Þjóðlíf - 01.12.1985, Qupperneq 18
eftir dr. Hans Kr. Guðmundsson
STJÖRNUSTRÍÐSÁÆTLUN REAGANS
ENDALOK GEREYÐINGAR
HÆTTUNNAR EÐA
ÓTRÚLEG SÓUN HUGVITÍ
OG FJÁRMAGNS?
ær hugmyndir og staðhæfíng-
ar sem forsetinn lét sér um
munn fara eru mikilfengleg
og hafa eflaust vakið þær
vonir hjá einhveijum áheyr-
endum að nú myndi vígbúnaðarkapp-
hlaupinu loksins linna og gereyðingar-
ógn kjamorkuvopnanna yrði bægt frá.
Sú áætlun, sem fylgdi í kjölfar ummæla
forsetans og kölluð er Geimvama-
áætlun Bandaríkjanna, hefur hins vegar
vakið efasemdir og vantrú margra á
þeim raunveruleika sem í henni felst.
Áætlunin heitir opinberlega „The
Strategic Defense Initiative", skamm-
stafað SDI. Hún er í raun og veru
stærsta og viðamesta vopnaþróunar-
verkefni sem nokkum tíma hefur verið
ráðist í. Til samanburðar má nefna að
hún verður margfalt dýrari en Manhatt-
anverkefnið svokallaða, þegar fyrstu
kjamorkuvopnin voru hönnuð og smíð-
uð. Af ræðu Reagans má ennfremur
ráða að á þeim áratugum sem það tekur
að koma geimvamaáætluninni í fram-
kvæmd, verður ógn kjamorkuvopn-
anna að haldast óbreytt til þess að
koma í veg fyrir sovéska árás.
í þessari grein verður reynt að lýsa
geimvamaáætluninni í grófum dráttum.
Hugmyndum sem á lofti em um upp-
byggingu vamarkerfisins og nýjar teg-
undir vopna verða gerð nokkur skil.
Reynt verður einnig að bera þær kröf-
ur, sem gera þarf til fullkomins vamar-
kerfis, saman við stöðu tækninnar í dag.
Það er von höfundar að þessi umfjöllun
geti orðið lesandanum nokkur hjálp til
að fylgjast á gagnrýninn hátt með þeirri
umræðu, sem um málið snýst á ýmsum
vettvangi, og ef til vill tO að taka rökum
studda afstöðu.
Hin góðu öfl munu
sigra hin illu?
Síðan Reagan hélt ræðu sína em hðin
tæp þrjú ár. Á þessum árum hafa stjóm-
málamenn, vísindamenn, herfræðingar
og fréttamenn deilt á ýmsum vettvangi
um gildi þessara vamarhugmynda og
réttmæti þeirra gífurlegu fjárveitinga,
sem áætlunin þarfnast þegar á upp-
hafsskeiði.
í mtmni almennings og fjölmiðla mót-
aðist fljótlega nafnið stjömustríð um
þau átök sem eiga munu sér stað í
háloftunum ef áætlað vamarkerfi fer
einhvem tíma í gang. Stjömustríðsnafn-
bótina má rekja til samnefndrar vinsæll-
ar kvikmyndar, þar sem hin góðu öfl
berjast við hin illu í óravíddum geimsins
með leysigeislum og óteljandi tækni-
brellum. Bandaríkjastjóm og forystu-
mönnum áætlunarinnar var í fyrstu lítt
um þessa nafnbót gefið og fóru til dæm-
is fram á að rétt nafn væri notað í um-
fjöllun fjölmiðla. Erfitt reyndist hins veg-
ar að útrýma stjömustríðslíkingunni og
brátt fóm forystumenn áætlunarinnar
sjálfir að nota samlíkinguna við stjömu-
stríðið og mæltust þá til þess að vera
kerutdir við hin góðu öfl, sem bægja
aðsteðjandi hættu frá.
Rannsóknastarf í þágu hemaðar og
vopnatækni hefur aukist mjög á þessum
þremur árum. Vamarmálaráðuneytið í
Pentagon setti 50 manna vamartækni-
nefnd undir stjóm James C. Fletchers
(Fletcher-nefndin) til þess að leggja
fram áætlun um rarutsókna- og þróunar-
starf sem leiða myndi í ljós hvort til-
skipun forsetans er framkvæmanleg.
Markmiðið er í stuttu máli að ákvarða
hvort hanna megi vamarkerfi, byggt á
háþróaðri skynjaratækni og vopnum án
kjamorkusprengja, sem getur eytt
sóknarflaugum í allsheijarárás. Nefndin
lagði línumar að rannsóknaáætlun og á
niðurstöðum hennar byggðist beiðni
vamarmálaráðuneytisins um 26 millj-
arða dollara fjárveitmgu vegna geim-
vamarannsókna til áranna 1985 - 1989.
í lok ársins 1983 var skipuð yfirstjóm
rannsóknanna undir forystu James A.
Abrahamsons jr., hershöfðingja í flug-
hemum, og vísindalegur yfirmaður við
hlið hans er Gerold Yones. Undir þessa
yfirstjóm vom settar átta sviðsstjómir,
sem hver hefur umsjón með einu af
eftirfarandi sviðum:
1. Kerfishönnun.
2. Skynjaratækni.
3. Lífslíkur/eyðingarmáttur/lykiltækni-
svið.
4. Árekstravopn.
5. Geislavopn.
6. Nýsköpun í vísindum og tækni.
7. Samræming og fjármagnsstýring.
8. Ytri tengsl.
150 þróunarverkefni í hemaðartækni,
sem þegar voru í fullum gangi, vom
18 ÞJÓÐLÍF