Fréttatíminn - 17.04.2014, Side 38
38 páskamatur Helgin 17.-21. apríl 2014
uppskrift lambakjöt í malti og appelsíni
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 09.04.14 - 15.04.14
1 2
5 6
7 8
109
43
Iceland Small World - lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
Gæfuspor - Gildin í lífinu
Gunnar Hersveinn
Andóf
Veronica Roth
Húsið við hafið
Nora Roberts
Hljóðin í nóttinni
Björg Guðrún Gísladóttir
Eða deyja ella
Lee Child
Paradísarfórn
Kristina Ohlsson
Hamskiptin
Ingi Freyr Vilhjálmsson
Íslenskar þjóðsögur
Sannleikurinn um mál
Harrys Quebert
Joel Dicker
KYNNING
Veitingastaðurinn Bambus
við Borgartún 16 er sá eini á Ís-
landi sem býður upp á svokall-
aða „Asian Fusion“ matargerð
sem notið hefur vinsælda víða um
heim. Þegar Betty Wang flutti til
Íslands fyrir sex árum heillaðist
hún af fegurð landsins og ekki síst
af því hversu gott íslenskt hráefni
er til matargerðar. Í Asian Fusion
felst að veitingarnar eru mat-
reiddar á asískan máta úr hráefni
heimalandsins og því úr íslensku
hráefni í tilfelli Bambus. „Hér á Ís-
landi er heimsins besta kjöt, fiskur
og grænmeti og mig langaði því að
bæta kryddi í íslenska matargerð
og opnaði Bambus sem er fyrsti
Asian Fusion veitingastaðurinn á
Íslandi,“ segir Betty. Á Bambus er
til dæmis boðið upp á kínverskar
hveitibollur, eða dumplings, með
japanskri teriyaki sósu og ofn-
bakaðan þorsk, borinn fram með
sítrónugrasi samkvæmt asískum
hefðum.
Á Bambus er
einnig boðið upp
á dásamlega sæ-
bjúgnasúpu. Betty
segir sæbjúgu hafa
verið vinsæl í Kína
um aldir þar sem
þau eru jafnan köll-
uð fjársjóður sjáv-
arins.
„Það kom mér
því mjög á óvart að
Íslendingar skuli
ekki borða meira af
sæbjúgum. Það hef-
ur hvarflað að mér
að fólk geri sér ekki
grein fyrir því hversu stórkostlega
holl og bragðgóð þau eru,“ segir
Betty. Mikið er um að kínversk-
ir ferðamenn komi á Bambus og
bragði á sæbjúgnasúpunni en að
sögn Betty er Bambus eini veit-
ingastaðurinn á Íslandi sem býður
upp á slíka súpu. Einnig er boðið
upp á sæbjúgu í pakka til að taka
með heim og segir Betty það enn
sem komið er mjög vinsælt hjá
ferðamönnum en vonar að Íslend-
ingar kynnist líka dásemdum sæ-
bjúgnanna þegar fram líða stund-
ir.
Opið verður hjá Bambus á skír-
dag, föstudaginn langa og á laug-
ardag frá klukkan 17 til 22.
Nánari upplýsingar um veitinga-
staðinn Bambus má
nálgast á Facebook-síðunni
Bambus asian cuisine & lounge.
Sæbjúgnasúpa á Bambus
Bambus er eini Asian
Fusion veitingastaðurinn
á Íslandi en þar er mat-
reitt úr íslensku hráefni á
asískan máta. Til dæmis
er boðið upp á ofnbak-
aðan, íslenskan þorsk með
sítrónugrasi að asískum sið,
að ógleymdri sæbjúgna-
súpunni sem er bráðholl og
bragðgóð.
Hjá Bambus er boðið upp á ljúffenga sæbjúgnasúpu.
Sæbjúgu eru hvorki gróður né fiskar heldur einn sex
ættbálka innan fylkingar skrápdýra. Þau lifa oftast á
grunnsævi þó nokkrar tegundir lifi á miklu dýpi.
Betty Wang flutti til Íslands fyrir
sex árum og heillaðist af fegurð
landsins. „Hér á Íslandi er heimsins
besta kjöt, fiskur og grænmeti og
mig langaði því að bæta kryddi
í íslenska matargerð og opnaði
Bambus sem er fyrsti Asian Fusion
veitingastaðurinn á Íslandi,“ segir
hún.
Lambakjöt er órjúfanlegur þáttur
af páskunum og góð lambasteik í
raun jafn mikil nauðsyn og súkkul-
aðieggið. Enda fátt betra en lamba-
læri og með því eftir að hafa hámað í
sig óhóflegt magn af téðum eggjum.
Annar órjúfanlegur þáttur í há-
tíðarmat á Íslandi er líka hin ágæta
drykkjarblanda Malt og Appelsín.
Hana bera að blanda í stafrófsröð,
þ.e. Appelsínið á undan og í hlut-
föllunum 70% Malt á móti 30% App-
elsíni. Þynnri blanda er bara
fyrir ungbörn.
En það er hægt að gera
fleira við blönduna góðu en
að svolgra henni í sig yfir
súkkulaði og moðsteiktum
sauð. Því sopann má einn-
ig brúka í eldamennskuna
sjálfa. Hægt er að hægelda
kjöt í leirpotti umvafið elex-
írnum eða smásteik í álpapp-
írspoka og svo er það gamla,
góða sunnudagssteikin. Hún
fær á sig nýja mynd sé Malti
og Appelsíni hellt í botninn
á steikarfatinu til að búa til
bragðgott soð. Sömu reglur
gilda líka ef páskalambið
breytist skyndilega í páska-
grís. Malt og Appelsín á
nefnilega sérstaklega vel við hæg-
eldaðan svínabóg.
Hráefni:
Malt og appelsínslæri
1 lambalæri
½ lítri 70/30 malt og appelsín
blanda
5-6 hvítlauksrif
½ matskeið nautakraftur
2 tsk tómatpúrra
salt og pipar
olía
Aðferð:
Lærið þarf að ná stofuhita áður
en það fer inn í ofninn. Gott er að
skrapa stærstu fitublettina aðeins
niður. Alls ekki taka alla fitu í burtu
en slatta. Líka gott að taka smá törn
á himnunni sem umlykur vöðvana og
flaka sem mestu af henni burtu líka.
Í himnunni og fitunni getur nefnilega
leynst ullarbragðið sem enginn vill fá
í lærið sitt en læðist þó oft með.
Smyrja lærið því næst með matarol-
íu. Salta og pipra vel á öllum hliðum.
Blandan mín og blandan þín