýðræði en Alþýðu-
flokkurinn. Við höfum lagt í það mikla
vinnu á undanfömum árum að þróa þá
hluti með okkur. Og Alþýðuflokkurinn
hefur hallast á erlendu stóriðjusveifina,
en við höfum hafnað þeirri leið. Alþýðu-
bandalagið telur þá leið hafa brugðist
og breyst í martröð.
Hlustaðu á ræður formanns Alþýðu-
flokksins um þessar mundúr; það er eitt
sem hann minnist aldrei á og það er
kaup. Það er talað um gengi, það er
talað um verðlag, það er talað um
skatta, það er talað um húsnæðismál.
En hjá okkur er kaupið og kjörin efst á
forgangslistanum.
Síðan er auðvitað eitt til viðbótar, sem
skilur þama verulega á milli, og það er
að Alþýðuflokkurinn hefur ekki sömu
fótfestu í verkalýðshreyfingunni og við.
Að því leytinu erum við miklu líkari
krataflokkunum í Skandinavíu, við
erum með verkalýðshreyfingunni og
hún stendur nær okkur en öðrum
flokkum."
Þið voruð í ríkisstjóm með Alþýðu-
flokknum 1978-79 og ósamkomulagið
milli þessara flokka olli mörgum mikl-
. . .ég vildi sjd hér ríkisstjórn okkar
og Alþýduflokksins og með þdtttöku
Kvennalistans.
. . .samstarf við markaðsöflin, þessi
ómanneskjulegu markaðs— og pen-
ingáöfl, sem rdða Sjdlfstæðisflokkn-
um núna, kemur ekki til greina af
hdlfu Alþýðuhandalagsins. Það er
ekki d hlaði.
12 ÞJÓÐLÍF