Fréttatíminn - 17.04.2014, Page 64
Í takt við tÍmann LÍna Birgitta Sigurðardóttir
Þoli ekki kósíföt
Lína Birgitta Sigurðardóttir er 23 ára Hafnfirðingur sem á og rekur tískuverslunina Define The Line. Lína opnaði
netverslun þegar hún var að jafna sig af veikindum í lok árs 2012 en viðtökurnar voru slíkar að síðasta sumar
opnaði hún verslunina í Borgartúni. Lína býr nú á Laugaveginum og elskar að borða á Sushisamba og dansa á b5.
Staðalbúnaður
Mér líður best þegar ég er vel til höfð
og í hælaskóm. Fatastíllinn minn er
stílhreinn og „classy“ og ég reyni að
ganga með fallegt skart, ekki of mikið
samt. Ég fer ekki út úr húsi án þess að
vera með perlueyrnalokka og ilmvatn.
Mér finnst ógeðslega leiðinlegt að
fara út í kósígallanum og ég eiginlega
þoli ekki kósíföt. Maður má ekki leyfa
sér of mikil þægindi. Það er ný regla
hjá mér að kaupa mér ekki leggings,
bara gallabuxur. Uppáhalds búðin mín
hérna heima fyrir utan mína er Zara
og erlendis er það H&M. Ég kaupi
eiginlega alla mína skó í GS skóm og
Sixty Seven er uppáhalds merkið mitt
í dag.
Hugbúnaður
Ég mæti tvisvar í viku til þjálfarans
míns í Laugum og svo reyni ég að
mæta oftar þar fyrir utan. Mér finnst
ógeðslega leiðinlegt að horfa á sjón-
varp en ég horfi stundum á bíómyndir.
Þá er ég svo gamaldags að ég labba út
í sjoppu og leigi mér mynd og fæ eina
gamla fría með. Reyndar næ ég aldrei
að klára myndir í einum rykk, ég þarf
að taka nokkrar pásur. Ég er ekki
mikill lestrarhestur en les þó svolítið
af sjálfsstyrkjandi bókum og bisness-
bókum. Ég er svolítill djammari og
uppáhalds staðirnir mínir í dag eru
b5 og Austur því mér finnst gaman að
dansa.
Vélbúnaður
Ég er mikið á netinu út af versluninni,
ég nota símann mestmegnis en tölvan
er alltaf við höndina líka. Ég er mjög
dugleg á Instagram og finnst það pers-
ónulega skemmtilegra en Facebook.
Ég væri ekki á Facebook ef ég væri
ekki með síðu fyrir búðina mína.
Aukabúnaður
Ég eldaði í gær og finnst ég vera algjör
hetja. Við kærastinn erum nefnilega
mjög dugleg að fara út að borða. Ég
þoli ekki skyndibitastaði og vil frekar
fá góðan mat. Tapasbarinn er í upp-
áhaldi og líka Sushisamba og Arg-
entína. Uppáhalds snyrtivörurnar
mínar eru frá Mac, Kanebo og Kiko
og ég elska að vera með flotta varaliti.
Síðastliðið ár hef ég farið sjö sinnum
til útlanda. Mér fannst skemmtilegast
að koma til Los Angeles og Las Vegas
því ég hafði aldrei áður komið til
Bandaríkjanna. Ég er rosalega ýktur
persónuleiki og Ameríka hentar mér
mjög vel.
Stolt íslenskrar náttúru
Blóðberg • Birkilauf • Aðalbláberjalyng • Einir
MEÐ VILLTUM ÍSLENSKUM KRYDDJURTUM
Íslenskt heiðalamb
VELDU GÆÐI, VELDU KJARNAFÆÐI
WWW.KJARNAFAEDI.IS
Ég er kremfíkill og
get ekki farið neitt
án þess að setja
krem á líkamann.
Þessi handáburður
er frábær því ég
fæ kuldaexem á
hendurnar.
Lj
ós
m
yn
di
r/
H
ar
i
Versace-
ilmvatnið er í
uppáhaldi hjá mér.
Það er bara ég og
er búið að vera
það lengi. Svo er
ég líka mjög hrifin
af Flowerbomb og
Tommygirl.
Ég get ekki verið án
iPhone-sins míns.
Í honum er vinnan
mín, dagbókin,
vekjaraklukkan.
Nefndu það, það er
allt í símanum.
64 dægurmál Helgin 17.-21. apríl 2014