Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.04.2014, Page 31

Fréttatíminn - 17.04.2014, Page 31
G A M A L D A G S Bragð ið se m kal lar f ram dý r mætar m inningar um gamla gó ð a he image rða ís inn se m al l i r e lska . 1 lítri M e ð í s len sku m rj óma PI PA R\ TB W A - S ÍA - 13 32 19 sem hefur sjálft farið í aðgerð vegna hryggskekkju hefur sett sig í samband við Karen. Vegna þessa sýni- leika er fólk einnig farið að kannast við Hermann á götum úti. „Fólk stundum heilsar mér á förnum vegi. Oft eru það litlir krakkar sem þekkja mig og vinka. Það er skemmtilegt hvað maður hefur glatt marga,“ segir hann og Karen tekur undir: „Ég hef verið spurð hvort ég sé ekki systir töfra- mannsins. Ég er mjög stolt af honum,“ segir hún og brosir til bróður síns. Hermann nýtur sín á sviðinu þegar hann sýnir og á sér uppáhalds töfra- bragð. „Það var atriðið sem ég sýndi síðast þegar ég var með sögunarstokkinn. Við vorum búin að æfa það lengi,“ segir hann en Lovísa systir hans tók einnig þátt í atriðinu og var lokuð í kass- anum á meðan Hermann virtist bókstaflega saga hana í sundur. Lovísa hefur einnig fengið mikinn áhuga á töfrabrögðum og langar að læra meira. Hún sækir spilastokk og stokkar spilin að hætti töframanna með því að gera svokallað „riffle shuffle,“ en hún er ekki bara að æfa sig sjálf heldur er hún byrjuð að kenna krökk- unum í bekknum trixin. Hermann kemur fram á sérstakri söfnunarsýn- ingu fyrir Karen systur sína í Salnum í Kópavogi með Töfrahetjunum þann 16. maí. Um er að ræða fjölskyldusýningu sem inniheldur heimsfrægar sjónhverfingar og ótrúleg töfrabrögð. Þar koma einnig fram Einar Mikael og töfra- konan Viktoría, og yngri systir Hermanns sýnir þar brögð sín sem Lovísa töfrastelpa. Hún er einnig að æfa handbolta og sér fyrir sér marga möguleika í framtíðinni: „Mig langar að verða handboltakona, og lögfræðingur eða læknir, og ég get alveg bætt við að verða töfrakona,“ segir hún. Karen dáist að hæfileikum systkina sinna og segist satt að segja mest langa til að verða umboðsmaður þeirra þegar fram líða stundir. Hjá Hermanni er enginn efi hvað framtíðina varðar: „Ég ætla að vera töframaður“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.