Fréttatíminn - 17.04.2014, Blaðsíða 44
44 grænn lífsstíll Helgin 17.-21. apríl 2014
Niðursuðudósir og aðrir smáir málm-
hlutir, svo sem álpappír og álbakkar,
eiga að fara lausar í ruslatunnuna
svo flokka megi þær vélrænt frá öðru
heimilissorpi og endurvinna. Fyrir
fáeinum árum setti SORPA upp búnað
sem flokkar sjálfkrafa málma frá
heimilissorpi. Til þess að svo megi
verða þarf að gæta þess að setja niður-
suðudósir og annan málm ekki í rusla-
pokana. Skola á mestu matarleifarnar
úr niðursuðudósunum og setja þær
beint í tunnurnar. Best er að hnoða
álpappír í kúlu og setja lausan í tunn-
una. Málmurinn er síðan flokkaður
frá rusli í móttöku og flokkunarstöð á
Gufunesi með segulstáli.
Málmar eru um 3% af heimilissorpi
og með þessari nýju vinnsluaðferð
næst að minnsta kosti 60% af öllum
málmi úr úrganginum sem kemur inn
á stöðina.
SORPA flokkar málmana svo enn
frekar í framhaldinu til að tryggja
sem best verð fyrir vöruna, til að
mynda er kopar, ál og járn aðgreint.
Það koma um 8-10 tonn af járni, og um
eitt tonn af öðrum málmi á viku inn í
gegnum nýju vélrænu flokkunina. Þar
næst er málmurinn sendur til útlanda
þar sem hann er bræddur og gerður
að markaðsvöru. Flestir málmar eru
endurunnir í málmbræðslum á Bret-
landi og Spáni.
Niðursuðudósir og álpappír beint í tunnuna
Þ að er hægt að endurvinna flest efni sem við notum dagsdaglega og því um að gera að taka sér tak og byrja að flokka, um-
hverfinu og okkur öllum til góða. Efni eins og
timbur, plast, gler og pappír halda eiginleikum
sínum áfram þó við séum búin að nota það og
því er mikilvægt að flokka en henda ekki hugs-
unarlaust. Það er alls ekki flókið að flokka og
um að gera að virkja alla á heimilinu með. Allt
sem fer óflokkað í ruslatunnuna endar á einn
eða annan hátt í náttúrunni.
4
leiðir að
nýjum
og nú-
tímalegri
lífsstíl
Það er skemmtilegt að flokka til endurvinnslu. Hægt er að endurvinna flestar umbúðir. Allt sem
fer óflokkað í ruslatunnuna endar í náttúrunni.
4 Minnkum magn umbúða. Það er mikilvægt að minnka úrgang. Hugsum því áður en við
verslum hvort við séum sátt við magn umbúða utan
um vörurnar. Eins er sniðugt að taka með sér poka
fyrir grænmeti og ávexti í stað þess að taka nýja í
hvert sinn fyrir hverja tegund.
1 Byrjum að endurvinna. Hreinsum ílát eftir
notkun og endurvinnum. Hægt er
að endurvinna nánast öll ílát úr
plasti, gleri, áli og pappír. Hægt er
að hafa sérstaka tunnu fyrir þessi
efni heima sem tæmd er reglulega.
Ekki er þó leyfilegt að setja gler
í slíkar tunnur. Einnig er hægt að
gera sér ferð í Sorpu annað slagið
og gefa efnunum framhaldslíf.
2 Skipulag á flokkunina. Það gerir flokkunina
einfaldari að koma sér upp
góðri aðstöðu. Til dæmis er
hægt að nota eina skúffu í
eldhúsinnréttingunni undir
endurvinnsluumbúðir eða hafa
snyrtilega tunnu á gólfinu eða
inni í ruslaskáp.
3 Notum margnota poka. Minnkum
notkun á plastpokum með því að
fara með margnota innkaupapoka
að versla. Víða eru þeir seldir
í matvörubúðum og öðrum
sérverslunum og fáanlegur í
ýmsum fallegum litum.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
Í lögum um orlof húsmæðra segir svo:
„Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili
forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf, á rétt á
að sækja um orlof.“
Stjórnin
Orlofsferðir árið 2014
Laus sæti
Skrifstofa Orlofsnefndar að Hver�isgötu 69 er opin
mánud.-miðvikud. kl.16:30-18:00 til 1. júní.
Helsinki, Tallin, Riga 20.-26.júní
Slóðir Sigríðar í Brattholti 28.júní
Vest�irðir 21.-24.ágúst
Prag 16. -23.október
Aðventuf./ Brussel,Brugge 4.- 7. desember
Sími 551 2617 - orlofrvk.123.is
edalgardar.is
• Hellulagnir
• Trjáklippingar
• Jarðvegsskipti • Smágröfuþjónusta
• Vörubíll með
krabba
Einar • 698 7258
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Mikið úrval - Vönduð vinna
legsteinar og fylgihlutir
10-50% afsláttur
Steinsmiðjan Mosaik
TILBOÐSDAGAR